Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1927, Side 11

Sameiningin - 01.07.1927, Side 11
201 Ber breyting sú a8 minsta kosti vott um þaÖ, að skáldiS var ekki á efri árum alveg ánægÖur meÖ öll stóru orSin, stiluð af eldmóði æskuefans, eftir nám viÖ fætur Brandesar. En þessi hugsunarháttur og kveðskapur varð tízka. Gáfaðir skólamenn gengu á undan. Gröndal sagði í ritgerð um skáld og skáldskap (Tsafold 8. febr. 1888) “Trúleysi er höfuð einkenni hinnar nýju skáldskapar stefnu. — Þeir geta ekki brúkað Guð, hann er of gamall fyrir þá.“—Efnilegir unglingar öpuðu þenna móS. ASrir, meS Hákoni konungi góða, ginu yfir ketilhöddunni hjá Þrændum. Þeir reyndu aS vera kristnir og heiðnir i senn. Orðin urÖu nokkurs konar Glúms eiður. Alt slíkt fluttist vestur um haf. Hér var rúmgott í landnámi andans, hátt undir þak og vítt til veggja. Sízt er því furSa, þótt ofvöxtur hlypi í ýmsa afneitun. Við þetta hefir nútíðarkynslóð íslendinga mátt búa. DreifSir og fámennir, höfum vér gert oss sjálfa fámennari Vér höfum lesiö um Sturlungaöld—og lifað hana. KærleiksauS- urinn og trúarþroskinn hafa víða rýrnað. Þjóðrækr.in hefir liðið. Vér höfum fremur lært um trúarbrögð en lifað samkvæmt þeim. En kristindómurinn er engan veginn gefinn til þess að vér eyddurn árunum til að verja hann og því s'ÍSur til að deila um hann, þótt sú hafi jafnan orðiS raunin á. Og það sem vér teljum galla krist- indóms og kirkju, eru fremur gallar heiSninnar,'—óyfirunninn heiðindómur í hjörtum og lífi mannanna. Annars minnir margt í lífi þóöar vorrar á þau orð Velhavens, að þyrnar séu greinar, er ekki náðu þroska. — Ef til vill er alt trúarringl, allar trúardeilur og allur heiSindómur meSal vor vottur um kristindómslíf, er fæddist andvana, — greinar, er ekki náðu þroska og urðu þyrnar. Allir kannast við orðtakið íslenzka: Ekki er gaman aS guð- spjöllunum, því enginn er i þeirn bardaginn. FriðarboSskapur er pss ekki ávalt fagnaSarefni. En bardagar, og t. d. blaSadeilur, eru oss aufúsugestir. Og þjóð vor tók aö berjast um guðspjöllin, Guðs orð, guðdóminn, Krist, kirkjuna og kennidóminn. Ekkert var svo heilagt, að um það gæti ekki hver sveinstauli barist. — ÓSinn og Þór áttu s'ér orustufrægS. Vér afkomendur og læri- sveinar þeirra hlutum einnig aS berjast, sumir til fjár og aðrir fyrir orSstír. Margir vor á rneðal töldust orðhagir skáldmenn. Og orSin voru vígð sem vopn til sóknar og varnar heiSindómi og kristindómi. Hjá þeirri örvadrífu hefi eg setiö. Eg hefi um langt skeið

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.