Sameiningin - 01.09.1906, Side 7
199
Árið 1876 kom þessi áskoran frá Stanley, Afrikufaranum
fræga, úr höfnSstað Mtesa konungs: „SencÍiö kristniboöa til
Ugancla." Næsta ár voru átta slíkir erindsrekar sendir á stað,
og komust þrír þeirra alla leið. Mtesa konungr tók vel á móti
þeinr og veitti þeim leyfi til að starfa, en ekki var það fyrr eu
ári) 1882. að tyrstu menn voru hjá þeim skírðir — fimm að
tölu. Árið 1884 andaöist konungr, og brauzt þá út voðaleg of-
£ókn gegn kristnum mönnum undir stjórn hins nýja konungs,
og týndi hinn litli söfnuðr þá tölunni um 200 manns. Meðat
pislarvottanna var Hannington biskup, sem var rétt nýkomina
þangað. Síðustu orð hans voru þessi: „Segið Muanga, að eg
hafi lagt blóð mitt í sölurnar fyrir það að komast hingað og að
cg læt lífið fyrir fólkið hér í Uganda.“ Undir vernd brezku
stjórnarinnar komst landið 1890, og fengu kristniboðar þá að
vmna verk sitt í friði, og árið 1893 kom þar fyrir trúarvakning,
sem er einstœð í sögu missíónarinnar. Þá voru þar 20 kirkjur
og bœnahús — segir Pilkington trúboði, en 200 árið eftir, og
tók starsta kirkjan 4.500 manns. Á hverjum morgni söfnuðust
að meöaltali víðsvegar um landið tíu þúsundir manna til bœna-
halds og biblíulestrs og á sunnudögum helmingi fleiri, og vakn-
ingaraldan magnaðist óðum. Þá er Tucker biskup hafði veriS
þ-ar í tíu ár. var ávöxtrinn af starfseminni orðinn hundraðfaldr.
úr hópi 300 skirðra manna árið 1891 voru þá orðnar 30 þús-
undir, og tala þeirra, sem fluttu fagnaðarboðskapinn, hafði vax-
ið frá 20 til 200 o. s. frv. Nú telst svo til, að þar í landi sé
i,ioo kirkjur og kristin samkomuhús; tala þeirra, er opinber-
ar guðsþjónustur sækja, 100 þúsundir, og sunnudagsskólar
fjrir 50 þúsundir barna. Vakningin hefir fœrzt út til Toro-
lands og fjöldi innfœddra rnanna hefir lagt á stað heiman frá
str í kristnibeðsferðir. Því’íkar sigrvinningar! Fvr’r rúmum
tuttugu árum alls enginn kristinn maðr, en píslir og blóðstraum-
ar til þess að fullnœgja grimmd ofsafengins harðstjóra, og heil
þióð í stöðugri clauða-angist; ..en ef þú nú“—segir e:nn. sem
nákunnugr er ástandinu eins og það er og var— „nemr staðar
t»m sólarlag á einni hinna mörgu keilumynduðu hæða þar ?
iandi og lítr vfir dalinn með hinum blaktandi banana-tr]á.m, þá
beyrir þú fkvndilega bumbuslög kveða við allt um kring. Hvað
er þetta?—spyr þú. Og þú fær þetta svar: Á þennan hátt er
almenningr ktaddr saman til kristilegra kvöldbœna; og brátt
munt þú heyra sálmalögin gömlu ensku koma til þín upp stíg-
ancli r.eðan úr d.alnum.“