Fréttablaðið - 27.12.2010, Blaðsíða 2
2 27. desember 2010 MÁNUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Er þinn
auður í góðum
höndum?
Komdu með sparnaðinn
til Auðar fyrir áramót
• Séreignarsparnaður
• Sparnaður
• Eignastýring
Borgartúni 29
S. 585 6500
www.audur.is
Óháð staða skiptir máli
GASA Ísraelsmenn skutu niður tvo
Palestínumenn í loftárás á Gasa,
en samkvæmt ísraelska hernum
ætluðu mennirnir að koma fyrir
sprengjum á öryggisgirðingu á
landamærunum við Ísrael.
Palestínumenn svöruðu með
tveimur eldflaugaskotum sem
lentu í Negev-eyðimörkinni. Engan
sakaði. Ísraelar hafa varað við því
að stríð sé einungis tímaspursmál
og leiðtogar Hamas lofa að svara
öllum árásum af hörku. Sam-
kvæmt tölum SÞ hafa yfir 60 Pal-
estínumenn og einn Ísraeli látist í
hernaðarátökum á Gasa í ár. - tg
Segja stríð tímaspursmál:
Tveir látast í
árás á Gasa
LOFTÁRÁS Árásin skildi eftir sig
sprengjugíg skammt frá öryggisgirðing-
unni. NORDICPHOTOS/AFP F02261210
BRETLAND Lík Joanna Yeates
fannst á jóladag í skógi skammt
frá heimili hennar í Bristol á Eng-
landi, en hennar hafði verið sakn-
að frá 17. desember. Mikil leit
hafði staðið yfir og höfðu foreldr-
ar Yeates meðal annars komið
fram í sjónvarpi og beðið þá sem
gætu aðstoðað að gefa sig fram.
Lögreglan getur ekki gefið
upp dánarorsök fyrr en að lok-
inni krufningu en staðfesti að um
grunsamlegan dauðdaga væri
að ræða. Síðast sást til Yeates í
Tesco-verslun í Bristol en veski,
lyklar og úlpa hennar fundust í
íbúð hennar. Fimbulkuldi hefur
verið í Bretlandi í vikunni. - tg
Leitað að konu á Englandi:
Fannst látin
inni í skógi
LÖGREGLUMÁL Talsvert hefur verið
um innbrot á heimili um hátíð-
arnar.
Að morgni jóladags stöðvaði
lögregla mann sem hafði reynt
að spenna upp fjölmarga glugga í
austurhluta Reykjavíkur. Honum
hafði ekki tekist að brjótast inn.
Að minnsta kosti sex innbrot
voru tilkynnt til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu á jóla-
dag. Hundur gerði vart við eitt
innbrotanna, en þar fóru þjófar
ránshendi um hús í Hafnarfirði á
meðan íbúar sváfu.
Karlmaður var handtekinn í
miðju innbroti í Húsi verslunar-
innar í Kringlunni í gærdag. Þá
var reynt að spenna upp glugga í
Hellulandi í Fossvogi án árang-
urs. - þeb
Fæst innbrotanna upplýst:
Mikið um inn-
brot yfir jólin
LÖGREGLUMÁL Tvær konur sluppu
ómeiddar eftir harðan árekstur í
Hörðudal í gærmorgun.
Konurnar voru á leið til vinnu
þegar sú sem ók missti stjórn á
bílnum. Hann hafnaði á háum
tólf kílóvolta rafmagnsstaur sem
brotnaði. Rafmagnslína fór einn-
ig undir bílinn. Það þykir mildi að
konurnar skyldu sleppa ómeiddar
frá bæði staurnum og rafmagns-
línunni. Þær gátu haldið til vinnu,
en bíllinn er mikið skemmdur. Þá
sló út rafmagni í hluta Dalasýslu
vegna árekstursins. - þeb
Rafmagnsstaur og lína féllu:
Sluppu ómeidd-
ar úr árekstri
„Elísabet, þurfið þið ekki að
taka þessum tíðindum af
stillingu?“
Nei, það er ósanngjarnt að okkur sé
stillt út við vegg?
Elísabet Blöndal er nemandi á útstilling-
braut Iðnskólans í Hafnarfirði en nem-
endum á brautinni hefur verið tilkynnt
bréflega að nám í greininni verði fellt
niður frá og með áramótum.
