Sameiningin - 01.06.1935, Síða 38
86
haldið við grundvallarlög ltirkjufélagsins, var dæmd kirkju-
eignin í undirrétti Norður Dakota ríkis í inarz 1912; en and-
stæðingar áfrýjuðu til yfirréttar ríkisins og unnu þeir málið
fyrir þeim rétti í desember 1914 með úrskurði þriggja dóm-
aranna af fimm. Ilitt var stórum lakara, að sundrung sú, í
kirkjufélaginu, sem málavastri þessu olli, og eftirköst á-
greiningsins og málaferlanna, skildu eftir þau sár, sem illa
gréru og seint. *)
Árið 1911 gekk Víkursöfnuður að Mountain, N. D., þó
aftur í kirkjufélagið, og að auk einn nýr söfnuður, Imman-
uelssöfnuður í Wynyard, Saskatchewan. úr félaginu sagði
sig á þessu ári Guðbrandssöfnuður í Manitoba, en Trinitas-
söfnuður leystist upp. Engir nýir söfnuðir bættust við
árið 1912, en einn smásöfnuður, Marshallsöfnuður í Marshall,
Minnesota, féll niður sökum brottflutnings íslenzks fólks af
þeim stöðvum. Samkomulagstilraunir við söfnuði þá, sem
úr félaginu gengu vegna trúmálaágreiningsins, höfðu enn
sem komið var engan árangur borið.
Árið 1913 gengu eftirfarandi sex nýir söfnuðir í félagið:
Blainesöfnuður í Blaine, Washington, Þrenningarsöfnuður á
Point Roberts, Washington, Vancouversöfnuður í Vancouver,
British Columbia, Vestfoldsöfnuður og Grunnavatnssöfnuður
í Shoal Lake-bygð í Manitoba, og Skjaldborgarsöfnuður í
Winnipeg. Péturssöfnuður í Norður Dakota, fámennur söfn-
uður, sleit á þesu ári sambandi sínu við félagið. Næsta ár
bættust í hópinn tveir nýir söfnuðir. Lögbergssöfnuður og
Hallgrímssöfnuður í Saskatchewan.
Margir söfnuðir kirkjufélagsins höfðu komið sér upp
kirkjum á ])essu tímabili og að því leyti bætt aðstöðu sína til
fjölþættara og samfeldara safnaðarstarfs.
Greint hefir verið frá úrsögn séra Friðriks úr félaginu,
tildrögum hennar og afleiðingum. En á næstu árum bættust
þvi eftirfarandi prestar: séra Jóhann Bjarnason og séra Run-
ólfur Fjelsted (1908), séra Hjörtur J. Leó, séra Guttormur
Guttormsson og séra Sigurður S. Christopherson (1909), séra
Carl J. Olson og séra Haraldur Sigmar (1911), sem allir
höfðu lokið guðfræðisnámi við prestaskólann lúterska í
Chicago. Vígðist séra Jóhann til safnaðanna í norðurhluta
*)Um deilur þær allar, sem næstu árin sigádu í kjðifar samþykta kirkju-
þingsins 1909, má lesa í vestur-Islenzku vikublöðunum Lögbergi og
Heimskringlu, en þó einkum í Sameiningunni og gjörðabðkum kirkju-
þinganna annarsvegar, og Breiðablikum, og bók séra Friðriks .1. Berg-
manns Trú og pekking (1916), hinsvegar.