Fréttablaðið - 27.12.2010, Qupperneq 12
12 27. desember 2010 MÁNUDAGUR
INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2010
Þ
egar árið, sem nú er
að líða, gekk í garð
vonuðu allir velunn-
arar Þjóðkirkjunn-
ar að það yrði henni
þægilegra en það sem
þá rann sitt skeið. Árið 2009 hafði
nefnilega reynst kirkjunni eitt hið
erfiðasta í 14 ár. Kynferðisbrot
kirkjunnar þjóna höfðu ekki verið
áberandi í fréttum hérlendis fram
að því, alltjent ekki ef miðað er
við mörg grannlönd okkar, en mál
sr. Gunnars Björnssonar breytti
því. Í kjölfarið á ásökunum í garð
Ólafs Skúlasonar árið 1996 kom
kirkjan sér upp ferli til að taka
á slíkum málum, en úrræðaleysi
hennar í þeim efnum hafði valdið
mörgu kirkjufólki hugarangri. Mál
Gunnars var hið fyrsta sem fór í
gegn um þetta ferli frá upphafi til
enda. Líta má því á það sem eins
konar „prufukeyrslu“ fyrir kerfið.
Kannski er það ágætur vitnisburð-
ur í þessum efnum að ekkert slíkt
mál skyldi koma til kasta kirkjunn-
ar allan þennan tíma.
Siðanefndin brást
Góðu fréttirnar voru auðvitað
þær að kerfið virkaði. Niðurstaða
fékkst í málið og presturinn var
látinn víkja, þótt landslög kæmu í
veg fyrir að hægt væri að svipta
hann hempunni. Fagráð Þjóðkirkj-
unnar um kynferðisbrot stóð sína
plikt. Vondu fréttirnar voru aftur
á móti þær að ákveðnir, alvarleg-
ir hnökrar á ferlinu komu í ljós. Í
stað þess að lagfæra þá, svo kirkj-
an yrði enn betur í stakk búin til
að taka á sambærilegum málum
í framtíðinni, varpaði yfirstjórn
kirkjunnar hins vegar öndinni
léttar, taldi sér trú um að allt væri
yfirstaðið og vonaði hið besta. Sú
von brást auðvitað.
Hnökrarnir eru, að mínu mati,
einkum þrír. Sá fyrsti varðar reynd-
ar ekki kirkjuna heldur dómskerfið.
Hann er í því fólginn að tæpt ár tók
að fá niðurstöðu í málið frá því að
það var kært. Þótt ellefu mánuðir
kunni að þykja eðlilegur tími fyrir
afgreiðslu sakamála, er óviðun-
andi að unglingsstúlkur, sem brot-
ið hefur verið á, þurfi að bíða svo
lengi eftir að fá viðurkenningu á að
þær hafi verið beittar órétti. Eitt ár
er heil eilífð fyrir börn og unglinga.
Kynferðisbrotamál sem varða þau
verða að fá skjótari afgreiðslu.
Í öðru lagi kom í ljós að starfs-
reglur úrskurðarnefndar Þjóðkirkj-
unnar eru gallaðar. Þær gera ráð
fyrir því að nefndin geti gripið til
úrræða þegar prestur gerist sekur
um agabrot, en ekki ef um siðferðis-
brot er að ræða. Siðferðisbrot taka
til mannlegra samskipta en agabrot
varða vanrækslu presta á þjónust-
unni sem þeim er ætlað að veita. Að
mínum dómi sýnir þetta að brýnt
er að breyta 12. gr. laga nr. 78 frá
1997, sem úrskurðarnefndin starf-
ar eftir, á þann veg að við siðferð-
isbrotum séu sömu úrræði og við
agabrotum.
