Fréttablaðið - 27.12.2010, Blaðsíða 24
27. desember 2010 MÁNUDAGUR2
„Við Veraldarvinir erum nú með
áttatíu manna alþjóðlegan hóp
sjálfboðaliða sem ætlar að dvelja
hér um jól og áramót. Hópurinn
mun fara inn á dvalarheimili aldr-
aðra með smá skemmtidagskrá auk
þess sem hann hefur staðið vaktina
og gefið vegfarendum á Laugavegi
heitt súkkulaði undanfarin kvöld,“
segir Þórarinn Ívarsson, fram-
kvæmdastjóri Veraldarvina.
„Við höfum lagt áherslu á
það í gegnum tíðina að vinna að
umhverfisverkefnum,“ segir Þór-
arinn. „En í ár fórum við út í fjöl-
breyttari verkefni. Við höfum
sinnt betur verkefnum sem tengj-
ast fræðslu og skemmtun. Þessi
hópur samanstendur af fólki alls
staðar að úr heiminum, hér eru
einstaklingar frá 22 þjóðlönd-
um. Þeir komu hingað til að vinna
að þessum tveimur verkefnum,
skemmtunum á dvalarheimilum
aldraðra og kakóútdeilingunni á
Laugaveginum. Kakóútdeiling-
in er búin núna en á milli jóla og
nýárs fara þau á nokkur dvalar-
heimili með skemmtidagskrá sem
þau hafa æft stíft.“
Veraldarvinir reka verslun á
Hverfisgötu 59 og taka auk þess á
móti frjálsum framlögum. Í hvað
fara peningarnir? „Við erum núna
að safna fyrir verkefni sem Ver-
aldarvinir standa fyrir á eyjunni
Tierra Bomba í Karíbahafinu
undan ströndum Kólumbíu,“ segir
Þórarinn. „Á eyjunni er gríðar-
leg fátækt og er markmið Verald-
arvina að létta undir með íbúum
eyjunnar sem eru fjögur þúsund
talsins. Við munum til að mynda
ráðast í gerð brunna næsta sumar
en á eyjunni er ekkert ferskt vatn
í dag. Menntun íbúa er mjög ábóta-
vant og lítið sem bíður unga fólks-
ins í framtíðinni annað en vændi
og önnur sölumennska.“
Þessi hópur sjálfboðaliða er sá
stærsti sem hingað hefur komið
á vegum Veraldarvina. Kom það
ekkert á óvart að svo margir vildu
koma til fjarlægs lands um jólin?
„Við byrjuðum með þetta verkefni
um jólin í fyrra,“ segir Þórarinn.
„Þá komu hingað 35 sjálfboðalið-
ar svo þessi mikli fjöldi núna kom
svolítið flatt upp á okkur. En það
er greinilegt að Ísland hefur mikið
aðdráttarafl, líka um jól og ára-
mót. Ég er sannfærður um að það
væri hægt að laða hingað miklu
fleiri ferðamenn á þessum árstíma
en gert er.“
fridrikab@frettabladid.is
Sjálfboðaliðar frá tuttugu
og tveimur þjóðlöndum
Áttatíu manns frá 22 þjóðlöndum dvelja á Íslandi yfir jól og áramót á vegum Veraldarvina. Þeir hafa
skenkt vegfarendum á Laugavegi kakó fyrir jólin og munu skemmta á dvalarheimilum næstu daga.
Þórarinn Ívarsson ásamt hópi sjálfboðaliða Veraldarvina. FRÉTTABLAIÐ/STEFÁN
Jeppa- og vélsleðafólk sem á leið um Landmannalaugar og Veiðivötn
um jólin getur nú nýtt bæði farsíma og tölvur til gagnaflutninga. Ástæðan
er sú að Síminn hefur gangsett nýja 3G-farsímastöð á Snjóöldu.
Öll trúarbrögð, lönd og menningarsvæði hafa sín tímatöl og oft-
ast eru áramótin mikilvægur þáttur í menningarhefðinni. Gjarnan
fylgja stórar hátíðir áramótunum sem geta staðið yfir í marga daga
fyrir eða eftir áramótin. Þau eru stundum tengd árstíðum og bygg-
ir tímasetning þeirra á trúarlegum grunni.
Heimild: www.wikipedia.org
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
...ég sá það á Vísi
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!