Sameiningin - 01.02.1932, Page 27
57
Jesús hafði enn ekki læknað manninn af líkamlegum kvilla
hans. Hughreystingin var í því fólgin, að syndir hans voru fyrir-
gefnar. Þetta er fyrsta sporið til sælu og blessunar.
“Sæll er sá, er afhrotin eru fyrirgefin synd hans hulin.
“Sæll er sá maður, er Drottin tilreiknar eigi misgjörS, sá er
eigi geymir svik í anda.”
Vér höfum ekkert að óttast hvað sem á gengur þegar þessu
stigi er náð og því haldið. Eitt sinn voru lærisveinar Krists stadd-
ir á vatni í ofviðri. Bátnum lá við að sökkva. Lærisveinarnir
voru fullir af angist og ótta er þeir heyrðu rödd er sagði: “Verið
hughraustir, það er eg.”
Andstreymi og örðugleikar lifsins virðast einatt ætla að tor-
tíma öllu. Vér reynumst vannaáttugir og einstæöir. Hiversu hug-
hreystandi að heyra þá aftur og aftur þessa rödd. Verið óhræddir,
eg er me'S yður. Vitnar ekki Guðs andi með vorum anda að við
erum Guðs börn? Jú, og sannfærir oss, með Guðs orði um nálægð
frelsarans, sem talar til vor lífsins orð.
Það er mestum sársauka veldur er burtköllun ástvina og ann-
ara náunga. Lærisveinarnir höfðu lært að elska frelsarann, þó
þeir ekki þektu til fulls hver hann var. Skilnaðarstundin var kom-
in. Jesús er að skýra fyrir þeim burtförina og segir meðal annars:
Verið hughraustir, eg hefi sigrað heiminn. 1 þessum orðum Drott-
ins felst svo mikið að eg treysti mér ekki til að útskýra það eins og
eg vildi. En þetta er ei.ns og áherzlusetning í niðurlagi samtalsins
í 13-16 kap. Jóhannesar guðspjalls. Hann talaði um sigur sinn yfir
syndinni og dauðanum. Llann talaði um hið eilífa líf, er þeirra
bíður er á hann trúa, og heimilið, sem þeir eiga í vændum. Hvað
höfum vér að óttast? Er ekki þetta hið sama sem Davíð sá, þegar
sonur hans hafði dáið ? Meðan barnið var veikt syrgði hann,
fastaði og bað. Þegar barnið var dáið, hratt Davíð frá sér sorgar
þunganum, klæddist og mataðist. Er hann var spurður að ástæð-
unni fyrir breytni hans, svaraði Davíð: Eg fer til þess, en það
kemur eigi aftur til mín.
í gegnum alt og alt er þetta aðal huggunin: “Og þegar eg
er farinn burt og hefi búið yður stað, kem eg aftur og mun taka
yður til mín til þess að þér séuð og þar sem eg er.”
Lífið er aðeins að byrja.
Seattle, Wash.
Jóliann friðriksson.