Sameiningin - 01.01.1893, Side 29
189—
Betlehemsjötunni liggr fólginn allr kristindómrinn; þaö yfir-
náttúrlega stórtré, sem
„hreiöir sitt lim yfir lönd, yfir höf,
á lifenda bústað, á dáinna gröf;1
sprettr upp af hinni litlu himin-föllnu andlegu plöntu, sem er
vort jóla-gu5spjall.“ — „Aldrei hefi eg fengið aðra eins ómót-
stœðilega hvöt til að þekkja vanmátt minn eins og á hinu liðna
ári, aldrei eins verið til þess knúðr að þreifa á allsleysi mínu.
En svo ætti eg þá nú á þessum jólum að hafa rneira skilyrði en
á nokkurri jólahátíð áðr á æfi minni fyrir þvi, að kunna að
meta fagnaðarboðskap jólanna.“
Á gamlaárskvöld las séra J. Bj. upp lofsönginn fagra eftir
séra Yaldemar Briem út af 150. Davíðs sálmi, sem prentaðr er
fremst í þessu númeri „Sameiningarinnar". Síðan talaði hann
út af 90. Davíðs sálmi, sérstaklega þessum orðum: „Og það
þeirra (æfiáranna) hið kostulegasta er sorg og mœða, því þau
líða skjótt, og vér erum á flugi.“ — „Svo þetta liöna mótlætisár
æfi minnar ætti þá að vera dýrmætasti hluti hins liðna lífs míns.“
„Og nokkuð er það, að ekkert æfiár rnitt finnst mér nú hafa ver-
ið eins stutt, liðið eins fljótt, eins og þetta síðasta.“
Um nokkur síðastliðin ár hefir það veriðsiðr í söfnuði kirkju-
félags vors hér í Winnipeg, að gefa kirkjunni jólagjafir í pen-
ingum. Hafa gleðilega margir safnaðarlimir tekið þátt í því,
að minnast kirkju sinnar á þennan hátt, og hafa menn með því
eftírbreytnisverða uppátœki drjúgum grynnt kirkjuskuldina.
Við þessi síðustu áramót fékk kirkjan $140.25 í jólagjöf.
— Auk þess gaf prestr safnaðarins kirkjunni býsna gott exem-
plar af biblíu Guðbrands biskups þorlákssonar, sem, eins og
kunnugt er, var prentuð á Hólum í Hjaltadal 1584. Var þessi
xnerkilega bók rétt áðr keypt fyrir 20 dollara. Er ætlazt til, að
hún verði höfð fyrir altarisbiblíu í kirkjunni, þá er hún hefir
fengið nauðsynlega viðgjörð, verið bundin í hœfilegt skrautband,
sem, ef til vill, myndi kosta allt að því eins mikið og nú var gefið
fyrir liana.