Fréttablaðið - 28.03.2011, Síða 12
28. mars 2011 MÁNUDAGUR12
Fá ef nokkur dæmi eru til um viðlíka vöxt hagkerfis eins og þess íslenska á árunum eftir 2003 og fram að hruni. Þensl-
unni fylgdi gríðarleg eftirspurn
eftir vinnuafli. Á tiltölulega stutt-
um tíma sköpuðust fjölmörg góð
og vel launuð störf fyrir Íslendinga
og útilokað var að viðhalda upp-
byggingu á fjölmörgum sviðum án
erlends vinnuafls. Útlendinga dreif
að til að manna störf sem Íslend-
ingar gátu ekki sinnt eða vildu ekki
sinna.
Aðflutningur erlends vinnuafls
náði hámarki árið 2007, þegar yfir
tólf þúsund manns fluttu hingað
til lands. Í árslok 2008 voru yfir
24 þúsund erlendir ríkisborgarar
búsettir á Íslandi og um 85 prósent
þeirra voru í vinnu, samkvæmt
opinberum tölum. Sögulega hefur
hlutfallslegur fjöldi útlendinga á
Norðurlöndum verið minnstur á
Íslandi en svo brá til árið 2007 að
þetta hafði snúist við og hlutfallið
var hvergi hærra en hér.
Góðir gestir
Það er einkenni erlends vinnuafls
á Íslandi hversu lítil dreifing þess
er á vinnumarkaði. Flestir inna
af hendi störf sem krefjast ekki
mikillar sérþekkingar eða kunn-
áttu í íslensku. Ef litið er fimm-
tán ár aftur í tímann mátti helst
finna erlenda ríkisborgara við
fiskvinnslu úti á landi en lunginn
af þeim þúsundum sem hér voru
við störf á tímabilinu 2003 til dags-
ins í dag hafa helst unnið við mann-
virkjagerð, við fiskvinnslu og þjón-
ustustörf, einkum ræstingar og
umönnun.
Katrín Ólafsdóttir, lektor við við-
skiptadeild Háskólans í Reykjavík,
benti á þetta í grein í Viðskipta-
blaðinu árið 2006 þar sem hún reif-
ar hvernig þróunin var eftir 1995.
Atvinnuleysi var þá meira en hafði
þekkst um langt skeið. Á árun-
um 1998 til 2001 fjölgaði störfum
um ellefu þúsund og eitt af hverj-
um fjórum var mannað af útlend-
ingi, áætlaði Katrín. Frá 2003 til
2007 fjölgaði störfum enn meira
og hlutfalls lega fleiri útlendingar
hrepptu þau en árin á undan. Það er
því ljóst að aðflutningur erlendra
ríkisborgara var á þessu árabili
drifinn af eftirspurn sem var langt
umfram það sem íslenskur vinnu-
markaður gat borið.
Árið 2006
Hafa ber í huga að um mitt ár 2006
opnaðist vinnumarkaður Evrópska
efnahagssvæðisins fyrir tíu nýjum
aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Íslendingar höfðu nýtt sér frestun
á opnun vinnumarkaðarins árið
2004 og því komu áhrifin seinna
fram en ella. Bretar, Svíar og Írar
höfðu hins vegar ákveðið að opna
fyrir vinnuafl um leið og það var
heimilt með inngöngu ríkjanna og
sprenging varð í innflutningi fólks.
Í Bretlandi fjölgaði innfluttum úr
fjórtán þúsund í 75 þúsund á milli
ára. Fjórir af hverjum fimm voru
frá nýju aðildarríkjunum, þeirra á
meðal frá Póllandi og Litháen.
Heppilegur tími
Hagfræðingar hafa bent á að
opnun vinnumarkaðarins kom til
á heppilegum tíma fyrir Íslend-
inga. Hagkerfið var að hjarna við
eftir stutta lægð og móttækilegt
fyrir nýju vinnuafli. Íbúar í Mið-
og Austur-Evrópu nýttu tækifærið
vel og voru sjötíu prósent allra
erlendra ríkisborgara hér á landi
frá þessum heimshluta þegar allt
toppaði hér árið 2007. Við inngang
ríkjanna í ESB árið 2004 var hlut-
fall íbúa nýju ríkjanna um fimm-
tán prósent hér á landi. Ísland var
góður kostur fyrir þetta fólk, þar
sem munur á launum og atvinnu-
framboði var gríðarlegur. Svo mik-
ill að fjarlægðir frá heimalandi og
framandi tunga eyjarskeggja var
engin hindrun.
