Sameiningin - 01.06.1935, Page 73
121
Man., Lundar, Man., Árborg, Man., Churchbridge, Sask., og
Stoney Hill, Man.
Á þessurn fundi var inyndað Hið Sameinaða Kvenfélag
Hins evangeliska lúterska kirkjufélags í Vesturheimi. Nefnd
var skipuð til að semja lög félagsins, og eftirfylgjandi em-
bættiskonur kosnar: Forseti, Guðrún Johnson; vara-forseti,
Dóra Anderson; skrifari, Flora Benson; féhirðir, Ingunn
Marteinsson. Á l'yrsta ári gengu tíu félög í sameininguna,
og nokkur hafa bæzt við síðan.
Á síðasta ári (1932) var sú breyting samþykt á fyrir-
komulagi félagsins, að einstaklingar ásamt félögum geta
t'engið inngöngu í félagið. Var þá nafni féalgsins einnig
breytt og heitir það nú “Bandalag lúterskra kvenna.”
Þó Bandalagið eigi sér aðeins níu ára sögu að baki, hefir
]>að látið sig ýms velferðarmál skifta, svo sem það, að koma
á út um hygðir íslendinga kristindóms-námskeiðum fyrir
börn að sumrinu til. Árlega heldur Bandalagið þing sitt og
eru þar rædd þau mál, sem konum liggja þyngst á hjarta, og
fyrirlestrar fluttir um þau eða skyld efni, en helztu starfsmál
þinganna hafa verið: kristileg uppfræðslumál, uppeldismál,
hindindismál og l'riðarmál.
Síðastliðin ár hefir Bandalagið gel'ið út ársritið Árdísi,
vandað að efni og búningi, með kvæðum, ræðum og ritgerð-
um i anda þess ágæta félagsskapar, sem að því stendur.
Þegar litið er á kristilega og kirkjulega starfsemi is-
lenzkra lúterskra vestan hafs í heild sinni, fer mann að gruna,
að séra Jón Bjarnason hafi eigi farið með staðlausa stal'i er
hann sagði í ritdómi: “Og ef til vill hefir konunnar hvergi
meir gætt í sögu lúterskrar kristni en einmitt innan safnaða
íslenzka kirkjufélagsins” (Sameiningin, júlí, 1910, bls. 149).
8. Leikmannastarfsemi
Eigi væri saga kirkjufélagsins nema hálfsögð, ef að engu
væri getið hinnar stórfeldu og margbreyttu þátttöku leik-
manna í starfsmálum þess. Á kirkjuþingum hafa þeir altaf
verið i miklum meirihluta, og áhrifa þeirra því gætt mjög
mikið í öllum þingstörfum. 1 hinum ýmsu fastanefndum
félagsins hafa fleiri eða færri þeirra einnig átt sæti, að sjálfri
framkvæmdarnefndinni meðtalinni. Yrði það fríð fylking
gáfaðra athafna- og hugsjónamanna, er taldir væru þeir leik-
mennirnir, sem látið hafa sér annast um hag kirkjufélagsins
og mest komið við sögu þess; jafnframt myndi það koma í
ljós, að þann hóp prýða margir þeir úr flokki Vestur-ís-