Fréttablaðið - 27.12.2010, Page 17

Fréttablaðið - 27.12.2010, Page 17
MÁNUDAGUR 27. desember 2010 17 Árni Bergmann rithöfund-ur skrifar á facebook-síðu sína nú um hátíðarnar: „Von er ekki spásögn um það sem verð- ur. Von er stefna sem hugurinn tekur þegar hann hefur ákveð- ið að eitthvað sé hægt að gera í málunum. Það þarf nefnilega að hafa fyrir voninni. En án hennar gerir heldur enginn neitt.“ Fagnaðarerindið Þetta er fagnaðarerindið í ár. Jólaguðspjallið. Holl áminning um hugarfar sem óskandi væri að við temdum okkur í ríkari mæli á nýju ári. Þar með er ekki sagt að við eigum öll að vera sammála um allt. Það er ekki hægt, allra síst þegar takast á voldugir hagsmunir og menn sem mikið eiga en fátt vilja láta af hendi eru enn jafn áhrifa- miklir í samfélaginu og raun ber vitni. En megum við samt ekki biðja stórnmálamenn og önnur stórmenni valdsins um að fara betur með orð? Megum við ekki biðja um örlítið bærilegra andrúmsloft í samfélaginu? Þetta eilífa nag, niðurrif og neikvæðniraus, sífelld brigsl um svikráð og landráð; þetta eilífa jag – „illt er það allt og bölvað, skítt veri með það og svei því“ – sem tröllriðið hefur íslenskri þjóðmálaumræðu: eigum við ekki að bindast samtökum um að hætta að næra það, hætta að leggja eyrun við því, hætta að hossa þeim sem það iðka? Enn erum við á ferð inni í dimmum göngum. Næsta ár verður mörgum ekki síður erf- itt en það sem nú er að líða. Hagtölur kunna að vitna um að íslenskt samfélag sé að rétta úr kútnum og mikill árangur hafi náðst í viðreisn efnahagslífs- ins en atvinnuleysi verður hér áfram landlægt með tilheyrandi erfiðleikum fyrir marga við að fóta sig í tilverunni. Það verður ástæða til að steyta hnefann yfir ýmsu á næsta ári, rétt eins og þessu: óskiljanlegar og siðlaus- ar afskriftir á skuldum kvóta- braskara, fyrirtækjaflakkara og veðsetningafursta gætu hald- ið áfram þótt viðkomandi hafi marg-fyrirgert öllum rétti sínum til fyrirtækjarekstrar. Áfram þurfa skilanefndir og slitastjórn- ir og hvað þetta valdafólk kall- ar sig nú aðhald fjölmiðla og almennings því að ekki kemur það aðhald frá stjórnvöldum. Við munum oft hafa ástæðu til að verða reið. En við megum ekki láta þá reiði trylla okkur. Aðildarviðræður að ESB verða áfram ásteytingarsteinn og skipta þjóðinni í tvær jafn- stórar fylkingar þvert á stjórn- málaflokkana. Eigum við ekki að reyna að gera það að einu höfuðverkefni okkar á þessu ári að takast á við þennan ágrein- ing, lifa með honum, ræða málið fram og til baka – því það hefur svo sannarlega ótal hliðar – án þess að láta þrasfíklunum eftir sviðið? Þau í þingflokki VG sem eindregnust eru í andstöðu sinni við þessar aðildarviðræð- ur mættu til dæmis minnast þess stundum – og bera virðingu fyrir því – að stór hluti kjósenda flokksins styður aðild Íslands að ESB án þess að vera eitthvað verra fólk eða minni umhverf- issinnar, jafnréttissinnar eða félagshyggjufólk en aðrir kjós- endur flokksins – eða þau sjálf. Og má ekki treysta því að úr því sem komið er þá verði reynt að ná sem hagstæðustum samn- ingi við ESB – en ekki sem allra óhagstæðustum? Samræður: samræði hugmynda Höldum endilega áfram að tak- ast á um æskilega skipan mála í þjóðfélaginu, því að þannig virkar opið þjóðfélag þar sem samræða er aðferð við að kom- ast að einhverju nýju fremur en valdbeitingartæki. Fjölmiðl- arnir, heimilin og kaffistofur fyrirtækjanna eru vettvangur þar sem hugmyndirnar mæt- ast, renna saman, gliðna sund- ur, splundrast, ljóma. Leiðum hugmyndir okkar saman, leyf- um þeim að æxlast, hafa blygð- unarlaus mök hver við aðra, en stöndum ekki samanbitin hvert á sínum kalda og staka steini hvæsandi hvert á annað. Látum ekki hatarana stjórna umræð- unni hér. Von er stefna. Von er ákvörð- un. Von er hugljómum. Hún fyll- ir okkur þegar við horfumst í augu við stöðu okkar. Hún vakn- ar þegar við hugsum. Ekkert er jafn allslaust og vonin. Og samt er hún voldug- asta afl í veröldinni. Enginn á hana. Enginn getur keypt hana og enginn getur selt hana – það er ekki einu sinni hægt að veð- setja hana og hún fæst ekki á kaupleigu. Við horfum á stöðu okkar. Það eru kannski skuldir, flækjur, klúður og ómælt vesen og ekkert sem bendir til að ástandið batni. En einmitt þá kviknar kannski allt í einu vonin. Við finnum þegar það gerist, um vökunótt, eða í sturtu eða í göngutúr: eitt- hvað kemur allt í einu yfir okkur og vonin kviknar. Hún kemur djúpt innan úr okkur. Hún kemur frá sál- inni í okkur – þessu undarlega og ómælanlega afli innra með okkur sem er ódauðlegt. Það eru kannski skuldir, flækjur, klúður og ómælt vesen og ekkert sem bendir til að ástandið batni. En einmitt þá kviknar kannski allt í einu vonin. Opið í dag 27.desember 12:00 - 18:30 Vonin blíð Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG AF NETINU Vísindamaður ársins á Íslandi Ég er kannski ekki fullkomnlega hlutlaus. En mér finnst allt of lítið fjallað um afrek íslenskra vísinda- og fræðimanna. Væri ekki tilvalið að taka upp þann sið að útnefna vísindamann ársins á Íslandi. Slík verðlaun hefðu sömu kosti og íþróttaverðlaunin. Ég er viss um að það er fullt af fólki sem hefði áhuga á því að lesa umfjöllun um „afrek“ 10 tilnefndra vísindamanna á þessum árstíma. Ekki síst væri gaman að geta gefið börnum og unglingum betri inn- sýn í það sem íslenskir fræðimenn eru að gera. Kannski myndi það vekja áhuga einhverra á vísindum og fræðimennsku. pressan.is/pressupennar/Lesa_ Jon_Steinsson Jón Steinsson 1991 Hugsa æ oftar um hvernig væri fyrir okkur komið hefðu sjálfstæð- ismenn komist að annarri niður- stöðu á landsfundi 1991. Er viss um að staða okkar væri önnur og betri. Allir öfgar eru af hinu verra. Flokkarnir standa á tímamótum. Sjálfstæðisflokkurinn er illa stadd- ur varðandi Evrópumálin, sama er að segja um Framsókn og VG. Sem á bágt yfir mörgu öðru, rétt einsog Samfylkingin. Framundan kann að verða mikil uppbrot í stjórnmálunum. Flokkar geta klofnað, nýir orðið til, bæði flokkar sem byggjast á þeim sem fyrir eru og eins flokkar fjarri núverandi stjórnmálunum. sme.midjan.is Sigurjón M. Egilsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.