Þriðji og langalvarlegasti ágall-
inn á afgreiðslu málsins var þó sá
að siðanefnd Prestafélags Íslands
brást gjörsamlega. Að vísu komst
hún að þeirri niðurstöðu að fram-
ferði sr. Gunnars hefði brotið í
bága við siðareglurnar, en hún
brást þeirri skyldu sinni að skera
úr um alvarleika brotsins og veita í
kjölfarið áminningu eða vísa mál-
inu til stjórnar Prestafélagsins sem
tekur ákvörðun um hvort ástæða sé
til brottvísunar úr félaginu. Í raun
má því segja að mál sr. Gunnars sé
enn til meðferðar hjá siðanefndinni,
en starfsreglur hennar kveða skýrt
á um að henni beri að afgreiða öll
mál, sem til hennar er beint, með
þeim hætti.
Reynsla af Selfossmáli vannýtt
Að mínum dómi var afgreiðsla
biskups á Selfossmálinu honum
til sóma, enda erfitt að byggja
Salómonsúrskurð á annarri eins
Pílatusarmeðferð og málið fékk
hjá siðanefnd P.Í. Það var ánægju-
legt að sjá hann vaxa með þeim
hætti í starfi. En hann lét, illu
heilli, hjá líða að láta kné fylgja
kviði og þrýsta á siðanefndina að
vinna vinnuna sína og á Alþingi
að lagfæra starfsreglur úrskurð-
arnefndarinnar. Sömuleiðis lét
prestastéttin það ógert að skikka
siðanefndina til að fara að reglum
eða samþykkja vantraust á hana
ella. Fyrir vikið er nefndin núna
með öllu tilgangslaus, ómarktæk
og trausti rúin. Stéttar- og fagfé-
lag, sem vill láta taka sig alvar-
lega, má ekki sætta sig við slíkt
ástand á siðanefnd sinni.
Þegar upp er staðið er því engum
blöðum um það að fletta að kirkj-
an dró minni lærdóm af Selfoss-
málinu en henni hefði verið í lófa
lagið. Hún var af þeim sökum verr
undir það búin en efni stóðu til að
sýna rögg og fagmennsku í fram-
göngu sinni þegar Stóra biskups-
málið sneri aftur af fullum þunga í
ágúst á þessu ári. Og einmitt vegna
vasklegrar framgöngu herra Karls
Sigurbjörnssonar í Selfossmálinu
var einkar átakanlegt að sjá hann
gera þann álitsauka að engu í sjón-
varpsviðtali.
Biskupi vandi á höndum
Vissulega var honum vandi á hönd-
um og hann fráleitt öfundsverður
af því hlutskipti sínu að þurfa að
bera af sér sakir um að hafa haldið
hlífiskildi yfir kynferðisafbrota-
manni. Aðkoma hans að máli hr.
Ólafs Skúlasonar fyrir 14 árum
ásamt þeim þungu sökum sem
hann var borinn gerðu hann aug-
ljóslega vanhæfan til að vera tals-
maður kirkjunnar í málinu. Til
þess hefðu aðrir átt að vera betur
fallnir, s.s. formaður Prestafé-
lagsins eða vígslubiskupar Þjóð-
kirkjunnar – en þeim er beinlín-
is ætlað að leysa biskup af þegar
hann er löglega afsakaður frá því
að gegna skyldum sínum. Biskup
gerðist enda sekur um það klaufa-
lega hálfkák að reyna að taka
málstað fórnarlambanna án þess
þó að treysta sér til að lýsa yfir
óvefengjanlegri sekt herra Ólafs
heitins, eflaust til að leggja ekki
meiri byrðar á aðstandendur hans
en þegar er orðið. Þeir eru auð-
vitað þolendurnir sem gleymst
hafa í umræðunni og Karl hefur
ekki viljað snúa hnífnum í þeirra
hjartasári. Því miður er sá valkost-
ur þó ekki í boði. Það er ekki hægt
að taka afstöðu með fórnarlömbum
án þess að taka afstöðu gegn ger-
endunum.
Það sem gerðist í kjölfarið sýnir
þó svo ekki verður um villst að
kirkjan er ekki biskupinn einn.
