Fréttablaðið - 28.03.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.03.2011, Blaðsíða 12
28. mars 2011 MÁNUDAGUR12 Fá ef nokkur dæmi eru til um viðlíka vöxt hagkerfis eins og þess íslenska á árunum eftir 2003 og fram að hruni. Þensl- unni fylgdi gríðarleg eftirspurn eftir vinnuafli. Á tiltölulega stutt- um tíma sköpuðust fjölmörg góð og vel launuð störf fyrir Íslendinga og útilokað var að viðhalda upp- byggingu á fjölmörgum sviðum án erlends vinnuafls. Útlendinga dreif að til að manna störf sem Íslend- ingar gátu ekki sinnt eða vildu ekki sinna. Aðflutningur erlends vinnuafls náði hámarki árið 2007, þegar yfir tólf þúsund manns fluttu hingað til lands. Í árslok 2008 voru yfir 24 þúsund erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi og um 85 prósent þeirra voru í vinnu, samkvæmt opinberum tölum. Sögulega hefur hlutfallslegur fjöldi útlendinga á Norðurlöndum verið minnstur á Íslandi en svo brá til árið 2007 að þetta hafði snúist við og hlutfallið var hvergi hærra en hér. Góðir gestir Það er einkenni erlends vinnuafls á Íslandi hversu lítil dreifing þess er á vinnumarkaði. Flestir inna af hendi störf sem krefjast ekki mikillar sérþekkingar eða kunn- áttu í íslensku. Ef litið er fimm- tán ár aftur í tímann mátti helst finna erlenda ríkisborgara við fiskvinnslu úti á landi en lunginn af þeim þúsundum sem hér voru við störf á tímabilinu 2003 til dags- ins í dag hafa helst unnið við mann- virkjagerð, við fiskvinnslu og þjón- ustustörf, einkum ræstingar og umönnun. Katrín Ólafsdóttir, lektor við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík, benti á þetta í grein í Viðskipta- blaðinu árið 2006 þar sem hún reif- ar hvernig þróunin var eftir 1995. Atvinnuleysi var þá meira en hafði þekkst um langt skeið. Á árun- um 1998 til 2001 fjölgaði störfum um ellefu þúsund og eitt af hverj- um fjórum var mannað af útlend- ingi, áætlaði Katrín. Frá 2003 til 2007 fjölgaði störfum enn meira og hlutfalls lega fleiri útlendingar hrepptu þau en árin á undan. Það er því ljóst að aðflutningur erlendra ríkisborgara var á þessu árabili drifinn af eftirspurn sem var langt umfram það sem íslenskur vinnu- markaður gat borið. Árið 2006 Hafa ber í huga að um mitt ár 2006 opnaðist vinnumarkaður Evrópska efnahagssvæðisins fyrir tíu nýjum aðildarríkjum Evrópusambandsins. Íslendingar höfðu nýtt sér frestun á opnun vinnumarkaðarins árið 2004 og því komu áhrifin seinna fram en ella. Bretar, Svíar og Írar höfðu hins vegar ákveðið að opna fyrir vinnuafl um leið og það var heimilt með inngöngu ríkjanna og sprenging varð í innflutningi fólks. Í Bretlandi fjölgaði innfluttum úr fjórtán þúsund í 75 þúsund á milli ára. Fjórir af hverjum fimm voru frá nýju aðildarríkjunum, þeirra á meðal frá Póllandi og Litháen. Heppilegur tími Hagfræðingar hafa bent á að opnun vinnumarkaðarins kom til á heppilegum tíma fyrir Íslend- inga. Hagkerfið var að hjarna við eftir stutta lægð og móttækilegt fyrir nýju vinnuafli. Íbúar í Mið- og Austur-Evrópu nýttu tækifærið vel og voru sjötíu prósent allra erlendra ríkisborgara hér á landi frá þessum heimshluta þegar allt toppaði hér árið 2007. Við inngang ríkjanna