Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1951, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.12.1951, Blaðsíða 4
82 Sameiningin að mestu á mis við alla formlega menntun, en með stöðugri ástundun og eftirtekt tókst honum að afla sér mikillar fræðslu. Átta ára gamall var hann settur á smalaþúfuna í heimasveit sinni, og sat hana jafnan síðan á meðan að hann dvaldi á ættjörðinni, að undanteknum nokkrum síðustu ár- unum er hann stundaði almenna bændavinnu í sveit. Er hann hafði keypt farbréfið til Ameríku, sumarið 1886, átti hann bókstaflega ekkert til nema fötin sem hann stóð í og litla ferðaskrínu, en hið eina verðmæta í henni var eintak af Prédikunum Helga biskups Thordarsen. Hér lagði hann margt á gjörva hönd fyrstu árin. Hann vann við lagningu járnbrauta, gerðist vinnumaður bænda, varð eldiviðarsali, hjarðmaður, kolamokari, flutningsmaður á fólki og farangri, og síðast brautryðjandi á sviði sem engum íslenzkum manni hafði áður hugkvæmst að gera að aðalatvinnugrein og ævi- starfi, hann gerðist útfararstjóri. Þetta fyrirtæki, sem nú mun eitt af þeim glæsilegustu þeirrar tegundar í Vestur-Canada, mun lengi varðveita nafn hans frá fyrnsku. En þeir sem áttu samleið með honum ein- hvern hluta æviskeiðsins minnast hans sem hins mikla dugnaðarmanns og mannvinar. Hérlendir menn virtu hann og viðurkendu hæfileika hans ekki síður en landar hans. Ýmsar stöður og embætti sem hann var kjörinn til báru þessa vott. Um tuttugu og fimm ára skeið var hann Stór Templar I.O.G.T. reglunnar, og sat á alþjóðaþingum hennar sem fulltrúi Canada á ýmsum árum bæði í Noregi, Dan- mörku, Svíþjóð, Englandi og Hollandi. Þótt hann væri farinn að kenna vanheilsu tók hann sér ferð á hendur til Minne- apolis, seint í júnímánuði í sumar til að sitja þar hundrað ára afmæli reglunnar. í seytján ár var hann bæjarráðsmaður fyrir North Kildonan, og um nokkur ár var hann einnig formaður Útfararstjóra-sambands Manitoba fylkis. Forseti Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg var hann einnig um skeið. Arinbjörn var gæddur miklu líkamsþreki. Hann gekk jafnan berhöfðaður að hætti ungra manna hvernig sem viðraði. Hann stundaði íþróttir af kappi, boltaleik á sumrin og grjótkast (curling) á vetrum. Á hverju hausti fór hann á dýra og fuglaveiðar, var hann þá oft fengsæll. Var harð- fengi hans og áhugi á slíkum ferðum oft svo mikið að helm- ingi yngri menn áttu fult í fangi með að fylgjast með honum.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.