Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1943, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.11.1943, Qupperneq 19
113 við þeirri ósk. Taldi eg að þar væri staður til framhalds- starfsemi af hálfu okkar kirkjufélags. Skýrslur þær sem bornar voru fram á kirkjuþingi okkar á Mountain í sumar, um starfið í Vancouver, bæði af trúboðsnefnd félagsins og af séra Runólfi Marteinssyni, virtust benda á mikið starfs- svið þar, og góða starfsemi af hálfu séra Runólfs á undan- förnum vetri. Svo var og líka hitt að eg var nátengdur forseta kirkjunefndarinnar þar og nákunnugur ýmsum, sem í nefndinni störfuðu. Það urðu heldur engin vonbrigði íyrir mig að koma þangað. Á hinu myndarlega og fallega heimili Mr. og Mrs. L. H. Thorlakson átti eg ágæta dvöl meðan eg staðnæmdist þar, og móttökur af þeirra hálfu voru ástúðlegar og góðar. Gíslasons-hjónin, sem áður voru starfandi meðlimir í söfnuði mínum í Elfros, Sask., tóku mér líka tveim höndum, og marga fleiri góða vini og kunn- ingja hitti eg þar mér til mikillar ánægju, sem eg hafði áður átt samvinnu með í fyrra prestakalli mínu, í Wynyard, Sask., og grendinni. Eftir að kynnast nú dálítið starfsháttum og ástæðum í Vancouver, sannfærðist eg um að þar væru akrarnir kvitir til uppskeru, og feikna mikið starf fyrir hendi. Virtist mér vera mjög knýjandi þörf fyrir kirkjulegu starfi af hálfu okkar kirkjufélags. Fanst mér að við þurfa að auka þar starfið og efla eftir beztu möguleikum. Þykir mér því vænt um að nú, þegar eg skrifa þessar línur, er séra R. Marteinsson aftur tekinn til starfa þar í samráði við nefnd- ina. Og vona eg að árangur þeirrar starfsemi verði bæði mikill og góður. Eitt kveldið átti eg fund með þessari kirkjumálanefnd í Vancouver. Fundurinn var haldinn undir beru lofti í Stanley Park. Það er staður sem mikið er rómaður bæði af íbúum og gestum. Þar ræddum við kirkjumálin í ein- lægni og með miklum áhuga. Okkur var það öllum ljóst að einn örðugleikinn var sá, að ekki var um nægileg efni að ræða til að reka starfið með þeim krafti, sem allir hefðu ákosið. Og við komum auga á ýmsa fleiri örðugleika; eins og t. d. það hvað íslendingar eru mjög dreifðir út um alla þessa stóru og víðáttumiklu borg. Ekkert hverfi, þar sem íslendingar eru fjölmennir eða neitt nálægt því; og þó er gizkað á að um 1500 íslendingar eigi heima í borginni og næstu grend. En ánægjulegt var það í mesta máta hvað nefndin var bjartsýn á framtíðarmöguleikana, og fastákveðin

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.