Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1935, Side 66

Sameiningin - 01.06.1935, Side 66
114 verið bækistöð elliheimilisins síðan. Rúmaði það um 40 gamalmenni. Engu að síður varð það í'ljótt alskipað, og fengu færri aðgang en vildu. Fjárhagur stofnunarinnar leyfði þó eigi að byggingin væri stækkuð fyr en sumarið 1928; en þá gerði stórgjöf, $10,000 að upphæð, frá C. H. Thordarson, hinum kunna íslenzlca hugvitsmanni og verk- smiðjueiganda, stjórnarnefndinni í'ært, að láta byggja stóran og einkar vandaðan viðauka, sem rúmar 16 til 18 manns. Jafnhliða var aðalbyggingin stórum endurbætt. Fullnægir elliheimilið síðan nokkurn veginn þörfum íslendinga vestan hafs. Síðan j>að var stækkað hai'a vistmenn að jafnaði verið milli 50 og 60. En sé Jitið ylir skýrslur heimilisins frá byrj- un, kemur það í ljós, að nálægt 200 gamalmenni hafa átt þar athvarf, og hafa flestar hinar stærri bygðir íslendinga vestan hafs sent þangað vistmenn, þó langflestir hafi eðlilega komið frá Manitoba, og þar næst frá Saskatchewan. Það yfirlit sýnir einnig ljóslega, hver stórnauðsyn hefir verið slíkrar stofnunar og hversu mikið mannúðarstarf lnin hefir þegar unnið Vestur-íslendingum til gagns og sæmdar. Er það því eigi ofsagt, að með stofnun elliheimilisins “Betel” hafi mikið gæfuspor stigið verið, enda hefir það átt, og á, mjög miklum vinsælduin almennings að fagna. Þrátt fyrir viðskifta- og atvinnuörðugleika, er fjárhagur heimilisins góður, og standa til þess ýmsar ástæður. Árlega berast því fjárgjafir og ýmsra nauðsynja frá almenningi, þó farið hafi þær minkandi síðari árin, sem sízt skyldi. Nokk- urra stórgjafa hefir það einnig orðið aðnjótandi, auk þeirra, sem nefndar hafa verið, en rúm leyfir eigi að telja; (Sjá af- mælisræðu Dr. Brandsons í Lögbergi og skýrslur stjórnar- nefndar heimilisins í gjörðabókum kirkjuþinga frá því að það var stofnað). Ellistyrks-löggjöfin í Manitoba hefir þó reynst “Betel” mesta stoðin fjárhagslega, en hún gerir það að verkum, að meiri hluti vistmanna geta að mildu leyti borgað fyrir dvöl sína á heimilinu. Árum saman fékk “Betel” einnig, sem aðrar þesskonar stofnanir Manitobafylkis, nokk- urn opinberan styrk árlega ($500.00), en fyrir fjórum árum síðan afsalaði stjórnarnefndin sér honum, og gerir dr. Brand- son þessa grein fyrir þeirri ráðbreytni í afmælisræðu sinni: “Þessi styrkur var tiltölulega minni en hvað aðrar samkyns stofnanir í fylkinu voru aðnjótandi. Samt var það notað til að gera stofnunina tortryggilega í augum manna. óhlut- vandir menn gáfu það í skyn, að óþarfi væri að leggja fé til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.