Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1932, Side 19

Sameiningin - 01.02.1932, Side 19
49 hann er kend, syngur enn í anda Lúters: “Þitt orÖ er, GuÖ, vort erfðafé, þann arf vér beztan fengum.” Siðabótin, kend viÖ Lúter, varÖ sálarheill heimsins. í þeirri hreyfing skipaÖi orÖ Guðs öndvegið. Einnig kaþólsk kirkja varð aðnjótandi þeirrar blessunar. Ekki telur lútersk kirkja ritninguna kenslubók í veraldlegum vísindum. En hún kennir þau vísindi, hvernig menn eigi að lifa og deyja svo vel sé. Og þau vísindin eru nú líklega þýðingarmest fyrir mannkynið.—Lútersk kirkja er því andlegt líf fremur en fræðakerfi. Hún æskir eftir jafnvægi í andlegum þroska læri- sveinsins, vits, tilfinninga og vilja. Hjún leggur áherzlu bæði á trú og verk. Hvorugt er henni olnbogabarn. — Vitanlega er andi kirkjunnar og kenning ávalt helgari og hærri en framkvæmd og líf, er til safnaða og einstaklinga kemur. Þannig er trúin meiri en trúarjátningin. Játning siðabótarkirkjunnar er stutt og einföld, grundvölluð á anda Guðs orðs. Það orð er hæstiréttur lúterskrar kirkju. Kristur er úrskurðarvaldið. Hann er lærifaðirinn og leið- toginn. Réttlæting af trú er einkum í því fólgin, að maðurinn verði ný skepna fyrir lifandi trúareining við Jesúm Krist. Trúin er tréð. Verkin ávöxtur þess.— Lútersk kirkja dregur sig ekki á tálar með því að gera lítið úr syndinni, en hún gerir meira úr náð Guðs föður og frelsi Guðs barna í Kristi. Hann er æðstipresturinn, en allur söfnuðurinn á að vera heilagt prestafélag. Frelsarinn og frelsinginn vinir, bræð- ur og samarfar. Orðið er Guðs orð, kirkjan frá Guði og maður- inn samverkamaður Guðs. Á þenna hátt er kenning og játning þessarar kirkju. En játning kirkju vorrar verður aldrei lögmál. Verði eitthvað lög eða lögmál, hættir það að vera játning. Siðabótin var andlegt frelsi. En bún var meira. Hún bar í skauti sínu fræ frjálsrar mentunar og alþýðu uppfræðingar. Frá lútersku kirkjunni stafa skólarnir, eins og vér þekkjum þá. I gegnum aldirnar hefir hún verið kirkja skólanna. Hún hlúir að viti og þekking, en tilbiður hvorugt. Hún eltir ekki hverja nýjung. Hún kýs fremur kirkjur sinar fyltar af Guðs anda en kenningar- þyt manna. Hún vill sýna fortíð og framtíð trúmensku, en við- fangsefni samtíðarinnar telur hún sér skyldust og snýr sér hiklaust að úrlausn þeirra, í ótta Drottins og án manngreinarálits. Ófús er hún að gera samfélag við tízku aldarfarsins né syndir. Hún varð til í baráttu við villu og yfirsjónir voldugra manna. Þó gerir hún enga uppreisn né boðar mönnum bylting. en fer enga krókavegu með erindi sitt. Dygg Drotni, dygg sannleika hans,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.