í ESB árið 2004 var hlut- fall íbúa nýju ríkjanna um fimm- tán prósent hér á landi. Ísland var góður kostur fyrir þetta fólk, þar sem munur á launum og atvinnu- framboði var gríðarlegur. Svo mik- ill að fjarlægðir frá heimalandi og framandi tunga eyjarskeggja var engin hindrun. Atvinnuleysi útlendinga Öfgar uppsveiflu og kreppu koma skýrt fram hjá þeim sem hingað ákváðu að sækja vinnu. Árið 2007 var atvinnuleysi á meðal útlend- inga lægra en Íslendinga. Þetta hlýtur að teljast eðlilegt, þar sem ástæðan fyrir veru þessa hóps í landinu var vinnan. Þegar atvinnu- leysið náði hæstu hæðum í mars og apríl 2009 var það fjórtán prósent meðal útlendinga en níu prósent á meðal Íslendinga. Þessi hlutföll hafa haldist að mestu leyti síðan. Engan skal undra þegar litið er til þeirra greina sem harðast urðu úti í hruninu. Atvinnuleysi í byggingar- iðnaði náði þrjátíu prósentum í apríl 2009 og ljóst var að greinin var með öllu hrunin hérlendis. Búferlaflutningar Árið 2009 mun fara í sögubækurn- ar fyrir margra hluta sakir en ekki síst fyrir þá sök að þá fluttu fleiri einstaklingar frá landinu en áður í sögunni. Leita þarf aftur til árs- ins 1887 til að skipa í annað sætið hvað fjölda snertir. Þegar tölur um aðflutta og brottflutta eru rýndar kemur í ljós að 4.835 fleiri fluttu frá landinu en til þess. Frá landinu fluttu níu af hverjum tíu til Evrópu, þar af 2.818 til Póllands, eða tæp 27 prósent. Til Noregs fluttu rúmlega fimmtán hundruð manns. Mjög dró úr brottflutningi af landinu árið 2010 en þá fluttu 2.134 fleiri frá landinu. Flestir þeirra sem fluttu af landi brott fóru til sömu landa og árið áður, Noregs og Póllands. Reyndar má segja að streymi fólks til og frá þessum tveimur löndum gangi eins og rauð- ur þráður í gegnum búferlaflutn- inga fyrir og eftir hrun. Pólskar öfgar Þótt töluvert hafi verið um brott- flutning útlendinga í kjölfar krepp- unnar má halda því fram með rökum að hann sé minni en búast hefði mátt við fyrir fram. Kemur það til af því að verulegur sam- dráttur hefur einnig orðið í þeim ríkjum sem útlendingarnir hafa einkum komið frá síðustu ár. Eins og áður sagði er áætlað að árið 2007 hafi verið um eða yfir tuttugu þús- und útlendingar á vinnumarkaði. Tæpur helmingur þeirra var Pól- verjar. Árið 2006 voru þrettán Pólverjar á atvinnuleysisskrá en í lok febrúar síðastliðnum voru alls 2.375 erlendir ríkisborgarar án atvinnu, þar af 1.428 Pólverjar, eða 61 prósent þeirra útlendinga sem þá voru á skrá. Félagsvísinda- stofnun komst að því í janúar að tæpur helmingur allra þeirra sem þáðu mataraðstoð hjá hjálparsam- tökum í nóvember var Pólverjar; 91 prósent þeirra var án atvinnu. Fordómar Ekki þarf að leita lengi til að finna rannsóknir um fordóma sem fylgja breytingum á vinnu markaði. Enginn lítur tvisvar í áttina að útlendingi í góðri vinnu á meðan hann hefur það gott sjálfur. Vægi þessa sama starfs breytist hins vegar fljótt hjá þjóð sem glímir við mesta atvinnuleysi í sinni sögu. Eða hvað? Gerður Gestsdóttir hefur um nokkurra ára skeið komið að mál- efnum útlendinga í störfum sínum sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofn- un og áður Alþjóðahúsi. „Ég greini ekki aukna andúð í garð útlendinga en það er sannarlega mismunun á vinnumarkaði. Atvinnurekendur velja frekar atvinnulausa Íslend- inginn.