Sameiningin - 01.09.1906, Blaðsíða 28
220
l'Cmið, hvort ykkur finst skóla-veran góð á bragðið eða ekki.
Munið það.
Ef þið notið tímann ykkar í skólanum vel—eruð iðin, Jmgs-
ið vel nm það, sem þið cruð að lœra, takið vcl cftir, cruð ckki
r.xeð hngann út um hnippinn og hnappinn cða mcð augun alls-
siaðar annarsstaðar cn þau eiga að vcra—ef þið notið tímann
ykkar á skólanum þanni?, þá mun ykkur þvkja vænt um
skóla-veruna ykkar. Og þá þakkið þið guði fyrir hana og íor-
eldrunum ykkar líka, sem hjálpuðu vkkur ti.1 þess að vera 1
skólanum. Guð h'essi ykkur skóla-veruna ykkar.
------o-------
Gott félag.
Á Englandi myndast allskonar félög. Mætti því ka.'.j, það
móðurhi imkynni hinna mörgu félaga, Nú hefur ný-ruyndast
þar félag eitt íynr börn, sem kallað er „fclag góðra siða".
Börn frá 5—-'5 fra að aldri geta tilheyrt þvi.
Megin-reghir félagsins eru lesnar upp fyrir félags-iimur.i
einu sinni í hverri viku. En þær eru þessar:
1. Hcima: Hjálpaðu foreldrum þínum. Vertu góður við
systkini þín. Vertu ekki eigingjarn. Legðu alt kapp á að vera
foreldrum þínum til ánægju.
2. 1 skólanum: Berðu virðingu fyrir kennurum þinum.
Hjflpaðu þeim það, sem þér er unt. Hlýddu reglum skólar.s
vandlega. Skerðu ekki í borð né bekki, og ataðu ekki bæk-
innar. Láttu aldrei hegna neinum í staðinn fyrir þig.
3. / lcikjum: Skemtu þér, en forðastu ofsa-kæti. Vertu
ckki ófriðsamur né deilugjarn. Gerðu ekki gys að leikbræðr-
um þínum eða leiksystrum.
4. Á strcctum: Víktu ætíð úr vegi fyrir fullorðnu fúlld.
Hæðstu ekki aö lasburða gamalmennum. Hjálpaðu þeim held-
ur, ef nauðsynlegt er. Fleygðu ekki apelsínu-berki né paopirs-
blöðum á strætin.
5. Við borðið: Láttu ekki matinn með hnífnum upp í þig;
borðaðu heldur nteð gafflinum. Taktu eftir, hvort sessunaut-
ar þinir við borðið þurfa nokkurs, einkum þeir, sem næstir hér
sitja. Hugsaðu ekki eingöngu um sjálfan þig. Talaðu ekki
nieð fullan munninn. Legðu ekki handleggina upp á borðið.
6. / tilliti til sjálfs þín: Vertu ráðvandur, sannorður og lát-
laus. Brúkaðu engin ósæmileg orð. Vertu ætíð sómasamlega
til fara. Og sýndu þig aldrei »neð óburstaða skó né í óburst-
uðum fötum.