Sameiningin - 01.03.1930, Blaðsíða 26
88
ekki né æðrastu, þó faættur og erfiöleikar standi þér í vegi, því ef
áræði, vit og orka faaldast í hendur, þá muntu sigur vinna. Allar
skýja borgir æsku þinnar munu naumast rætast, — en ég veit, að
þaö eru eiginleikar allrar orku, aö skapa sér lífsmyndirnar bjartar,
fagrar og fullkomnar, og þó þær, í flestum tilfellum, rætist ekki
bókstaflega, þá göfga þær og styrkja, og eiga þátt í framtíðar
þroskun anda þíns og athafna.”
Svo eru smástörfin, sem öll börn ættu aS hafa. — En vinn þú
meö þeim. Hældu 'barninu fyrir gott verk, segöu iþví sögu á meðan
verkið er unnið, svo aö það gleymi því aö þaö var því ógeðfelt,
kepptu viö hann og gerðu vinnuna að leik. Samvinna og keppni
með börnunum ávinna meira en harðar skipanir, þó stundum þurfi á
þeim að halda. Taktu fáeinar mínútur til að lesa fyrir smábörnin
— eöa með þeim stærri, og ræddu svo söguna. Ef bókin vekur eftir-
tekt og er með gott eftirdæmi, þá lestu hana aftur og aftur, svo a5
þú getir lifaö með börnunum, hetjurnar í bókinni. Ein bók sem ég
elska og börnin mín líka er “Pollyanna — The Glad Story.” — Eg
hef leikið þá bók — eða “The Glad Game” með skólabörnunum
mínum ár eftir ár, og svo núna með börnunum mínum. Að leiðbeina
börnunum í lestri er nauösynlegt.
Nú er ég orðin býsna langorð og ætla nú að komast að síð-
asta hluta máls míns í þessum hugleiðingum. Eg ætla að vikja mér
að því sem ég byrjaði á — að konan ætti heima allstaðar -—• eða það,
að hún ætti að vera ,‘heima” í öllum málum, sem á einhvern hátt
getur bætt hennar kjör, líkamlega, andlega og siðferðislega, að vera
í einhverjum góðum félagsskap, hafa áfauga á því, og hvað lítið eða
mikið hún getur gert, að láta það koma í ljós. Halt þú þér ekki til
baka því ef þarf hvað eftir annað að draga út áhrifin, þá dofnar
sá litli neisti af ánægju og samvinnugleði, og þú verður ein, leiði-
gjörn og álítur þig minsta af öllum. Statt þú upp og gef þú þitt
álit á hlutunum. Það má engin halda að forsetinn, vara forsetinn,
skrifarinn eða einhver önnur embættiskona sé bezti leiðtoginn, eða
áhrifamesti meðlimurinn í félagsskapnum. Sá er leiðtogi og áhrifa-
mikill, sem sér þörfina og setur sjálfa sig til að vinna að því með
lífi og sál. Fljótt munu fleiri fylgjast með. Jane Adams sá
eymd mannkynsins; Mary Lyon sá ófullkomleik þjónustustúlkunnar;
Julia Lathrop sá vanræktan ungdóm og Susan B. Anthony auglýsti
fyrir heiminum pólitízkt áhrifaleysi konunnar. Hver þessara leið-
toga gleymdi sérhlífni og erfiðleikunum framundan. Góður leiðtogi
er fyrirrennari almennings fareyfingar. Góður leiðtogi er ekki sú,
sem skipar öðrum með mörgum orðum, heldur sú, sem vinnur sjálf —
hefir aðhylli systra sinna, er einlæg, trúir á sjálfa sig jafnhliða og
hún trúir á aðra, og trúir á það, sem hún er að koma í verk. Góður
leiðtogi verður að elska mannkynið, og geta sett sig i annara kring-
umstæður, og skilja annara skoðanir, — dæma ekki aðra með útá-
setningar-blæ, en treysta þeim, og með hlýju viðmóti ná sem ílestum