“ Gerður segir það sorglegt hversu margir útlendingar komist ekki heim. „Það er vegna þess að þeir sem hafa unnið hér árum saman eiga rétt á atvinnuleysisbótum sem þeir nýta til að framfleyta fjölskyldu í heimalandinu. Ef þeir færu hefðu þeir enga framfærslu. Það er því illskárra að hanga hér á bótum, vonlítill um að fá vinnu og við ömurlegar félagslegar aðstæð- ur, en að fara heim og fá ekki neitt.“ Tap samfélagsins Þegar horft er til flutninga frá landinu má sjá þá í tvennu ljósi. Það getur verið jákvætt að einstakling- ur fari í víking og afli sér nýrrar þekkingar og reynslu sem nýtist samfélaginu síðar. Ekki má gleyma því að mikill mannauður er fyrir í landinu sem fékkst með ungu fólki sem leitar sér menntunar víða um heim. Það þýðir líka minna álag á bótakerfin heima fyrir og færri eru um störfin. Hins vegar er hætt við að missa ungt og vel menntað fólk um lengri tíma, sem er mikil blóð- taka fyrir litla þjóð, og má minna á umræðuna í samfélaginu um að íslenskir læknar fari eða komi ekki aftur úr námi. Hættan liggur í langvarandi atvinnuleysi, aukn- um atgervisflótta því fylgjandi og erfiðri varnarbaráttu íslensks sam- félags í framhaldinu. Öfgar uppsveiflu og kreppu Eitt einkenni hrunsins er búferlaflutningar Íslendinga og erlends vinnuafls sem hingað dreif að á þensluárunum. Flutningarnir hverfast um tvö lönd; Pólland og Noreg. Miklar breytingar á vinnumarkaði virðast ekki hafa valdið andúð í garð útlendinga hér. FRÉTTASKÝRING: Atvinnuleysi á Íslandi 7. hluti 0 12.528 5.761 1.918 20 07 20 11 á æ tlu n ár s 19 99 ■ Aðfluttir ■ Brottfluttir ■ Fólksfjölgun / fólksfækkun ■ 2005-2006 ■ 2007-2008 ■ 2009-2010 2004 2005 2006 2007 2008 2009 154.150 156.590 160.403 163.543 165.919 165.418 6.950 9.010 14.197 17.907 18.131 15.432 ■ Íslendingar ■ Útlendingar 13 Pólverjar voru atvinnulausir á Íslandi árið 2006 Þeir voru 1.312 árið 2010 12.528 útlendingar fluttu til Íslands árið 2007 7.759 fluttu frá landinu árið 2010 en 10.612 árið 2009 Pó lla nd Li th áe n Þý sk al an d Le tt la nd B re tl an d Fr ak kl an d Sp án n D an m ör k Sv íþ jó ð N or eg ur Brottfluttir Íslendingar 1987-2010 1989 1995 2000 2008 1.600 1.000 600 0 4. 86 7 9. 53 4 2. 04 2 60 5 1. 00 1 48 6 61 5 61 5 39 1 26 2 45 3 27 9 16 0 22 6 21 6 82 15 9 17 1 51 96 14 8 36 0 30 8 12 8 23 8 26 3 13 8 15 2 11 0 73 Flutningar til Íslands eftir þjóðerni 2005-2010 Aðfluttir og brottfluttir útlendingar 1999 - 2011 Útlendingar á íslenskum vinnumarkaði 2004 2009 2009 og 2010 fluttu 2.140 fleiri Íslending- ar til Noregs en heim aftur. Ef þeir færu hefðu þeir enga framfærslu. Það er því illskárra að hanga hér á bótum. GERÐUR GESTSDÓTTIR RÁÐGJAFI Á VINNUMÁLASTOFNUN Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Sjöundi hluti af níu Næsta grein: Atvinnusókn með nýsköpun Tölfræðiheimildir: Hagstofa Íslands og Vinnumálastofnun. - Þegar hreinlæti skiptir máli Sími 510 1200 www.tandur.is TASKI kynningarverði A T A R N A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.