Atvinnuleysi útlendinga
Öfgar uppsveiflu og kreppu koma
skýrt fram hjá þeim sem hingað
ákváðu að sækja vinnu. Árið 2007
var atvinnuleysi á meðal útlend-
inga lægra en Íslendinga. Þetta
hlýtur að teljast eðlilegt, þar sem
ástæðan fyrir veru þessa hóps í
landinu var vinnan. Þegar atvinnu-
leysið náði hæstu hæðum í mars og
apríl 2009 var það fjórtán prósent
meðal útlendinga en níu prósent
á meðal Íslendinga. Þessi hlutföll
hafa haldist að mestu leyti síðan.
Engan skal undra þegar litið er til
þeirra greina sem harðast urðu úti í
hruninu. Atvinnuleysi í byggingar-
iðnaði náði þrjátíu prósentum í
apríl 2009 og ljóst var að greinin
var með öllu hrunin hérlendis.
Búferlaflutningar
Árið 2009 mun fara í sögubækurn-
ar fyrir margra hluta sakir en ekki
síst fyrir þá sök að þá fluttu fleiri
einstaklingar frá landinu en áður
í sögunni. Leita þarf aftur til árs-
ins 1887 til að skipa í annað sætið
hvað fjölda snertir. Þegar tölur um
aðflutta og brottflutta eru rýndar
kemur í ljós að 4.835 fleiri fluttu
frá landinu en til þess. Frá landinu
fluttu níu af hverjum tíu til Evrópu,
þar af 2.818 til Póllands, eða tæp 27
prósent. Til Noregs fluttu rúmlega
fimmtán hundruð manns.
Mjög dró úr brottflutningi af
landinu árið 2010 en þá fluttu 2.134
fleiri frá landinu. Flestir þeirra
sem fluttu af landi brott fóru til
sömu landa og árið áður, Noregs
og Póllands. Reyndar má segja að
streymi fólks til og frá þessum
tveimur löndum gangi eins og rauð-
ur þráður í gegnum búferlaflutn-
inga fyrir og eftir hrun.
Pólskar öfgar
Þótt töluvert hafi verið um brott-
flutning útlendinga í kjölfar krepp-
unnar má halda því fram með
rökum að hann sé minni en búast
hefði mátt við fyrir fram. Kemur
það til af því að verulegur sam-
dráttur hefur einnig orðið í þeim
ríkjum sem útlendingarnir hafa
einkum komið frá síðustu ár. Eins
og áður sagði er áætlað að árið 2007
hafi verið um eða yfir tuttugu þús-
und útlendingar á vinnumarkaði.
Tæpur helmingur þeirra var Pól-
verjar. Árið 2006 voru þrettán
Pólverjar á atvinnuleysisskrá en
í lok febrúar síðastliðnum voru
alls 2.375 erlendir ríkisborgarar
án atvinnu, þar af 1.428 Pólverjar,
eða 61 prósent þeirra útlendinga
sem þá voru á skrá. Félagsvísinda-
stofnun komst að því í janúar að
tæpur helmingur allra þeirra sem
þáðu mataraðstoð hjá hjálparsam-
tökum í nóvember var Pólverjar; 91
prósent þeirra var án atvinnu.
Fordómar
Ekki þarf að leita lengi til að
finna rannsóknir um fordóma sem
fylgja breytingum á vinnu markaði.
Enginn lítur tvisvar í áttina að
útlendingi í góðri vinnu á meðan
hann hefur það gott sjálfur. Vægi
þessa sama starfs breytist hins
vegar fljótt hjá þjóð sem glímir við
mesta atvinnuleysi í sinni sögu. Eða
hvað?
Gerður Gestsdóttir hefur um
nokkurra ára skeið komið að mál-
efnum útlendinga í störfum sínum
sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofn-
un og áður Alþjóðahúsi. „Ég greini
ekki aukna andúð í garð útlendinga
en það er sannarlega mismunun á
vinnumarkaði. Atvinnurekendur
velja frekar atvinnulausa Íslend-
inginn.“
Gerður segir það sorglegt hversu
margir útlendingar komist ekki
heim. „Það er vegna þess að þeir
sem hafa unnið hér árum saman
eiga rétt á atvinnuleysisbótum
sem þeir nýta til að framfleyta
fjölskyldu í heimalandinu. Ef þeir
færu hefðu þeir enga framfærslu.
