Sameiningin - 01.09.1906, Page 15
207
cn þar kom mönnum saman um aö mynda ísl. söfnuö með trixar-
játning' og lögum kirkjufélags vors. Var hann nefndr Edmon-
ton-söfnuör. Fulltrúar valdir: Jón Pétrsson, Jón Johnson, Ivarl
J. Vopni, Jón Guömundsson og O. T. Jónsson.—Flestir þeirra,
sem hér eru aö verki, eru vel þekktir aö framkvæmdarsömum
áhuga fyrir kristindómsmálum vorum, svo þaö eru gildar ástceö-
tir til þess aö byggja góðar vonir á þessari byrjun. P. Plj.
Kirkjur hafa aldrei áör verið eins jafn-illa sóttar í WinnG
peg urn miðsumarmánuðina eins og nú í ár. Það, sem því
veldr um fram allt, er burtför fjölda fólks úr bœnum á. þess-
ar: árstið eitthvaö út á land, þar sem loft er hreinna og heil-
næmara, meðal annars norðr . að Winnipeg-vatni. Islendingar
taka drjúgum þátt í þessari hreyfing. Sumir þeirra eiga og
nú sérstök sumarhíbvli þar nyröra, bæöi á Whitewold Beacli
og Gimli.—Strætisvagnagöngur á sunnudögum, sem nýlega
hafa komizt á, draga og sennilega fleira fólk frá kirkjununt
en til þeirra. Þetta getr þó lagast, er fram líöa stundir. En
kyrrðin á strætum úti hér í bænum á hvíldardögum, sem aö
undanförnu hefir verið ríkjandi, kentr aldrei aftr.
Séra Friðrik J. Bergmann feröaöist seint í Ágúst i kirkju-
lcgum erindum vestr í íslendingabyggöirnar í Saskatchewan og
Alberta, aöaliega til þess aö safna fé upp í laun hans fyrir is-
lenzkukennsluna í Wesley College. Tvo sunnudaga meðan hann
var burtu prédikaði Karl Ólson frá Gustavus Adolphus College
í St. Peter, Minn., í hans stað í kirkju Tjaldbúðarsafnaðar hér
í bænutn. En næst þar á undan vann hr. Ólson að missíónar-
starfi hjá Furudalssöfnuði (Tine ValleyJ, Man., og í Roseau-
byggöinni islenzku þar fyrir sunnan í Minnesota
Séra Rúnólfr Marteinsson hefir nýlega heimsótt Álfta-
vatnsbyggð og Grunnavatnsbyggð — austr frá Manitoba-vatni
—°8' dvalið þar i missíónarerindum þrjár vikur (í Ágúst og
SepíemberJ.
Hr. Rúnólfr Fjeldsteð hefir í seinni tíö rekiö sama starf
ívrir kirkjufélagiö í Foant Eake byggð og nágrenni vestr í
Saskatchewan. Þar á undan Jxjónaði hann stuttan tíma Swau
River söfnuði.
Fi*á Öllu þessu missíónarstarfi verðr væntanlega nákvæm-
ar skýrt í næsía „Sam.“-blaði.
------o—------