Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1932, Page 21

Sameiningin - 01.02.1932, Page 21
5i Á víð og dreif “PEGURSTA BÓKIN” Rithöfundurinn franski, Ernest Renan, var ekki mjög fast- heldinn við fornar kirkjukenningar, eins og kunnugt er. En hann var nákunnugur ritningunni á sína vísu og ritaði mikið um biblíuleg efni. Enginn getur því ætlað honum þa8, að hann hefði farið að hæla bibliuritum út í loftið af uppgjörðar-fjálgleik eða gömlum vana. Renan bar Rúkasar guðspjalli þann vitnisburð, að það væri fegursta bókin, sem rituð hefði verið nokkurn tíma. Önnur eins orð frá slíkum manni eru sannarlega þess verð að kristnir menn veiti þeim eftirtekt. Lúkasar guðspjall er fögur bók, og það er erfitt að hugsa sér aðra fegurri. Ekki af því, að þar sé svo glæsi- legt málskrúð eða glitfagrar lýsingar eða nokkuð þess háttar, heldur vegna þess sannleika, sem hún flytur. Aldrei hefir fegurra efni veriö sett franr á látlausara, hjartnæmara máli, heldur en í guðspjalli Lúkasar. Ekki skal reynt hér að færa sönnur á þau ummæli með rökum eða tilvitnunum. Bezta röksemdin er að lesa bókina. Væri ekki reynandi fyrir kristna foreldra, að fara yfir Lúkasar guðspjall með börnunum sínuni núna á föstunni; dá- litinn kafla á hverju kvöldi, og eiga svo ofurlítið samtal um þaö á eftir, hvað hafi verið sérstaklega fagurt í þessum kafla, sem lesinn var? Það þarf ekki miklar gáfur til að gjöra þetta svo að vel fari, og ekki víðtæka þekkingu á bókmentum eða guðfræði. En sé það gjört af einlægunr hug, þá munu bæði foreldrarnir og börnin hljóta ósegjanlega mikla Idessun af lestrinum. Samein- ingin leyfir sér að leggja til, að þetta sé gjört á heimilum kirkju- félagsmanna nú í föstutíðinni. NtU PUNKTAR ROOSEVELTS Flestir lesendur Sameiningarinnar kannast við “fjórtán punkta” Wilsons Bandaríkja forseta, sem urðu heimsfrægir á síðasta ári stríösins mikla. Efnið í þeim, eins og kunnugt er, voru hugmyndir forsetans um meginskilyrðin fyrir tryggum heimsfriði. Hér eru “níu punktar,” sem annar Bandaríkja forseti, Theo- dore Roosevelt, lét út gefna frá sinni hendi. Efnið er skoðun þess ágæta manns á öðru máli, sem er engu síður mikilvægt en friðar- málið—það er að segja, kirkjustarfi og kirkjusókn. Roosevelt var sjálfur starfandi kirkjumaður, og var ófeiminn að láta í ljósi

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.