Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1943, Qupperneq 20

Sameiningin - 01.11.1943, Qupperneq 20
114 í því að halda uppi ákveðinni og' lifandi kirkjulegri starfsemi á hverju sem gengi. Sunnudaginn 18. júlí messaði eg í Vancouver, samkvæmt ósk þessarar nefndar. Var messan vel og rækilega aug- lýst af nefndinni, og meðlimir nefndarinnar tii staðarins er messa átti að byrja, til að taka á móti messugestum. Var því iíkast að hér væri gamall söfnuður og æfður í kirkjulegri starfsemi, þó hér væri reyndar ekki um reglulegann söfn- uð að ræða. Messað var í dönsku kirkjunni, þar sem guðs- þjónustur íslendinga hafa venjulegast farið fram. Aðsókn var góð. Þekkti eg marga af messugestunum frá Sask. Átti eg með fólkinu mjög ánægjulega og góða stund. Rev. Soren- son, presturinn, sem þjónar í jpessari kirkju var með okkur þarna. Tók hann þátt í guðsþjónustunni, og ávarpaði messu- gesti bróðurlega og hlýlega. Þess var og minst með þakk- iæti hve vel Rev. borenson og söfnuði hans hafði altaf farist við íslendinga. Altaf hafa þeir verið boðnir og búnir að lána kirkjuna án þess að biðja um nokkurt endurgjald. Danska kirkjan er ekkert sérlega stórt hús, en hún er ákaf- lega falleg og kirkjuleg. Sjaldan hefi eg séð svo fagra kirkju af þeirri stærð. Söfnuðurinn hafði víst reist hana sjálfur og kom þar fram mikill smekkur og jafnvel listhneigð í öllum írágangi. Auk kirkjusalsins sjálfs, sem svona er fagur, er ágætt skrúðhús í kirkjunni, og undir henni mjög vandaður kjallarasalur, þar sem er rúm til fundarhalda, veitinga og annars fleira er stendur í sambandi við safnaðarstarfið. Þeir Hálfdan tengdabróðir minn og G. F. Gíslason góð- kunningi minn keyrðu mig mikið um bæinn. Reyndu þeir að gjöra mér staðhætti alla sem kunnasta og skiljanlegasta sem unt var á stuttri stundu. Þeir fylgdu mér á heimili margra vina og kunningja, og kyntu mig mörgum úr hópi hinna fjölmennu íslendinga í Vancouver. Ferðin var mér bæði gagnleg og skemtileg, og naut eg gestrisni mikillar og góðsemdar, og mun lengi muna. Meðan eg var í Vancouver, kom eg þrisvar til Blaine, Wash. í fyrstu ferðinni var viðdvölin mjög stutt. Þó kom eg heim að heimili forseta Lúterska safnaðarins í Blaine, og átti stutt en ánægjulegt tal við hann og konu hans; samdist þá svo að eg mundi aftur koma þar við. Einnig kom eg snöggvast við á heimili þeirra Mr. og Mrs. Andrew Daniel- son, og átti þá stutt en ánægjulegt viðtal við þau hjón. Annað skiptið sem eg kom þangað, kom eg á heimili Mr. og Mrs. Halldor Johnson utarlega í Blaine, og hitti þar auk

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.