Sameiningin - 01.12.1951, Síða 13
Sameiningin
91
Sálmur
Eftir WILLIAM WALSHAM HOW biskup
(1823—1897)
Fyrir þá alla; er fá nú hvíld hjá þér,
en forðum trúarstyrkir börðust hér,
þér vegsemd, Jesú, þökk og heiður ber.
Hallelúja, hallelúja.
Þú varst þeim sjálfur varnarskjólið traust,
á voðans stund þeir heyrðu þína raust,
og geisli frá þér gegnum sortann brauzt.
Hallelúja, hallelúja.
Ó, mættum vér gegn heimi heyja stríð
sem helgir vottar þínir fyrr og síð,
og öðlast krónu lífs, er lýkur hríð.
Hallelúja, hallelúja.
Ó, helga sveit, — þér háu dýrðarmenn,
þér hljótið hvíld, — vér berjast þuríum enn,
í Guði eitt vér erum þó í senn
Hallelúja, hallelúja.
Þótt hugdirfð bregðizt, hjartans kólni glóð,
ó, heyr! I fjarska ómar sigurljóð,
sem hjörtun styrkir, hressir dapran móð.
Hallelúja, hallelúja.
í vestri kveldsins bjarmi boðar frið,
og brátt fær hvíld hið þreytta, trúa lið,
og Paradísar heilagt opnast hlið.
Hallelúja, hallelúja.
En sjá þó, — ennþá dýrri dagur skín,
er Drottinn kallar trúu börnin sín
til lífs í sælu, sem ei framar dvín.
Hallelúja, hallelúja.
Af sæ og landi, suðri’ og norðri frá,
í sigurgöngu mætzt er himnum á
og sungið Föður, Syni’ og Anda þá:
Hallelúja, hallelúja.
Vald. V. Snævarr, þýddi