Fréttablaðið - 01.11.2010, Side 20
1. NÓVEMBER 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Myndlistarmaðurinn Derek
Mundell hefur hannað mynd-
skreyttan hæðarmæli sem
hentar að auki vel sem vegg-
skreyting í barnaherbergi.
„Þetta er í raun einföld hugmynd
eins og góðar hugmyndir eru yfir-
leitt og útfærslan þannig úr garði
gerð að bæði börn og fullorðnir
geti haft gaman af,“ segir lista-
maðurinn og myndlistakennar-
inn Derek Mundell. Hann hefur
hannað hæðarmæli sem spannar
50-200 sentimetra þar sem hægt
er að skrá inn hæð barna.
Hæðarmælirinn fæst í tvenns
konar útfærslum með myndum
eftir Derek, sem hefur
fengist við vatnslita-
málun í áratugi. „Upp-
haflega gaf ég sitt-
hvoru barnabarn-
inu mínu í jólagjöf
svona hæðarmæla með
myndum af gíröffum
fyrir tveimur árum og
þeir vöktu mikla kát-
ínu, síðast sá ég mynd
af dóttur dóttur minni á
Facebook þar sem hún
var að mæla dúkkuna
sína. Börn hafa auðvit-
að ekki síður en full-
orðnir gaman af því að
mæla hæð, sína eigin og
annarra, og þannig datt
mér í hug að þróa mál-
verkin áfram út í heila
vörulínu.“
Derek lét skanna inn
þriðju myndina sem hann málaði
og prenta á sterkt og endingar gott
seglefni. Útkoman þótti honum
svo vel heppnuð að hann lét ekki
við staðar numið heldur gerði
annan hæðarmæli með mynd af
Seljalandsfossi þar sem fuglar og
önnur dýr eru stef og hannaði að
auki gjafaumbúðir, myndskreyttan
kassa.
Plakötin segir Derek ná-
kvæma eftirmynd af frumgerð-
inni og einfalda í uppsetningu.
„Hæðarmælinn má hengja upp á
nagla, 230 sentimetra frá gólfi,
og taka svo niður eða færa eftir
þörfum. Þetta er því um leið falleg
veggskreyting í barnaherbergið,
tilvalin í sængur- eða skírnar-
gjöf,“ segir hann
og getur þess að
mælirinn fáist í
völdum verslun-
um, Móðurást,
Bókabúð Máls
og menningar og
Hrím hönnunar-
húsi á Akureyri.
Spurður hvort
til standi að hanna
aðrar vörur eða
útfæra hæðar-
mælinn á fleiri
vegu segist Derek
ætla að bíða um
sinn og sjá hvernig
viðtökur vörulín-
an fær. Bætir við
að vitanlega væri
gaman að fá tæki-
færi til að hanna
fleiri verk. - rve
Geta borið hæð
sína saman við
gíraffa og fossa
Derek segir vini og ættingja hafa hvatt sig áfram til dáða. „Það er þeim að þakka að
ég fór út í þessa hönnun.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grasþök eru vel þekkt hér
á landi eins og gefur að
skilja, enda helsta þakefn-
ið sem notað var frá land-
námi fram á 19. öld. Eftir
að hafa látið undan síga á
20. öld hafa grasþök aftur
orðið vinsælt byggingar-
efni á undanförnum árum
og er gjarnan gripið til
þeirra þegar fella þarf
byggingar vel að umhverfi
sínu. Nú má í þéttbýli víða
sjá grasþök á bílgeymsl-
um og öðrum stórum
byggingum með fremur
flöt þök. Þá er vinsælt að
hafa grasþök á sumarbú-
stöðum og fleiri bygging-
um í sveitum landsins.
Helsta vandamál við
notkun gróðurs á þökum
tengist vatnsbúskapnum
vegna þess hve vaxtar-
lagið er oftast þunnt og
lítið rakahelt. Í þurrki
hættir grasinu til að
skrælna og jafnvel drep-
ast; þar af leiðandi er
mikilvægt að hægt sé
að vökva í langvarandi
þurrkatíð til að halda grasinu lifandi.
Í nágrannalöndum okkar hefur áhugi fyrir gróðurþökum (e. green
roofs – eco roofs) aukist og ýmsar aðferðir verið þróaðar til þess að láta
ræktunina ganga upp. Algengt er að nota hnoðra (Sedum spp.) og aðrar
þurrkþolnar tegundir fremur en gras í gróðurlagið. Valdar eru tegund-
ir sem gera litlar kröfur til vaxtarlags, næringar og viðhalds.
Sem dæmi má nefna að Kaupmannahafnarborg hefur sett sér það
markmið að allar nýjar opinberar byggingar með þakhalla undir 30°
verði uppbyggðar með gróðurþekju á þaki og að við endurnýjun eldri
þaka með flatt yfirborð verði einnig notuð gróðurþekja. Markmiðið
með þessum aðgerðum er meðal annars að minnka álag á holræsakerfi
boraginnar sem hefur aukist mikið í samræmi við aukið úrkomumagn í
rigningum.
Þrátt fyrir meiri kostnað við uppsetningu grænna þaka en hefðbund-
inna má færa rök fyrir því að kostirnir séu
margir og að uppbyggingarkostnaðurinn
sé jafnvel lægri til lengri tíma litið.
Útlitslegur ávinningur er ótvíræður.
Græn þök eru yfirleitt falleg á að
líta og setja sterkan svip á bygg-
ingar og umhverfi sitt.
Lesa má meira um græn þök á
heimasíðunni www.horticum.is
Um græn þök
GARÐYRKJA & UMHVERFIÐ
MAGNÚS BJARKLIND GARÐYRKJUTÆKNIR
KOSTIR GRÆNNA ÞAKA
ERU MEÐAL ANNARS...
• Aukinn líftími þakefna því gróður-
þekjan verndar yfirborðið gegn veðrun
og sólarljósi.
• Lækkun húshitunarkostnaðar vegna
þess að gróðurþekjan er einangrandi.
• Betri hljóðvist þar sem gróðurþekjan
er hljóðeinangrandi og verndar þar af
leiðandi gegn hávaðamengun.
• Aukin líffræðileg fjölbreytni. Ýmsar
plöntutegundir þrífast á þökum auk
skordýra, annara smádýra og örvera
þannig að til verður sérstakt lífríki uppi
á þaki.
• Betri miðlun regnvatns, aukin úrkoma
veldur álagi á holræsakerfum. Gróður-
þök hægja á rennsli og binda stóran
hluta þess vatns sem fellur á þakið.
• Gróður grænna þaka bindur CO2, ryk
og mengun. Einnig hafa rannsóknir
sýnt að gróðurþekjan verndi gegn raf-
segulbylgjum.
• Lækkun á kælikostnaði á svæðum þar
sem hitastig er hátt og nauðsynlegt er
að nota loftkælingu.
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt teppi á stigaganginn –
nú er tækifærið !!!!
Eitt verð - niðurkomið kr. 6.130 m2
Verðdæmi:
70 fermetra stigahús með 8 íbúðum
Heildarverð kr. 429.100
Endurgr. VSK og meðal skattaafsl (68.460)
Raunverð kr. 360.640
pr. íbúð aðeins 45.080
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðar lausu