Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1935, Page 60

Sameiningin - 01.06.1935, Page 60
108 Hóf skólinn síðan starf sitt eins og ákveðið var á því hausti, í samkomuhúsinu Skjaldborg í Winnipeg. Það hús var lánað skólanum kostnaðarlaust af eiganda þess, herra Thor- steini Oddson. Var skólinn nefndur Jóns Bjarnasonar slcóli ( Jón Bjarnason Academy), eftir þeim manninum, sem fvrsta fjárframlagið hafði lagt í stofnsjóð hans og borið hafði skóla- stofnun kirkjufélagsins öllum meir fyrir brjósti árum saman. Æfilanga trygð sína til skólans sýndi hann ennfremur í verki með því, að arfleiða hann að miklum hluta hins ágæta bóka- safns síns; en áður hafði skólinn átt allmyndarlega byrjun til hókasafns þar sem voru bækur séra Eggerts Briem, sem kirkjufélagið hafði keypt handa væntanlegum skóla sínum snemma á árum, og hækur sunnudagsskóla Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. (Smbr. greinin “Heimboð” eftir séra Rúnólf Marteinsson, Sameiningin, ágúst, 1923, hls. 249). Tilgangi skólans er svo lýst í reglugerð hans, sem sam- þykt var á næsta kirkjuþingi el'tir að hann var stofnaður (1914): “Skólinn er íslenzk, lúterslc mentastofnun. Kristin- dómur og íslenzka eru því tveir hyrningarsteinar í kenslu og áhrifum slcólans. Almenn fræðsla veitist þar einnig, og verður hún miðuö við þarfir einstaklinganna, eftir því sem unt er, svo vestur-íslenzkum almenningi megi að sem mestu gagni verða, og að sönn kristileg menning þjóðflolcks vors í Ameríku megi hljóta sem mestan stuðning af skólanum. “Kristindómur og íslenzka skulu vera sjálfsagðar náms- greinar fyrir þá, sem skólann sækja, nema kennarar veiti undanþágu.” Hefir þeirri reglugerð verið fylgt eftir föngum á tuttugu og tveggja ára starfsferli skólans; íslenzkan hefir þó, af breyttum aðstæðum, verið kjörgrein hin síðari árin. Kennari skólans fyrsta árið, auk skólastjórans séra Rúnólfs Marteinssonar, var hinn mikli efnismaður Baldur Jónsson, M.A., sem mörgum er kunnur af ritstörfum sínum, þó hann yrði eigi maður gamaíl. Nemendur voru sjö talsins er kensla hófst fyrsta árið, en fjölgaði er fram í sótti, svo að þeir urðu 18 innritaðir það ár. Næstu ár fór nemendatalan smáhækkandi unz hún náði hámarki sínu, á þessu tímabili, árið 1918-19, er 74 sóttu skólann. Á tímabilinu 1920-30 var nemendatalan nokkru lægri, að meðaltali kringum 50, lægst 33 en hæst 65. Eftir það fór hún um hríð hraðvaxandi, og varð 1932-33 hæst í sögu skólans til þessa, er 106 nemendur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.