Kirkjuráð sendi frá sér yfirlýsingu
þar sem fórnarlömbin voru beðin
afsökunar. Prestar landsins buðu
fórnarlömbum Ólafs Skúlasonar á
fund þar sem þau voru beðin fyr-
irgefningar á máttleysi kirkjunn-
ar. Í viðtali lýsti ein kvennanna
þeim fundi sem mikilli sáluhjálp
fyrir sig. Sr. Hjálmar Jónsson, sem
hafði verið sakaður um yfirhylm-
ingu ásamt Karli, baðst í prédikun
fyrirgefningar á því að hafa ekki
verið fær um að veita þá hjálp sem
hann var beðinn um í mars 1996.
Það sama gerði sr. Pálmi Matthías-
son, sem einnig hafði verið leitað
til. Sr. Sigríður Guðmarsdóttir við-
urkenndi í blaðagrein afskiptaleysi
sitt og fór fram á að hlutlaus nefnd
rannsakaði starfshætti kirkjunn-
ar fyrir fjórtán árum og viðbrögð
hennar. Við því var orðið og í nóv-
ember skipaði kirkjuþing nefndina.
Formaður hennar er Róbert Spanó,
forseti lagadeildar H.Í. Nefnd-
in starfar algerlega sjálfstætt, er
óháð öllum stofnunum kirkjunnar
og mun skila niðurstöðum sínum
næsta sumar.
Breytt viðhorf kirkjunnar
Kirkjan hefur því óneitanlega
lært eitthvað af því sem á henni
hefur dunið. Hún vill að sönnu geta
reynst skjól öllum sem til hennar
leita og virðist reiðubúin að líta í
eigin barm. Vonandi reynist hún
einnig fær um að bæta ráð sitt.
Reyndar fer ekki á milli mála að
viðhorfin og vinnubrögðin eru
önnur núna en fyrir fjórtán árum.
Fyrir það standa allir í þakkar-
skuld við konurnar sem á sínum
tíma komu fram og sögðu sögu
sína. Án þeirra væri kirkjan hugs-
anlega enn jafnúrræðalaus og þá.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson hefur
lagt til að veitt verði „Hetjuverð-
laun Þjóðkirkjunnar“ og að fórnar-
lömb Ólafs Skúlasonar verði fyrstu
verðlaunahafarnir. Að slík tillaga
sé sett fram sýnir kannski best hin
gerbreyttu viðhorf.
Það er þó ekki þar með sagt að
Þjóðkirkjan sé búin að bíta úr nál-
inni með þetta. Þær raddir urðu
um skeið háværar að Karli Sigur-
björnssyni bæri að segja af sér
vegna málsins. Að mínu mati
er sú krafa þó ósanngjörn. Þótt
honum hafi vissulega verið mis-
lagðar hendur þegar biskupsmálið
sneri aftur í haust verður ekki hjá
því litið að arfleifð hans í þessum
efnum verður sú að í hans biskups-
tíð var almennilegri skikkan komið
á þessi mál innan kirkjunnar. Ekki
skal fullyrt að hann beri sjálfur
alla ábyrgð á því, en það var á hans
vakt sem það gerðist og það hlýtur
að teljast honum til tekna.
Afdrifaríkt ár framundan
Úrsögnum úr Þjóðkirkjunni fjölg-
aði í kjölfar þessa máls, sem ekki
þarf að koma á óvart. Mörgum
finnst það eflaust vera það eina
sem í þeirra valdi stendur til að
láta í ljós óánægju sína í verki.
