Fréttablaðið - 28.12.2010, Side 16
28. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Ástkær móðursystir okkar,
Gyða Jónsdóttir,
Kleppsvegi 2,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 29. desember klukkan 13.00.
Skúli Már Sigurðsson
Gísli Jón Sigurðsson
Örn Sigurðsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Ástríður Oddbergsdóttir
frá Ási í Nesjum,
lést á Hjúkrunarheimili HSSA þann 22. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarkirkju þann 29. desember
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Hjúkrunarheimili HSSA. Þökkum auðsýnda samúð.
Ásdís Marteinsdóttir Gísli Eymundur Hermannsson
Hrollaugur Marteinsson Sigríður Elísa Jónsdóttir
Anna Elín Marteinsdóttir Árni Sverrisson
barnabörn og þeirra fjölskyldur.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs eigimanns
míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Þórhalls Magnússonar,
fv. flugstjóra, Asparási 6, Garðabæ,
Hafdís Guðbergsdóttir
Guðberg Þórhallsson Sigrún Stefánsdóttir
Hulda Þórhallsdóttir Jóhann Kristinsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elsku systir okkar,
Guðríður Sigurðardóttir
Florida, Bandaríkjunum,
lést þann 29. nóvember sl. Bálför hefur farið fram.
Kveðjustund verður í Keflavíkurkirkju fimmtu-
daginn 30. desember kl. 15.00 og síðan jarðsett í
Hólabergskirkjugarði.
F.h. aðstandenda,
Sigurður Úlfar Sigurðsson
Ólöf Sigurðardóttir
Ásta Rán Sigurðardóttir
Elskulegi maðurinn minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
Erling Sigurlaugsson
bifvélavirkjameistari,
Nesbala 3, Seltjarnarnesi,
lést þriðjudaginn 21. desember. Útför hans fer fram
frá Seltjarnarneskirkju, fimmtudaginn 30. desember
nk. kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Parkinsonsamtökin á Íslandi.
Halldóra Sigurgeirsdóttir
Reynir, Rúnar, Ingilaug Erlingsbörn, Jóhann Kjartansson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elín Jónsdóttir Dungal,
Grensásvegi 58, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn
15. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 29. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Þorvaldsson Vallý Helga Ragnarsdóttir
Steinunn Kr. Þorvaldsdóttir Finnur Geirsson
Hilmar Á. Hilmarsson Guðfinna M. Sævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ingibjörg Þóra
Sigurgrímsdóttir,
Grænumörk 5, Selfossi, áður
Heiðarbrún, Stokkseyri,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands að morgni
24. desember. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju
fimmtudaginn 30. desember kl. 13.00.
Sveinbjörn Guðmundsson
Jóhann Sveinbjörnsson Ólöf Bergsdóttir
Einar Sveinbjörnsson Kristín Friðriksdóttir
Bjarki Sveinbjörnsson Sigrún Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðni Ágústsson,
Keilufelli 20, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 16. desember á Landspítalanum
Fossvogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 30. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ólafía Þorsteinsdóttir
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
56 DENZEL WASHINGTON leikari er 56 ára.„Heppni er þegar tækifæri kemur upp í hendurnar
á fólki og það er tilbúið að grípa það.“
Merkisatburðir
1887 Bríet Bjarnhéðinsdótt-
ir flytur fyrst kvenna hér-
lendis opinberan fyrir-
lestur í Góðtemplarahús-
inu í Reykjavík, um „Kjör
og réttindi kvenna“.
1894 Ofsaveður gerir af vestri
með allmiklum skaða,
miklu sjávarflóði og haf-
róti í Reykjavík.
1965 Eyja rís úr hafi skammt
frá Surtsey og er nefnd
Jólnir vegna þess að
goshrinan hófst á annan
í jólum.
1983 Vogur, sjúkrastöð SÁÁ
við Grafarvog, tekur til
starfa.
