Sameiningin - 01.06.1935, Blaðsíða 21
inum: Stefán Gumundsson (Stephan G. Stephansson) og
Jónas Hall fyrir Park-söfnuð; Guðmundur Björnsson og Þor-
steinn Jóhannesson fyrir Tungár-söfnuð; Gísli Jónsson fyrir
Austur-Sandhæða-söfnuð; Sigurður Mýrdal fyrir Pembina-
söfnuð; ólafur Guðmundsson fyrir Little Salt söfnuð;
Magnús Pálsson, Páll S. Bárdal, Baldvin L. Baldvinsson og
Árni Friðriksson fyrir Winnipeg-söfnuð (auk séra Jóns
Bjarnasonar); Björn Jónsson og Friðrik Jónsson fyrir Frí-
lcirkju-söfnuð; Kristján Kjernesteð fyrir Syðri Víðines-söfn-
uð; Jónas Stefánsson fyrir Nyrðri Víðines-söfnuð; Gísli Jóns-
son fyrir Árnes-söfnuð; Friðjón Friðriksson fyrir Breiðu-
víkur-söfnuð og Benedikt Pétursson fyrir Bræðra-söfnuð.
Vegna ágreinings út af 6. grein (um jafnrétti lcvenna í
safnaðar- og kirkjufélagsmálum) höfðu kirkjufélagslögin
eigi verið samþykt í Garðar- og Víkur-söfnuði; en mættir
voru þessir fulltrúar frá þeim söfnuðum: séra Hans Thor-
grímsen, Sigurður Jósúa Björnsson og Þorlákur G. Jónsson
fyrir Víkur-söfnuð, og Eiríkur H. Bergmann og Friðrik ,1.
Bergmann fyrir Garðar-söfnuð. Var þeim veitt málfrelsi
þegar í fundarbyrjun, og síðar, eftir að samþykt hafði verið
sú breyting á grundvallarlögunum, sem talið var, að allir
gætu sameinast um, var fulltrúum þessum veittur fullkominn
fundarréttur með samhljóða atkvæðum. Birni Péturssyni,
sem sat fundinn, þó eigi væri hann erindreki neins safnaðar,
var einnig veitt málfrelsi.
Fundarstjóri var kosinn Björn Jónsson (frá Ási í
Kelduhverfi), og til vara Magnús Pálsson, en fundarskrifari
Jón ólafsson (frá Laugalandi í Eyjafirði).
Helstu mál afgreidd á fundinum voru : sameining hinna
íslenzku safnaða í eitt kirkjufélag og endurskoðun grund-
vallarlaganna, myndun stjórnarnefndar fyrir félagið, stofn-
un sunnudagsskóla og útgáfa kirkjufélagsblaðs. Munu flest-
ir verða sammála um, að hvað þýðingarmesta samþykt þings-
ins hafi verið ákvörðunin um að stofna kirkjulegt tímarit.
Var þar um brautryðjendastarf að ræða, því að kirkjan ís-
lenzka átti þá ekkert málgagn. í útgáfunefnd ritsins voru
kosnir: B. L. Baldvinsson, séra Jón Bjarnason, Friðjón Frið-
riksson og Páll S. Bárdal, varamaður.
Á þá við að telja þá menn, sem kosnir voru fyrstu em-
bættismenn kirkjufélagsins: formaður séra Jón Bjarnason,
vara-formaður Magnús Pálsson, skrifari Friðjón Friðriks-
son, vara-skrifari Stefán Guðmundsson, féhirðir Árni Frið-
riksson og vara-féhirðir Sigurður Mýrdal.