Sameiningin - 01.12.1951, Page 12
90
Sameiningin
er íslendingum hafa í hlut fallið; hann unni íslenzku máli,
gætti orðgnóttar hans þar litlu miður en í meðferð enskrar
tungu.
Á þessu vori voru 40 ár liðin frá prestsvígslu hans.
Hafði hann átt margbreytilega reynslu sem prestur safn-
aða, í sveitum, bæjum og borgum. Starf hans í Columbus,
í stækkandi bæ, fór stöðugt varxandi; inntu þau hjónin þar
af hendi mikið starf, undir örðugum kringumstæðum. Það
sýnir tiltrú þá er séra Carl naut meðal starfsbræðra sinna,
að er hann lézt var hann forseti Lúterska prestafélagsins í
Mid-Nebraskaríki (8 counties), en einnig forseti Almenna
prestafélagsins í heimabæ sínum og umhverfi. —
Hann háði langt sjúkdómsstríð er leiddi til dauða hans,
er bar að höndum 10. sept. árdegis; mætti hann sjúkdóms-
stríði sínu og dauða með karlmennsku og ró. Deyjandi mað-
ur boðaði hann gleðiboðskapinn sem hann unni á hverjum
helgum degi. Síðustu messugjörð flutti hann 1. júlí s.l. —
Við hlið hans í hinu síðasta stríði, sem og í starfi síðari
ára stóð eiginkona hans og létti byrði hans að því leyti
sem hún var megnug til — og lagði fram ítrustu krafta
sína. — Kveðjuathöfn fór fram í Columbus, miðvikud. 12.
sept. undir stjórn forseta Nebraska Synod, en ýmsir prestar
voru þátttakendur.
Útför hans fór fram frá útfararstofunni í Selkirk og
lútersku kirkjunni 15. sept. Hann var jarðsunginn af sóknar-
presti þar, einnig talaði Dr. Rúnólfur Marteinsson, en Miss
Ingibjörg Bjarnason söng einsöngva. Jarðsett var í grafreit
Selkirksafnaðar.
Á ö'Örum staÖ hér í blaÖinu birtist grein eftir frú Jakobínu Johnson
í Seattle, Wash. um dr. Frederick A. Olafson, yngsta son séra Kristins
K. Olafson, og látinnar konu hans, FriÖriku. Birtist grein þessi nýlega
í ,,Kvöldvöku“ hinu spánýja en gagnmerka bókmenntatímariti Snæ-
bjarnar Jónssonar, fyrrum bóksala í Reykjavík. Sameiningunni er
einkar ljúft aÖ endurprenta þessa grein, og samgleÖst fyrverandi rit-
stjóra sínum, og fööur hins unga manns meÖ hinn glæsilega og sér-
stæÖa námsferil sonarins. pað bar snemma á því aÖ Frederick var
öðruvísi en almennt gerist um börn. Stilling hans, skarpleiki og at-
hyglisgáfa var frábær. Undrar oss því ekki að frétta um óvenjuleg
námsafrek hans nú, eða um fræðimannleg afköst hans síðar.
Saiiieiiiiiigin óskar honum láns og langra lífdaga.