Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1893, Page 11

Sameiningin - 01.01.1893, Page 11
—171— skrautlega hús sitt. Og hefði hann ekki all-örlátlega látiS út- hluta leifunum frá boröi sínu, þá myndi Lazarus eigi hafa sókzt eftir að liggja einmitt fyrir hans dyrum og með því koma honum til a5 veita sér eftirtekt. Ekki heldr höfum vér ástœðu til aö ætla, að hann hafi haft tilfinning fyrir öSrum að eins þar, sem hann, eins og að því, er snertir Lazarus, gat eigi látið vera að sjá eymd þeirra; sá inaðr, sem er að hugsa um brœðr sína á jörð- unni, eftir að hann sjálfr er kominn í kvalirnar, getr vissulega ekki, meðan liann lifði hér, liafa verið án hluttekningar í böli ineðbrœðra sinna. Mun hann þá hafa verið fordœmdur fyrir þá sök, að liann var maðr auöugr? þ>að er óhugsanda; því Abraham hafði líka verið stór-ríkur. ESa fyrir þá sök, að hann „klæddist purpura og dýrindis líni“? þ)að er jafn-óhugsanda, því Davíö, maðrinn eftir hjarta guðs, hafði líka verið klæddr í purpura- búning. Hvað skyldi það þá hafa verið í lífi þessa meinlausa manns, er ekki var hnegðr til nokkurra eiginlegra glœpa, sem gat vald- ið því, að hann eftir dauðann opnaði augu sín i kvölunum? Yér finnum að eins eina ástœðu tilfœrða í frásögunni, það er að segja þessa, að hann „hafffi mecftelcið' sín gœð'i meðan hann lifð'i“1\ „Minnstu þess, sonr“, segir Abraham „að þú meðtókst þín gœði meðan þú lifðir, en nú verðr þú lcvalinn11. Hér er ekki eitt orð um j)að, að meira þurfi til þess að glatast en þetta, að hafa notið sinna gœða á hinni jarðnesku æfi sinni; þvert á móti tekr Abraham það fram, svo sem það, er hljóti að verða og ekki geti verið öðru- vísi, að sá, sem hafi notið sinna gœða hér í lífi, hljóti að kveljast eftir dauöann. Svo framarlega sem vér blátt áfram höldum oss við orð drottins án þess að bœta nokkru við frá sjálfum ovs, hljót- um vér að játa því, að hér er greinilega kennt, að maSr geti glat- azt enda þótt hann hafi margt gott við sig, fyrir ])á sök, að alls ekki útheimtist neitt iinnað eða meira til þess að geta glatazt en jietta, að vér meðtökum gœði vor hér í lífi. þar sem guðs orð kennir þannig, þá getr það þó með engu móti verið svo að skilja, að sérhvert farsælt líf á jörðinni endi- I) I íslenzkn biblíunni nýjustu (brezka biblíuíelags útgáfunni) stendr: ,,|>ú nauzt hins góða í lífinu“, og er );að mjög ónákvæm þýðing þess, er stendr í frumtext* anum gríska, sem aftr á móti er alveg rétt þýddr í hinni norsku biblíu-útgáfu, er lleuch fer eftir í prJdikan þessari, pýö.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.