Sameiningin - 01.06.1935, Síða 69
117
Áhrif frá “Betel” hafa einnig horist yfir íslandsála. í
fróðlegu erindi um “Ellihæli” (Prestafélagsritið, 1931) lýsir
cand. theol. Sigurbjörn Á. Gíslason kynnum sinum al' starfi
“Betels” og farast meðal annars þannig orð: “Þessi við-
kynning mín við Betel á Gimli vakti hjá mér löngun til að
styðja eitthvað að stofnun ellihæla á íslandi og síðan hefi eg
jafnan leitast við í utanförum að kynna mér þau ellihæli,
sem eg gat náð til, og hefi séð þar margt hæði til el’tirbreytni
og varúðar.”*
Hér er því eitt dæmi þess, að borist hafa heilnæmir
straumar frá Vestur-fslendingum til heimalandsins. Er það
metnaðarauki, að geta fært sér slíkar tekjur til reiknings.
6. Kirkjufélagið og Mannfélagsmálin
Þó starfsemi kirkjufélagsins hafi jafnan hnigið að
kristnihaldi og efling trúarlífsins, hefir félagið eigi látið
mannfélagsmálin, sem fastar knýja dyrnar ineð ári hverju,
afskiftalaus með öllu. Þau hafa iðulega verið rædd í fyrir-
lestrum og almennum umræðum á kirkjuþingum, og ákveðin
afstaða verið tekin til þeirra með þingsamþyktum. Glögt
dæmi þess eru eftirfarandi samþyktir frá kirkjuþinginu
1919:
“1. Að kirkjan eigi að berjast fyrir Jivi, að kristnar hug-
sjónir fái skipað öndvegi í öllum málum og alstaðar, og ekki
síður í stjórnmálum en siðferðismálum einstaklinga;
2. Að kirkjan eigi að veita öflugt lið allri viðleitni sem
miðar í Jiá átt, að efla sátt og eindrægni meðal lijóða og
mannfélagsstétta;
3. Að í öllum ágreiningsmálum mannfélagsins, heri
kirkjunni, samkvæmt dæmi meistara síns, að veita hinum
fátæku og undirorkuðu samhygð og stuðning, þegar þeir eru
að leitast við að hæta kjör sín á friðsamlegan og kristilegan
hátt.”
f þessum efnum hefir kirkjufélagið ekki látið algerlega
lenda við orðin tóm. Það hefir tekið nokkurn þátt í mann-
félagsmálum, sérstaklega líknarmálum. Afrek Jiess á ]>ví
sviði er stofnun og starfræksla ellihælisins “Betel”. Dálítinn
*)Ágæta og vinsamlega lýsingu á lífi gamla fólksins að “Betel” er einnig
að finna í þýðingu dr. Sigurðar J. Jðhannessonar á hinni gull-fallegu rit-
gerð “Heimkynni hins dýrðlega sólseturs,” eftir hinn víðkunna kanadiska
lækni, dr. David Stewart (Lögberg, 11. janúar, 1934).
L