Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1935, Page 59

Sameiningin - 01.06.1935, Page 59
107 i'élagi Meþódista. Var séra Friðrik J. Bergmann ráðinn til þess embættis, og byrjaði sú kensla þá um haustið (1901). Fékk síðan skólanefnd kirkjufélagsins því til leiðar komið, að íslenzka varð löglega viðurkend námsgrein í undirbún- ingsdeildum og tveim lægri bekkjum Co/Zefl'e-skólanna i Manitoba. Hélst samband þetta við Wesley-skólann þar til 1909. í annan stað var haldið áfram málaleitan við Gust. Ad. College í St. Peter um stofnun annars kennara-embættis þar. Ivomst það og á haustið 1905; var þar ráðinn kennari hr. Magnús Magnússon frá Reykjavík, og gegndi hann því em- bætti þar lil vorið 1909. Á kirkjuþingi í Selkirk í júní 1908 var í einu hljóði sam- þykt að leggja niður bæði kennara-embættin að ári liðnu. Kennara-embættið við Gust. Ad. College þótti ekki borga sig, þar sem svo fáir nemendur fengust þangað. Aftur á móti hafði aðsókn verið all-mikil að Wesley College. En bæði var það, að ýmsir í kirkjufélaginu voru ónáægðir með það, að skólafyrirtæki kirkjufélagsins væri í sambandi við ólút- erska mentastofnun, og í annan stað ágreiningur orðinn í trúarefnum milli kenuarans og meiri hluta kirkjufélagsins, og þótti þá líklegast til samkomulags, að hætt væri við kenn- ara-embættið. Fyrirkomulag þetta hafði aldrei verið ætlað nema til bráðabirgða, og var því hvað eítir annað lýst yfir á kirkjuþingum, að kirlcjufélagið héldi eigi að síður i'ast við upprunalega hugmynd um sjálfstæðan kirkjufélagsskóla.” (Minningarrit aldarfjórðungs'-afmælis kirkjufélagsins, bls. 54-56). Á næstu árum gerðist það helzt í skólamálinu, að kenn- ara-embættið í íslenzku við Wesley College var endurreist 1910 með séra Rúnólf Marteinsson sem kennara, og gegndi hann því starfi til 1913. Féll þá niður kensla þessi af hálfu kirkjufélagsins, sem um rúman áratug hafði, í höndum hæfra manna og áhugasamra, borið mikinn árangur, og meðal ann- ars stuðlað að því, að íslenzk tunga og bókmentir höfðu verið viðurkend sem námsgreinar í lægri deildum Manitobahá- skóla. Var það út af fyrir sig ekki lítil sigurvinning. En því féll niður íslenzku-kenslan, sem kirkjufélagið hafði haldið uppi við Wesley College, að kirkjuþingið 1913 hafði einróma samþykt, að byrjað skyldi þegar þá um haustið á sjálfstæðu skólahaldi að tilhlutun kirkjufélagsins; jafnframt hafði séra Rúnólfur Marteinsson verið kvaddur til að veita skólanum forstöðu, og varð hann við þeirri beiðni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.