LÖGREGLUMÁL Fjórir menn sitja
nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um
tilraun til manndráps og önnur
brot. Þeir réðust að íbúð í Ásgarði
í Bústaðahverfi í Reykjavík rétt
fyrir hádegi á aðfangadag og
skutu að lokum þremur skotum á
útidyrahurðina. Hjón með tvö ung
börn voru innandyra þegar árásin
hófst en þau sluppu ómeidd.
Lögreglunni barst tilkynning um
málið rétt fyrir hádegi á aðfanga-
dag. Mennirnir höfðu þá sparkað
og barið í hurðina en þegar það
bar ekki árangur fóru þeir af vett-
vangi. Þeir komu svo aftur stuttu
síðar með skotvopnið. Fjölmennt
lið lögreglu og sérsveitarinnar fór
á vettvang.
Sex menn voru svo handteknir í
nágrenni hússins og lagt var hald
á skotvopnið. Einn hinna grunuðu
kýldi lögreglumann við handtök-
una og nefbrotnaði lögreglumað-
urinn í átökunum. Mennirnir voru
allir í annarlegu ástandi. Einum
þeirra var sleppt eftir yfirheyrsl-
ur en fimm gistu fangageymslur
á aðfangadag. Lögreglan krafðist
gæsluvarðhalds yfir þeim vegna
málsins. Fjórir voru úrskurðaðir í
tíu daga varðhald á jóladag en ekki
var fallist á varðhald yfir fimmta
manninum. Hann er talinn höfuð-
paur og skipuleggjandi árásarinn-
ar.
Fram kom í viðtali við nágranna
heimilisfólksins í Ásgarði á Stöð 2
í gær að fólkið hafi flúið yfir í aðra
íbúð þegar árásin var gerð. Þau
hafi því öll verið komin úr íbúð-
inni þegar skotið var á hurðina.
Þar kom einnig fram að í fyrstu
hafi árásarmennirnir farið húsa-
villt, og að þetta hafi ekki verið í
fyrsta skiptið sem hverfið sé heim-
sótt af mönnunum eða öðrum sem
þeim tengjast.
Lögregla verst allra frétta af
málinu en yfirheyrslur munu
halda áfram á næstu dögum. Auk
gruns um tilraun til manndráps
eru mennirnir grunaðir um hús-
brot, brot á vopnalögum og brot á
lögum um ávana- og fíkniefni. Þá
er einn grunaður um líkamsárás
á lögregluþjón og brot gegn vald-
stjórninni. thorunn@frettabladid.is
Grunaðir um til-
raun til manndráps
Fjórir menn sitja í gæsluvarðhaldi eftir að þremur skotum var hleypt af á úti-
dyrahurð í Ásgarði í Reykjavík á aðfangadag. Varðhald fékkst ekki yfir fimmta
manninum. Mennirnir eru grunaðir um tilraun til manndráps og fleiri afbrot.
Mennirnir sem aðild eiga að málinu eru allir á þrítugsaldri og taldir tengjast
fíkniefnaheiminum. Samkvæmt heimildum Fréttastofu Stöðvar 2 var um
handrukkun að ræða vegna 1,2 milljóna króna skuldar mannsins sem býr í
Ásgarði. Maðurinn hafi verið í fíkniefnasölu en klúður hans hafi orðið þess
valdandi að annar fíkniefnasali hafi verið handtekinn. Ekki hafi því verið um
beina fíkniefnaskuld að ræða. Dagana fyrir árásina hafi hann verið heim-
sóttur reglulega vegna málsins, síðast á Þorláksmessu. Hann hafi ekki viljað
hringja á lögregluna heldur leysa málið sjálfur.
Handrukkun vegna skuldar
STJÓRNMÁL Unnið er að stofnun nýs
stjórnmálaflokks hægra megin við
miðju sem ber vinnuheitið Nor-
ræni borgaraflokkurinn. Flokk-
urinn sækir sér fyrirmyndir til
hægriflokka á Norðurlöndunum
og í Mið-Evrópu.
