Fréttablaðið - 27.12.2010, Page 25
MÁNUDAGUR 27. desember 2010 3
Miðvikudaginn 29. desember hefst söfnun á
efni í áramótabrennurnar hjá Reykjavíkurborg.
Tekið verður við efni á öllum brennustöðunum
frá klukkan 8 um morguninn til klukkan 19
um kvöldið. Þorgrímur Hallgrímsson, brennu-
kóngur og rekstrarstjóri á hverfastöð Fram-
kvæmda- og eignasviðs borgarinnar, hefur
sinnt því starfi í bráðum 30 ár. Hann segir efn-
issöfnunina ekki vera tækifæri fyrir fólk til að
losa sig við dót úr geymslum. Það eigi ekki allt
efni erindi á brennurnar.
„Það má einungis fara hreint timbur á brenn-
una. Ekkert unnið timbur eins og parket, mál-
aðar hillur eða plasthúðaðar innréttingar. Það
eru því helst fyrirtæki að koma með vörubretti,
umbúðakassa og því um líkt úr hreinu timbri.
Það eru mörg ár síðan reglur voru settar um
þetta fyrirkomulag og nú er til dæmis harð-
bannað að brenna dekkjum eins og var gert
hér í gamla daga.“
Starfsmenn hefjast svo handa við að hlaða
brennuna og er unnið að því fram á gamlárs-
dag en efnissöfnun lýkur á hádegi á gamlárs-
dag. Þá er haldinn fundur með brennukóngum
borgarinnar þar sem farið er yfir veðurspá
og útlit fyrir kvöldið en lögreglan gefur leyfi
fyrir brennu ef veðurútlitið er gott. „Það hefur
komið fyrir að við höfum orðið að fresta brenn-
unum vegna veðurs, fram á kvöld á nýársdag.
En það eru nokkur ár síðan það gerðist síðast,“ segir Þorgrímur. Brennustjóri kveikir svo í
brennunni klukkan 20.30 á gamlárskvöld ef
leyfi hefur fengist. Hlutverk brennustjóra er
að vakta brennusvæðið til miðnættis en starfs-
menn borgarinnar mæta síðan á svæðið kukk-
an tvö á nýársnótt með vatnsbíla og slökkva
í brennunni. „Þann þriðja janúar þarf svo að
hreinsa allt sem eftir hefur orðið á brennu-
svæðinu, svo sem nagla og annað sem liggur
eftir,“ segir Þorgrímur.
Brennurnar eru misstórar að sögn Þor-
gríms en það ræðst af aðstæðum á hverjum
stað. Brennurnar í ár verða á sömu stöðum og
í fyrra og rétt eins og þá eru stóru brennurnar
alls fjórar talsins og þær minni alls fimm.
heida@frettabladid.is
Hreint timbur á áramótabrennur
Brennur eru fastur liður í hátíðahaldi margra um áramót. Undirbúningur að brennunum hefst miðvikudaginn 29. desember þegar starfsmenn
Reykjavíkurborgar taka við efni í brennuna. Brennukösturinn er þó ekki ruslahaugur sem henda má hverju sem er á.
Brennur eru fastur liður í hátíðahöldum borgarbúa um áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BRENNUR Í BORGINNI UM ÁRAMÓT
1) Við Ægisíðu, stór brenna.
2) Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkju-
garð, lítil brenna.
3) Geirsnef, stór brenna.
4) Við Suðurfell, lítil brenna.
5) Gufunes, við gömlu öskuhaugana, stór
brenna.
6) Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
7) Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48-52, lítil
brenna.
8) Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnar-
völl, lítil brenna.
9) Fylkisbrennan, við Rauðavatn, stór brenna.
,
Nýársdagur er talinn
elsti hátíðisdagur í
heimi og má rekja
há tíðina allt til Babý-
lóníumanna 2000
árum fyrir Krist. Þá voru
áramótin 23. mars og
fylgdu vorkomu. Í þá
daga fögnuðu menn
áramótunum í ellefu
daga samfleytt.
Rómverjar héldu þeim
sið að halda áramót.
Á dögum Cesars voru
þau færð til 1. janúar.
Heimild:www.
doktor.is
Eingön
gu
tertur
!
Kóngurinn verður á staðnum!
Opnunartímar:
Mánudagur 27.des 10-22
Þriðjudagur 28.des 10-22
Miðvikudagur 29.des 10-22
Gamlársdagur 31.des 10-16