Aftur á móti leiðir könnun, sem
gerð var nýlega, í ljós að tiltölu-
lega fáir bera lítið traust til kirkj-
unnar í hverfinu sínu eða til sókn-
arprestsins síns. Hlutfallið er um
20% – svipað og hlutfall þeirra sem
ekki tilheyra Þjóðkirkjunni. Þótt
þetta sé e. t. v. ekki alfarið sami
hópurinn má gera ráð fyrir því að
hann telji að mestum hluta sama
fólkið. Úrsagnirnar bera því ekki
vott um óánægju með grasrótar-
starf kirkjunnar. Þeim mun sorg-
legri er sú staðreynd að úrsagnir
úr Þjóðkirkjunni hafa þau áhrif
ein að í stað þess að sóknargjöld
renni til sóknarkirkju renna þau
óskipt í ríkissjóð. Úrsagnirnar
bitna þannig á barna- og æsku-
lýðsstarfi, félagsstarfi eldri borg-
ara og annarri þjónustu kirkjunn-
ar í nærsamfélagi þess sem segir
sig úr henni, einmitt þeim þætti
í starfi kirkjunnar sem minnstur
styr stendur um. Flestar sóknir í
Reykjavík búa sig nú undir 15-20%
niðurskurð á næsta ári.
Árið 2011 verður afdrifaríkt í
sögu Þjóðkirkjunnar. Ósennilegt
er að ný stjórnarskrá lýðveldisins
geri ráð fyrir sams konar tengslum
ríkis og kirkju og 62. grein núver-
andi stjórnarskrár gerir. Kirkjunn-
ar bíður því mikið starf við endur-
skipulagningu sína. Æskilegast
væri auðvitað að óumdeildur leið-
togi stýrði því starfi, einstaklingur
sem ekki er flekkaður af yfirsjón-
um kirkjunnar í fortíðinni. Það gæti
því verið sterkur leikur hjá Karli
Sigurbjörnssyni að víkja úr starfi
einmitt af því tilefni. Þannig léti
hann hagsmuni kirkjunnar ganga
fyrir sínum eigin og tryggði að
engir fortíðardraugar setji svip á
þá mikilvægu skipulagsvinnu sem
inna þarf af hendi.
Einnig er mikilvægt fyrir trú-
verðugleika kirkjunnar að niður-
staða rannsóknarnefndarinnar
næsta sumar verði afdráttarlaus, að
kirkjan gangist undanbragðalaust
við henni og leggi hiklaust í hvert
það umbótastarf sem hún gefur til-
efni til. Því ef kirkjan getur dregið
einhvern lærdóm af atburðum árs-
ins 2010 er hann að mínu mati sá að
þótt það sé erfitt að læra af mistök-
um sínum er það þó, þegar til lengri
tíma er litið, ekki næstum því eins
erfitt og að gera það ekki.
Stóra biskupsmálið snýr aftur
Árið 2010 var síst þægilegra Þjóðkirkjunni en árið á undan hafði verið. Það ár hafði þó reynst kirkjunni hið erfiðasta í hálfan annan ára-
tug. Sögulok eða sagan endalausa spyr Davíð Þór Jónsson í grein um kynferðisbrot þjóna kirkjunnar og viðbrögð kirkjunnar við þeim.
KRÍSUFUNDUR Á BISKUPSSTOFU Herra Karl Sigurbjörnsson biskup og séra Geir Waage funduðu í sumar í kjölfar greinar séra Geirs
þar sem hann benti á algera þagnarskyldu presta. Á veggnum er málverk af séra Ólafi Skúlasyni en þessi mynd var síðar flutt á
minna áberandi stað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innlendir vendipunktar 2010
Fréttablaðið gerir upp árið með
greinum um innlenda vendi-
punkta eftir valda höfunda. Vendi-
punktarnir snúast um markverðar
fréttir og atburði sem gerðust á
árinu og gætu haft áhrif til fram-
búðar á Íslandi.
Davíð Þór
Jónsson er
mastersnemi í
guðfræði. Hann
er pistlahöfund-
ur í Fréttablað-
inu og tekur
þátt í starfi
kirkjunnar.
Kirkjunnar bíður
því mikið starf við
endurskipulagningu sína.
Æskilegast væri auðvitað að
óumdeildur leiðtogi stýrði því
starfi, einstaklingur sem ekki
er flekkaður af yfirsjónum
kirkjunnar í fortíðinni.