Sameiningin - 01.11.1943, Blaðsíða 3
áÉ>amemtngin
Alánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi Isl. í Vesturheimi.
58. ÁRG. WINNIPEG, NÓV., 1943 Nr. 11
Sálmur
Beneath the Cross of Jesus.
Við kross þinn, Jesús Kristur,
eg kýs mér staðinn minn,
í náðar-skuggaskjóli hans
eg skjólstað minn þar finn.
Þótt einmana, eg fæ þar fró
og frið í allri neyð,
í öngþveitinu á þar stoð,
já, alt í Jífi’ og deyð.
Á krossi þínum, Kristur,
eg kenni þína mynd
og kvalafár, er fórnar þér
þú fyrir mína synd.
Frá hjarta snortnu hrynja tár,
mig hrífur krossinn þinn,
er ástar þinnar undur lít,
en óverðleika minn.
Þinn kross mér skal því skýla,
hann skjól sé eilíft mitt;
um annað Ijós eg ekki hið
en auglits Ijósið þitt.
Eg hirði ei um himin, jörð
né heimsins dýrðarhnoss.
Mín bligðan syndaeymd mín er,
mín eina dýrð þinn kross.
—N. S. Th. þýddi ’37.