„Þetta á að vera miðju-hægri
flokkur sem trúir á blandað mark-
aðshagkerfi þar sem velferðar- og
menntakerfið hefur stóran sess,“
segir Guðbjörn Guðbjörnsson
stjórnsýslufræðingur sem á sæti
í framkvæmdanefnd flokksins,
og bætir við að flokkurinn leggi
áherslu á vinsemd í garð atvinnu-
lífsins. „Sterkt
atvinnulíf er
undirstaða vel-
ferðar, menning-
ar og menntun-
ar, við skiljum
það.“
Flokkurinn
styður aðild-
arviðræður
Íslands við ESB
en Guðbjörn
segir það ekki stærra stefnumál en
hvað annað. Guðbjörn sjálfur sagði
sig nýlega úr Sjálfstæðisflokknum
sem hann er gagnrýninn á. „Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur meira stillt
sér upp með breska Íhaldsflokkn-
um og Repúblikanaflokknum. Við
deilum ekki þessu hatri á öllu opin-
beru sem maður verður var við hjá
þeim flokkum. Við höfum ekkert
á móti einkarekstri en þetta eiga
ekki að vera trúarbrögð,“ segir
Guðbjörn.
Flokkurinn hyggur á framboð í
næstu þingkosningum en Guðbjörn
segist ekki eiga von á kosningum
í bráð. Engin þekkt nöfn úr stjórn-
málalífinu vinna að stefnu flokks-
ins þó flestir hafi einhvern þátt
tekið í stjórnmálum áður. - mþl
Hefur vinnuheitið Norræni borgaraflokkurinn:
Nýr stjórnmálaflokkur að fæðast
GUÐBJÖRN GUÐ-
BJÖRNSSON
INDÓNESÍA, AP Sex árum eftir að
flóðbylgja kostaði um 230 þúsund
manns í tólf ríkjum við Indlands-
haf lífið halda ættingjar fólks
sem hvarf enn áfram að leita að
börnum, foreldrum, frændum og
frænkum.
Fjögur ár eru síðan stjórnvöld
hættu að aðstoða fólk sem leitaði
horfinna fjölskyldumeðlima. Lík
um 37 þúsund þeirra sem tald-
ir eru af eftir flóðbylgjuna hafa
aldrei fundist. Sumir hafa neitað
að gefast upp.
Titik Yuniarti heldur enn í von-
ina um að finna eitthvert af börn-
unum sínum á lífi. Hún missti eig-
inmann sinn og börnin sín þrjú í
flóðbylgjunni. Eins og fjöldinn
allur af örvæntingarfullum for-
eldrum hefur hún auglýst eftir
börnunum í dagblöðum og hengt
auglýsingar á ljósastaura.
Mikill fjöldi barna er munaðar-
laus eftir hamfarirnar. Talið er að
yfir fimm þúsund börn hafi misst
annað eða bæði foreldra sinna í
flóðbylgjunni.
Talsverður fjöldi fólks tók í gær
þátt í athöfnum þar sem þeirra
sem létust í náttúruhamförunum
fyrir sex árum var minnst. - bj
Sex ár frá flóðbylgju sem kostaði um 230 þúsund manns lífið við Indlandshaf:
Leita enn barna sem hurfu
MINNING Minningarathafnir voru haldnar víða í gær í þeim tólf löndum við Indlands-
haf þar sem flóðbylgjan kostaði mannslíf. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÆRÐUR FYRIR DÓMARA Hér sést einn mannanna í fylgd lögreglumanna á jóladag.
Á innfelldu myndinni sjást ummerkin eftir skotárásina. MYNDIR/STÖÐ 2
VEÐUR Útlit er fyrir fremur milt
veður á landinu öllu um áramót-
in. Spár gera ráð fyrir hægri suð-
vestanátt og fremur hlýju veðri,
segir Haraldur Eiríksson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands.
Á vestanverðu landinu má búast
við skýjuðu veðri og smá vætu á
gamlárskvöld. Mestar líkur eru á
rigningu á Vestfjörðum og Norð-
Vesturlandi, en líkur á smá sudda
sunnan- og vestanlands. Hiti gæti
farið í fimm gráður yfir dag-
inn. Útlit er fyrir bjartara veður
á austanverðu landinu, og hita
nálægt eða jafnvel undir frost-
marki, segir Haraldur. - bj
Veður fer hlýnandi:
Spá mildu veðri
um áramótin
Umsókn verði dregin tilbaka
Tillaga um að umsókn Íslands að
Evrópusambandinu verði dregin til
baka verður lögð fram á Alþingi eftir
áramót. Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, legg-
ur tillöguna fram.
EVRÓPUMÁL