Sameiningin - 01.06.1935, Síða 15
63
“í öðru tölublaði ‘Framfara’ er skýrt frá því, að Ný-
íslendingar hafi rætt það spursmál, hvort þeir ættu fremur
að stofna s.jálfstætt kirkjufélag eða vera einn hluti af ein-
hverju amerísku kirkjufélagi. Var hugmyndin fyrri eins
og eðlileg systir þeirrar um frjálsa, íslenzka sveitarstjórn.
Má með sanni segja, að mörgu fólki í Nýja íslandi félli sú
hugmynd vel í geð, og þeir, sem helst voru í broddi fylkingar
um það mál, fengu tvo guðfræðinga til að semja frumvarp
til grundvallarlaga fyrir þess háttar félagsheild. Séra Jón
var þá búsettur í Minneapolis og var hann annar þessara guð-
U'æðinga og mun hann hafa átt aðal-þáttinn í samning frum-
varpsins. Ekki varð samt af þvi, að kirkjufélagið yrði mynd-
að fyr en séra Jón kom norður.
Áðurnefnt frumvarp til kirkjufélagslaga var, eftir komu
séra Jóns til Nýja fslands, endurskoðað, og í þeirri mynd
prentað í “Framfara” (I, 16) og lagt fyrir hina nýju söfnuði
til samþyktar.
Hinn fyrsta og eina ársfund sinn hélt félag þetta að
Gimli, 30. júní, 1879. Séra Jón var kosinn formaður, en
Halldór Briem, cand. theol., varaformaður. Á fundinum
voru erindrekar frá Steinkirkjusöfnuði (syðst í Nýja íslandi),
Bæjarsöfnuði (Gimli), Breiðuvíkur-söfnuði (norðarlega i N.
ísl.) og Bræðra-söfnuði (við íslendingafljót). Auk þess
töldust tilheyrandi kirkjufélaginu söfnuður í Mikley og
Þrenningar-söfnuður í Winnipeg.
Til er skrifaður fundargjörningur frá fundi þessum, þar
sem greinilega er skýrt frá því, sem þar gjörðist. Mörg
þarfleg mál voru þar tekin til meðferðar. Djáknum safnað-
anna var sérstaklega falið að styðja að því, að guðsorð væri
haft um hönd á heimilunum og ennfremur að brýna fyrir
mönnum að neyta kvöldmáltíðar sakramentisins og sækja
rækilega guðsþjónustur og safnaðarfundi. Samþykt var
ennfremur að fela formanni kirkjufélagsins að ‘efla hróður-
hug milli kirkjunnar á íslandi og kirkjufélags vors.’ ”
Rætt var einnig um útbreiðslu félagsins á fundi þessum,
einkum um samband við íslenzku söfnuðina í Minnesota, og
.framkvæmdarnefnd félagsins falið, í einu hljóði, að styðja
að því, að íslendingar víðsvegar um landið gangi í hið ný-
stofnaða kirkjufélag.*)
*)Frumritið að grundvallarlögum þessa kirkjufélags (með hendi frú
Láru Bjarnason) Cig- fundargerning’ur hins fyrsta og eina ársfundar þess
eru í vörslum séra Rúnólfs Marteinssonar og hefir hann lánað mér
hvorutveggja til yfirferðar.