Það er því illskárra að hanga hér á
bótum, vonlítill um að fá vinnu og
við ömurlegar félagslegar aðstæð-
ur, en að fara heim og fá ekki neitt.“
Tap samfélagsins
Þegar horft er til flutninga frá
landinu má sjá þá í tvennu ljósi. Það
getur verið jákvætt að einstakling-
ur fari í víking og afli sér nýrrar
þekkingar og reynslu sem nýtist
samfélaginu síðar. Ekki má gleyma
því að mikill mannauður er fyrir í
landinu sem fékkst með ungu fólki
sem leitar sér menntunar víða um
heim. Það þýðir líka minna álag á
bótakerfin heima fyrir og færri eru
um störfin. Hins vegar er hætt við
að missa ungt og vel menntað fólk
um lengri tíma, sem er mikil blóð-
taka fyrir litla þjóð, og má minna
á umræðuna í samfélaginu um
að íslenskir læknar fari eða komi
ekki aftur úr námi. Hættan liggur
í langvarandi atvinnuleysi, aukn-
um atgervisflótta því fylgjandi og
erfiðri varnarbaráttu íslensks sam-
félags í framhaldinu.
Öfgar uppsveiflu og kreppu
Eitt einkenni hrunsins er búferlaflutningar Íslendinga og erlends vinnuafls sem hingað dreif að á þensluárunum. Flutningarnir
hverfast um tvö lönd; Pólland og Noreg. Miklar breytingar á vinnumarkaði virðast ekki hafa valdið andúð í garð útlendinga hér.
FRÉTTASKÝRING: Atvinnuleysi á Íslandi 7. hluti
0
12.528
5.761
1.918
20
07
20
11
á
æ
tlu
n
ár
s
19
99
■ Aðfluttir
■ Brottfluttir
■ Fólksfjölgun / fólksfækkun ■ 2005-2006
■ 2007-2008
■ 2009-2010
2004 2005 2006 2007 2008 2009
154.150 156.590 160.403 163.543 165.919 165.418
6.950 9.010
14.197
17.907 18.131 15.432
■ Íslendingar
■ Útlendingar
13
Pólverjar voru
atvinnulausir á
Íslandi árið
2006
Þeir voru
1.312
árið 2010
12.528
útlendingar fluttu
til Íslands árið
2007
7.759
fluttu frá landinu
árið 2010 en
10.612
árið 2009
Pó
lla
nd
Li
th
áe
n
Þý
sk
al
an
d
Le
tt
la
nd
B
re
tl
an
d
Fr
ak
kl
an
d
Sp
án
n
D
an
m
ör
k
Sv
íþ
jó
ð
N
or
eg
ur
Brottfluttir Íslendingar 1987-2010
1989 1995 2000 2008
1.600
1.000
600
0
4.
86
7
9.
53
4
2.
04
2
60
5
1.
00
1
48
6
61
5
61
5
39
1
26
2
45
3
27
9
16
0
22
6
21
6
82 15
9
17
1
51 96 14
8
36
0
30
8
12
8
23
8
26
3
13
8
15
2
11
0
73
Flutningar til Íslands eftir þjóðerni 2005-2010
Aðfluttir og brottfluttir
útlendingar 1999 - 2011
Útlendingar á íslenskum vinnumarkaði 2004 2009
2009
og 2010 fluttu
2.140
fleiri Íslending-
ar til Noregs
en heim aftur.
Ef þeir færu hefðu
þeir enga framfærslu.
Það er því illskárra að hanga
hér á bótum.
GERÐUR GESTSDÓTTIR
RÁÐGJAFI Á VINNUMÁLASTOFNUN
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Sjöundi hluti af níu
Næsta grein: Atvinnusókn með nýsköpun
Tölfræðiheimildir: Hagstofa Íslands og Vinnumálastofnun.
- Þegar hreinlæti skiptir máli
Sími 510 1200
www.tandur.is
TASKI kynningarverði
A
T
A
R
N
A