Sameiningin - 01.11.1943, Page 17
111
yfirleitt með ágætum. Er því mikið og' glæsilegt tækifæri
fyrir hendi að þroska og eíla söfnuðinn og sunnudaga-
skólann, og uppbyggja Guðsríkið á þessum stöðvum. Enda
mun vera mikill áhugi fyrir því hjá safnaðarfólkinu yfir-
leitt og hjá prestshjónunum ungu, sem þar eru að hefja starf.
En nú vil eg hverfa aftur að þeirri hátíðarguðsþjónustu
sem þarna var að fara fram sunnudagskvöldið 11. júlí. Eg
hafði verið svo heppinn að séra Sigurður Ólafsson, og frú
hans frá Selkirk, voru stödd á ströndinni um þessar mundir,
eins og hann hefir nú sjálfur sagt frá. Hafði hann góðfús-
lega lofað að aðstoða mig við þessa hátíðarguðsþjónustu.
Ennfremur átti eg því láni að fagna að séra Kolbeinn
Sæmundson, sem þjónar hérlendum lúterskum söfnuði í
suðurhluta Seattle-borgar, gat verið með okkur þetta kvöld
og líka aðstoðað. Söfnuður hans tilheyrir: The Pacific
Synod of the U. L. C. A. Var mér sagt að starf séra Kol-
beins blómgaðist þar sérlega vel og væri á góðu þroskaskeiði.
Lán er það Hallgrímssöfnuði með öðru fleiru, að Mr. Tani
Björnson, sem áður átti heima á Mountain, hefir flust til
Seattle, og tekið að sér söngstjórn hjá Hallgrímssöfnuði.
Hann er söngmaður góður og hæfileika maður á því sviði.
Þetta kvöld naut flokkurinn aðstoðar Miss Elaine Freder-
ick, sem söng einsöng með flokknum. Hún hefir líka góða
hæfileika og mentun á sviði sönglistarinnar.
Talið var að um 300 manns hafi verið við messuna
þetta kvöld. Flest allir viðstaddir voru íslendingar, þó munu
nokkrir innlendir hafa veriö þar með, einkum þeir er
giftir eru íslenzkum konum eða mönnum. Það varð hlut-
skifti mitt að prédika þetta kvöld og að setja í embætti
hinn unga prest, sem hér var að hefja starf eins og áður
hefir verið sagt. Hugur minn og hjarta var fult hrifningar,
þakklætis, og fagnaðartilfinninga á þessari stundu. Mér
fanst eg fynna til nærveru Guðs þar með náð sína og leið-
s«gn. Andi minn nálgaðist Guð, og eg bað hann í einlægni
hjartans að blessa söfnuðinn og prestshjónin ungu, og gefa
starfi þeirra góða, gifturíka og mikla ávexti.
Eftir hátíðarguðsþjónustuna bauð kvenfélag safnaðar-
ins þessum mikla fjölda messugesta til kaffidrykkju og
veitinga í kjallarasalnum. Voru veitingarnar ljúffengar og
öll framreiðsla til mestu sæmdar.
Gaman var það fyrir mig að heilsa öllum þeim mikla
fjölda kunningja þarna, og að eignast aðra nýja. Það var
orðið áliðið er samkvæminu lauk þar. Munu þá allir hafa