Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.09.1953, Blaðsíða 5
Sameiningin 51 hans og fyrirheit rættust öll. Hann birtist þeim upprisinn oft og mörgum sinnum. Þeir lifðu sína gleðidaga. En gleði þeirra var skammvinn, eins og öll jarðnesk gleði jafnan er. Þeir fengu þó enn að líta meistara sinn í andlegri sýn. Hann birtist þeim á sumum þeim stöðum, sem tengdir voru helgustum minningum frá jarðlífi hans. Betaníu, — hinn heilaga bænastað, þar sem allt talaði ljúfum minningum og helgum, — valdi hann svo til síðustu samfundanna, þar sem hann birtist þeim hinzta sinn upprisinn og hvarf þeim sýnum í skýi. Undarleg reynsla, en sjálfri sér samkvæm þó frá öld til aldar í lífi ófullkominna manna. Harmi lostnir stóðu þeir, lærisveinarnir, og horfðu til himins. Harmi lostin og skefld stöndum vér enn í dag, mannanna börn, og horfum eftir ástvinum vorum, sem hverfa oss sjónum inn í ský hins óþekkta, inn í skýjabakka dauðans. Þótt milli lífs og dauða sé ekki nema fótmál eitt, þá eru þau landamæri þó jafnan þeirri móðu hulin, sem mannleg augu fá ekki séð í gegnum. Þar hvílir það ský yfir, sem byrgir oss sýn inn á framtíðarlandið og vekur flestum geig í barmi. Þar nemur hjól tímans staðar. Þar stöðvast alira spor. Þar er Betanía aldanna, — kynslóðanna bæna- og helgilundur, en orðinn oft að þeim skýjabakka, sem reynist oss óyfirstíganlegur múr. Gagnstætt því, sem vera ætti, er á þeim landamærum sá veggur, sem jarðnesk augu vor fá hvorki séð yfir né í gegnum, — aldanna og kynslóðanna mikli grátmúr, segja þeir, sem horfa á efnið eitt og telja það upphaf og endi allrar tilveru. „Hvað veldur?“ spyr fávís maður, sem langar til að þekkja alla hluti. Já, hvað veldur mannlegri þjáning og hjartakvöl? Hví gráta menn og stara stjörfum augum í skýið? — „Alfaðir, taktu ekki aleiguna mína! Alfaðir, réttu fram hönd.ina þína!“ •— Hve margur mun ekki bera fram þetta bænar- andvarp við Heljarhlið, ■— við aldanna dökka grátmúr, þar sem ástvinirnir hverfa inn í ský dauðans? Hve daprir voru þeir ekki forðum, lærisveinarnir, er þeir misstu sjónar af drottni sínum, bæði í Heljarraun hans á Golgata og eins þá, er ský nam hann frá augum þeirra á hinum helga bænastað þeirra, Betaníu. Og hann hvarf til himins.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.