„Skólaljóð er dýrgripur sem geym-
ir úrval bestu ljóða færustu skálda
þjóðarinnar fram yfir miðja síðustu
öld. Því er vonandi að sem flestir njóti
hennar nú þegar hún er aftur orðin
fáanleg,“ segir Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir, forstjóri Námsgagnastofnunar,
sem í tilefni af 30 ára afmæli stofnun-
arinnar hefur endurútgefið Skólaljóð
á ný, en bókin hefur verið ófáanleg í
rúma tvo áratugi.
„Í gegnum tíðina hefur oft verið
rætt um að gefa út Skólaljóðin aftur
en útgáfa þeirra hefur ekki þótt
aðkallandi og alltaf annað sem hefur
haft forgang í þröngum fjárveiting-
um. Útgáfan nú er því hálfpartinn
lúxusverkefni og sannkölluð afmælis-
gjöf, enda alltaf verið mikil eftirspurn
og söknuður eftir Skólaljóðunum, og
margir sem tekið hafa ástfóstri við
bókina,“ segir Ingibjörg um Skóla-
ljóðin sem flestum er ógleymanleg
sem þykkur doðrantur í blárri kápu
og myndskreytt stórkostlegum teikn-
ingum Halldórs Péturssonar.
Skólaljóð komu fyrst út 1964 og var
mörgum sinnum endurprentuð þar til
hætt var að gefa hana út 1976.
„Nýja útgáfan er algjörlega óbreytt,
með upprunalegri stafsetningu, ljóð-
um og framsetningu, en færð voru
inn dánarár þeirra skálda sem lát-
ist hafa frá síðustu útgáfu bókarinn-
ar. Þá voru áður fyrr gefnar út skýr-
ingar við Skólaljóð sem nú má finna á
vef Námsgagnastofnunar, www.nams.
is,“ segir Ingibjörg sem einnig skrifar
nýjan formála í Skólaljóð nú.
Ingibjörg kannast vel við háværa
jafnréttisumræðu á tímabili vegna
fárra kvenskálda í Skólaljóðum. „Og
víst eru skáld bókarinnar allir karl-
ar utan tveggja kvenna, en við því
er lítið að gera því þannig var lífið
fyrr á tímum þegar karlar ortu ljóð
á kostnað tímaskorts kvenna,“ segir
Ingibjörg.
Hún segir marga tengja dramat-
ískar teikningar Halldórs við gömlu
Skólaljóðin, enda hafi þær hjálpað
börnum að læra þung ljóð utanbókar.
„Teikningarnar sitja í þeim sem
lærðu á bókina. Þetta var bogið fólk,
einhver sem sat einsamall og hnípinn,
Skúli á fleygiferð á Sörla, Erla góða
Erla í vöggunni sinni, kerlingin með
sálina hans Jóns míns í poka og annað
sem kveikti tilfinningar sem hjálpuðu
minni barna. Bókin er því einstök en
vissulega barn síns tíma því í henni er
ekkert borgarlandslag heldur íslenskt
sveitalíf, blóm, hestar, fjöll og náttúra
í öndvegi,“ segir Ingibjörg um Skóla-
ljóð sem nú þegar hafa verið pöntuð í
marga skóla landsins.
„Strax fyrstu dagana fór bókin út í
skólana í 1.400 eintökum. Skólastjór-
ar vilja enda að hún sé til í skólunum
þótt eftir eigi að koma í ljós hvern-
ig hún verður notuð. Eftir að útgáfu
Skólaljóða var hætt 1976 voru gefnar
út þrjár minni ljóðabækur fyrir þrjú
mismunandi skólastig grunnskólanna
og eflaust henta þær enn betur til
kennslu ákveðinna skólastiga. Gömlu
skólaljóðin má hins vegar nota með-
fram og á bókasöfnum, og svo eru
margir sem vilja eignast þessa bók
þótt orðnir fullorðnir séu því hún er
fagurt uppflettirit ljóða og dýrgripur
á hverju heimili.“
thordis@frettabladid.is
NÁMSGAGNASTOFNUN: ENDURÚTGEFUR SKÓLALJÓÐ Á 30 ÁRA AFMÆLI SÍNU
Bók sem margir hafa saknað
DÝRGRIPUR Hér situr Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstjóri Námsgagnastofnunnar í góðu yfirlæti við
notalegan lestur Skólaljóðanna góðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI