Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1951, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.12.1951, Blaðsíða 11
Sameiningin 89 London Life lífsábyrgðarfélagsins. Um mörg síðari ár var hann þjónandi prestur í söfnuðum United Lutheran Church in America: í Seattle, Washington, Foam Lake, Sask., Flin Flon, Man., og í Stanford og Columbus í Nebraska-ríki í Bandaríkjunum. Árið 1913 kvæntist hann Ólöfu Sveinfríði Sveinsson frá Gimli, hún andaðist 31. des. 1925. — Þann 4. ágúst 1942 kvæntist hann Ástu Laufey Johnson frá Selkirk, er syrgir hann ásamt fjórum börnum af fyrra hjónabandi. Þau eru: Katrín Margaret, Winnipeg; Ingibjörg Lillian, Mrs. A. Lane, Ottawa; Carl Jónas, Winnipeg; og Gísli Robert, Ottawa; og einn bróður O. G. Olson, Henning, Minn. — Séra Carl var alla ævi heitur og ákveðinn trúmaður; ljós trúarinnar hafði göfug kristin móðir tendrað honum í brjósti; var trúin á Guð og handleiðslu hans honum jafnan ljós á leið í breytilegri ævireynslu hans, jafnt í einstæðings- skap lífsins og sorgum þess sem á björtum dögum, er alt lék í lyndi; jafnt í breytilegum kjörum og óvissu lífs og aðkasti þess og dómum — sem prestar ekki síður en aðrir menn verða að þola. Öllu því er lífið að honum rétti, mætti hann með hugprýði þess manns er Guði treystir — og veit. að dómar hans einir hafa varanlegt gildi. Séra Carl var um margt óvenjulegur maður; ávalt hress og glaður í viðmóti, hinn glæsilegasti í háttum og framkomu. Til daganna enda réði áhugi og bjartsýni lögum og lofum í huga hans. Yér sem áttum óslitin og náin kynni af honum um mörg hjáliðin ár söknum vinar í stað þar sem hann er nú genginn grafarveg — autt sæti í hópi vina er eftirskilið við burtför hans. Það var alkunnugt vor á meðal að séra Carl var óvenju- lega mælskur og áhrifamikill kennimaður; evangelískur í anda og kenningu, hjartahlýr prestur, er taldi það jafnan æðstu gleði að boða samtíð sinni fagnaðarerindi Jesú. — Hann var dáður af mörgu safnaðarfólki sínu hvar sem hann var þjónandi prestur, elskaður af ungu fólki er hann uppfræddi og fermdi. Mjög ákveðnar skoðanir hafði hann á hverju máli er hann lét sig skipta og fús til baráttu í þarfir þess, án alls tillits til afleiðinga slíkrar varnar fyrir sjálfan hann eða framtíð hans. Þótt fæddur væri hann og uppalinn hér vestra, bar hann djúpa ást í brjósti til ættlands síns og erfða þeirra,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.