Fréttablaðið - 27.12.2010, Blaðsíða 54
42 27. desember 2010 MÁNUDAGUR
„Mér finnst þetta rosalega
skemmtilegt,“ segir Svanfríður
Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri Dal-
víkurbyggðar.
Nafn Dalvíkur er nú að finna
í fleiri en sextíu milljónum far-
síma um allan heim. Markaðssetn-
ingin hefur þó verið sveitarfélag-
inu algjörlega kostnaðarlaus, enda
hafði bæjarráð ekkert að gera með
ákvörðunina. Dalvík er nefnilega
nafn á svokallaðri Java-sýndar-
vél símastýrikerfisins Android frá
Google. Android er eitt af vinsæl-
ustu símastýrikerfum heims um
þessar mundir, en 60 milljónir And-
roid-síma seldust á þessu ári. Dal-
vík Java-sýndarvélin er órjúfan-
legur hluti af Android, þó að fæstir
notendur átti sig almennilega á til-
gangi vélarinnar.
Þegar leitað er eftir upplýsing-
um um Android er Dalvíkurnafnið
aldrei langt undan. Ekki er nóg með
það, heldur er yfirleitt tekið fram
að vélin sé nefnd eftir sjávar þorpi
á Íslandi. Svanfríður er afar ánægð
með það. „Dalvík eitt og sér segir
engum neitt, en ef því er bætt aftan
við að þetta sé íslenskt sjávarþorp
fer þetta að fá svolitla merkingu.
Það er auðvitað mjög skemmtilegt
fyrir okkur hér,“ segir hún.
Dalvík Java-sýndarvélin er skrif-
uð af hugbúnaðarverkfræðingnum
Dan Bornstein. sem starfar hjá
Google. Hann hefur einhvern óút-
skýranlegan áhuga á Dalvík og
nefndi vélina í höfuðið á bænum
áður en hann hafði svo lítið sem
stigið fæti á íslenska grund, en hann
bætti úr því fyrir rúmum tveimur
árum. Bornstein segir bæinn hafa
staðist væntingar sínar. „Ég kom til
bæjarins viku eftir fiskidaga með
kærustunni minni,“ segir hann.
„Við fórum í sund og skemmtum
okkur mjög vel. Það var ekki mikið
um að vera í bænum þannig að
við nýttum bæinn sem eins konar
höfuðstöðvar og fórum í ferðir til
Mývatns, á Akureyri og út í Gríms-
ey.“
Spurður hvort samstarfsfélag-
arnir hjá Google hafi áhuga á Dal-
vík eftir að þeir fóru að sjá nafn-
inu bregða fyrir í vinnunni segir
hann þá vita talsvert meira um
bæinn en áður. „Ég er reyndar sá
eini sem hefur komið til Dalvíkur,“
segir hann.
En er möguleiki á því að starfs-
menn Google fari í hópferð til Dal-
víkur?
„Ég vildi að ég hefði slík áhrif.
En mig langar mjög mikið að heim-
sækja bæinn á ný.“
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
SVANFRÍÐUR INGA JÓNASDÓTTIR: ÞETTA ER SKEMMTILEGT FYRIR OKKUR
Dalvík í 60 milljónum farsíma
Aðdáendur Jóns Þórs Birgissonar,
Jónsa, ætla að blása sápukúlur á
tónleikum hans í Laugardalshöll
29. desember. Uppákoman verður
í laginu Around Us af fyrstu sóló-
plötu hans Go.
Einn af þeim 192 erlendu aðdá-
endum Jónsa sem ætla á tónleik-
ana tilkynnti þetta á Facebook-síðu
Jónsa. „Stóra planið okkar er að á
meðan lagið Around Us hljómar
blásum við helling af sápukúlum
í loftið, þið vitið eins og þegar við
vorum krakkar. Sjáumst öll á tón-
leikunum með sápukúlur í kring-
um okkur.“
Aðrir hafa rætt um að mæta með
skrítna dýrahatta á tónleikana til
að skapa skemmtilega stemningu.
Stutt er síðan suður-kóreskir aðdá-
endur Jónsa tóku höndum saman
og fylltu sviðið af skutlum í einu
laginu og vilja aðdáendurnir í Höll-
inni ekki vera minni menn.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá munu 192 útlendingar frá 21
landi fljúga hingað til lands gagn-
gert til að fylgjast með tónleikun-
um. Flestir koma frá Bandaríkj-
unum og Bretlandi, eða 98 talsins,
34 koma frá Frakklandi og Þýska-
landi og tíu frá Japan. Aðrir aðdá-
endur Jónsa koma meðal annars
frá Rússlandi, Ástralíu, Mexíkó
og Ítalíu. Tónleikarnir verða þeir
síðustu á risastórri tónleikaferð
Jónsa um heiminn. Lúðrakvintett-
inn Brassgat í bala, með Samúel
J. Samúelsson í fararbroddi, hitar
upp. Enn eru til miðar í stæði. - fb
Sápukúlur hjá Jónsa
BREGÐA Á LEIK Jónsi og hljómsveit hans bregða á leik baksviðs. Sápukúlur verða
blásnar á tónleikunum í Höllinni.
HEIMSÓTTI DALVÍK
Dan Bornstein, sem ber ábyrgð á
því að nafn Dalvíkur hefur fengið
þessa ótrúlegu útbreiðslu, heim-
sótti Dalvík fyrir tveimur árum.
Bæjarstjórinn Svanfríður Inga
gleðst yfir því að nafn bæjarins
sé orðið svona útbreitt. Takið eftir
bolnum sem Bornstein klæðist.
