Sameiningin - 01.06.1935, Page 48
96
hendur annað prestsembættið við dóinkirkjuna í Reykjavík.
Hat'ði hann verið framúrskarandi Iryggur málefnum kirkju-
félagsins og sjálfu því, skrifári þess frá því árið 1906. Við
prestakalli séra Friðriks í Argyle tók þá litlu síðar séra K. K.
Ólafsson, forseti kirkjufélagsins. Einn nýr prestur bættist
þó í hópinn 1925. Á kirkjuþingi það ár var vígður guðfræðis-
kandidat Valdimar J. Eylands, sem námi hafði lokið við
prestaskóla norsk-amerísku kirkjunnar í St. Paul, og varð nú
fyrst um sinn prestur Melanktonssafnaðar í Mouse River-
bygðinni, en hefir á seinni árum þjónað söfnuðunum í Blaine
og Point Roberts, Washington. Eignaðist kirkjufélagið þar
gáfu- og athafnamann, sem það hefir þó eigi fengið að njóta
nema að nokkru leyti, þar sem hann hefir unnið og vinnur
jafnhliða öðru kirkjufélagi.
Vorið 1926 hvarf séra Páll Sigurðsson, sem verið hafði
tíu árin undanfarandi prestur að Garðar, North Dakota, og
tvö síðustu árin þjónandi prestur kirkjufélagsins, til fslands
og tók þar við prestsembætti í Bolungarvík. Hafði hann þótt
kennimaður góður og að öllu leyti getið sér hið hezta orð
hjá safnaðarfólki sínu. Hann hafði einnig átt mikinn og
drengilegan þátt í því, að söfnuðir hans sameinuðust aftur
kirkjufélaginu. Varð séra Haraldur Sigmar, er þjónað hafði
söfnuðunum í Vatnabygðunum í Saskatchewan, prestur allra
íslenzku safnaðanna í Norður Dakota og gegnir hann því
embætti enn. En séra Carl J. Olson, sem nú var aftur kominn
í þjónustu kirkjufélagsins, gerðist prestur safnaðanna í
Vatnabygðum og þjónaði þeim fram til ársins 1931 er hann
varð prestur Central Lutheran Church í Seattle, Washing-
ton.
Haustið 1926 sagði séra N. S. Thorláksson af sér prest-
þjónustu i Selkirk, eftir að hafa verið þjónandi prestur í
fjörutíu ár, en sjötugs afmæli átti hann þá snemma um vetur-
inn. Hafði hann unnið söfnuðum þeim, sem notið höfðu
starfs hans, og kirkjufélaginu í heild sinni, mikið verk og
gott. Einnig hefir hann ávalt öðru hverju síðan haldið áfram
starfi sínu í þágu kirkju og kristni. Séra Jónas A. Sigurðs-
son varð eftirmaður séra Steingríms í Selkirk og þjónaði því
prestakalli til dauðadags.
Á kirkjuþingi 1927 var vígður til prests guðfræðis-
kandidat Kolbeinn Sæmundsson, sem útskrifast hafði frá
lúterska prestaskólanum í Seattle, og þjónaði hann Hall-
grímssöfnuði þar í borg rúmlega árlangt, en hefir síðan verið
starfandi prestur hjá amerískri kirkjudeild vestur þar. Misti