Sameiningin - 01.09.1953, Síða 19
Sameiningin
65
hugsanirnar ef til vill orðið nokkuð dreifðar; en upphaíið
var boð Calvary (Hallgríms) safnaðar í Seattle til kirkju-
félagsins að halda kirkjuþing í kirkju hans, og nú vil ég
hverfa aftur til Seattle og láta lokahugsunina hvíla þar.
Prestshjónin í Seattle, séra Eric Sigmar og kona hans,
ásamt söfnuðinum í heild og bæjarfólkinu íslenzka gjörðu
alt sem þeim var unt til að gjöra þetta mót unaðslegt og
uppbyggilegt. Kirkjuþingsmenn fengu ágæt dvalarheimili
í borginni, sömuleiðis ljúffengar máltíðir í samkomusal
kirkjunnar. Söngflokkur safnaðarins með fögrum, unaðs-
legum söng sínum gaf kirkjuþinginu dásamlegan blæ og
lyfti hug og hjarta á hærra svið. Andlega og líkamlega var
alt gjört gestunum til ánægju og málefni kirkjunnar til
blessunar. Allir þátttakendur voru þakklátir fyrir komuna
til Seattle og ánægðir með veruna þar.
Þau prestshjónin, séra Eric og kona hans, fengu ársfrí
frá safnaðarstarfinu. Þau dvelja nokkra mánuði á íslandi
og ferðast víðar um Norðurálfuna. í fjarveru þeirra þjónar
séra Octavíus Thorlakson, frá Berkeley, California, móður-
bróðir séra Erics, söfnuðinum. Guð blessi söfnuðinn og
starfið í Seattle og ferðalag þeirra hjónanna.
Guði sé lof fyrir kirkjuþingið hjá Calvary söfnuði í
Seattle. Rúnólfur Marteinsson
Sáimur 150
Hallelújah.
Lofið Guð í helgidómi hans,
lofið Guð í himingeimi hans.
Lofið hann vegna hárrar tignar hans,
lofið hann vegna mikils máttar hans.
Lofið hann með lúðurhljómi,
lofið hann með symfonsómi.
Lofið hann með lofsöngshætti,
lofið hann með gígjuslætti.
Lofið hann með strengleik stríðum,
lofið hann með bumbum þýðum.
Lofi Guð allt sem andann dregur,
lofi Guð allt sem tilvist hefur.
Hallelújah. Ásgeir Magnússon