Hann sýnir Eyjafjörð, en hann er
framleiddur af Google.
„Ég horfi á svo ótrúlega mikið
að það er erfitt að velja. En ætli
það séu ekki 90210, Desperate
Housewives og How I Met Your
Mother.“
Signý Arnórsdóttir golfari
Ungir sjálfstæðismenn eru smám
saman að koma út úr skápnum
sem miklir hundavinir. Sigurð-
ur Kári Kristjánsson hefur til að
mynda átt labrador um hríð og
nýverið greindi Fréttablaðið frá
því að Gísli Marteinn
Baldursson væri kominn
með hund af sama kyni
og hefði skírt hann
Tobba. DV greindi
síðan frá því fyrir
jól að formaður
flokksins, Bjarni
Benediktsson,
væri búinn
að fjárfesta í
bolabít.
Hvort þetta hafi eitthvað að gera
með gamla höfðingja flokksins á
borð við Davíð Oddsson, sem átti
Tanna, og Albert Guðmundsson,
sem átti Lucy, skal ósagt látið en
hermt er að nýi frasinn
hjá sjálfstæðismönn-
um hljómi einhvern
veginn svona:
„Græðum á daginn,
göngum með
hundinn eftir
vinnu og
grillum á
kvöldin.“
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Gísli Örn Garðarsson og félagar
í Vesturporti hafa átt ótrúlegt ár.
Gísli var auðvitað ein af aðal-
stjörnunum í Prince of Persia með
þeim Jake Gyllenhaal og Gemmu
Arterton og svo var það uppsetn-
ing Faust í London og
frábærir dómar fyrir
Hamskiptin í New
York Times. Rúsínan
í pylsuendanum
voru þó eflaust leik-
listarverðlaun BBC en
afhending þeirra fer
fram í Pétursborg
um miðjan
apríl á næsta
ári.
Handfarangurinn í þeirri ferð er
hins vegar af stærri gerðinni því
þetta er engin venjuleg verðlauna-
afhending. Um er að ræða fimm
daga veislu þar sem verðlaunaðir
einstaklingar sýna verk sín. Vest-
urport og leikarar Borgarleikhússins
þurfa því að ferðast með eina
flóknustu sýningu sína alla leið
til Rússlands og sýna hana þar...
einu sinni en eins og margir muna
gekk nógu mikið á við uppsetningu
Faust í Young Vic-leik-
húsinu þar sem
Hilmir Snær hafn-
aði meðal annars
á sjúkrahúsi. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta eru eiginlega fræðsluþættir um fjár-
mál heimilanna, nema að reynt er að fjalla um
efnið á mannamáli svo að allir skilji,“ segir
leikstjórinn Baldvin Z um sjónvarpsþættina
Ferð til fjár sem sýndir verða í Sjónvarpinu í
byrjun næsta árs.
Í þáttunum verður fjallað um svokallað fjár-
málalæsi og verða ýmis hugtök og efni tengd
fjármálum útskýrð á þann hátt að áhorfandinn
hljóti dýpri skilning á efninu. „Það er algengt
að fólk sitji og horfi á fréttir sem fjalla um
fjármál en skilji ekki við hvað er átt. Þættirn-
ir eiga í grunninn að útskýra orð og hugtök og
í leiðinni kenna fólki hvernig megi nýta pen-
ingana betur,“ útskýrir Baldvin, sem vinn-
ur þættina í samstarfi við Breka Karlsson og
Steinunni Þórhallsdóttur, en hann rekur stofn-
unina Fjármálalæsi á Íslandi. Í þáttunum eru
meðal annars ýmsir aðilar fengnir til þess að
reikna út hvað þeir kosta og þeirra á meðal
voru útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðars-
son, leikarinn Björgvin Franz Gíslason og sjón-
varpskonan Þóra Arnórsdóttir auk nokkurra
menntskælinga og þingmanna. „Þetta var mjög
forvitnilegt því fólk kemst oft að því að það
kostar meira en það heldur. Andri Freyr var á
meðal þeirra sem kostuðu minnst, ég tók líka
prófið í gamni og komst að því að ég var lang-
dýrastur af öllum en það var fartölvunni minni
að kenna. Hún sprengdi allan skalann,“ segir
Baldvin og hlær.
Aðspurður segist hann hafa lært ýmislegt
við gerð þáttanna og ákvað meðal annars að
hvíla kreditkortið fyrir jólin í ár. „Þetta var
mun auðveldara en ég hafði ímyndað mér og
nú þarf ég ekki að kvíða janúarmánuði, aldrei
þessu vant. Svo er bara að bíða og sjá hvort
maður haldi þetta út allt næsta ár,“ segir hann
að lokum. - sm
Hvíldi kreditkortið þessi jól
TEKUR Á HEIMILISFJÁRMÁLUM FÓLKS Baldvin Z
leikstýrir nýjum sjónvarpsþáttum sem kenna fólki fjár-
málalæsi. Þættirnir verða sýndir í Sjónvarpinu í byrjun
næsta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Árangur fer eftir gæðum
Blágrænir þörungar frábærir fyrir
ræktina, skólann og vinnuna
Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu
og glyccogen, því meira glycogen sem er til
staðar í líkamanum við æfingar því betri árangur.
Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu.
Ef Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir æfingar
eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald
og einbeitingu. Dregur úr pirringi, sleni
og sætindaþörf, truflar ekki svefn.
Gæðastaðall ISO9001, ISO1401.
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni.
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Árangur strax!
V
o
ttað 100 % lífræ
nt
www.celsus.is