Sameiningin - 01.03.1920, Side 5
69
ast ekki af því að þeir hafi gjört ódáðaverk. Konungur-
inn kallr þá ekki þjófa og manndrápara o. s. frv., heldur
segir hann: “Svo framarlega sem þér hafið e'kki gjört
þetta einum af þessum minstu, Iþá hafið þér heldur ekki
gjört mér það!” Það sama kemur fram í dæmisögunni
um talenturnar. Þriðji þjónninn hafði ekki stolið tal-
entunni frá lierra sínuin, heldur ekki sóað henni í óhóf-
sömum lifnaði. Hann hafði að eins látið vera að ávaxta
liana. Og fimm óhygnu meyjarnar í fyrstu dæmisög-
unni í 25. kap., þær voru útilokaðar, ekki vegna mótstöðu
eða mótþróa, heldur sökum hirðuleysis þeirra.
Það er letin, hirðuleysið, hið reikula og dáðlausa,
hálfvelgjan og kveifarskapurinn, makindin og val-leysið,
sem er á móti Kristi og sundurdreyfir fyrir honum, engu
síður en hin opinbera mótspyrna — og alt Iþetta veldur
glötun að lokum, ef menn ekki sjá að sér og með fullri
vilja-ákvörðun rífa sig upp úr hálfvelgjunni og' með ljósri
vitund og vilja velja Krist og skrifa sig sem frjálsa sjálf-
boða inn í fylkingaraðir hans.
Nú um stundir er í lieiminuin að rísa upp sterk
fandskjapar-alda á móti hinum heilsusamlega lærdóini
kristindómsins. Aíeð fullri vitund og vilja rísa margir
upp á móti Guði og Hans Smurða. Og þetta vex dag frá
degi. Hvaðan fá nú þessi óvinaöfl liðsmenn sína ? Þau
fá þá á meðal hinna óafgjörandi, hinna sofandi og and-
lega dauðu, þeirra sem haltra til beggja liliða. Með alls-
konar lævísi og' ginningum eru þeir lokkaðir inn í raðirn-
ar áður en þeir vita af. Það er ekki farið illa að þeim,
það er öðru nær, því þá gætu þeir vaknað. Nei, það er
lætt inn í þá efa, eða þá að þeir eru gintir með tálbeitu,
sem sýnist svo fögur og girnileg. Utan um öngulinn er
vafið gómsætu agni og gljáandi; það eru fagrar orðræð-
ur um gott siðferði, prúða framgöngu og hógværð og
jafnlyndi, kryddað með skáldlegum og lieimspekilegum
fagurmælum, sem kitla óendurfædd og reikandi hjörtu;
oft eru lánuð orðatiltæki úr kristindómsmálinu og- ritn-
ingunni, nema það sem er um iðrun og afturhvarf og
guðdóm .Jesú Krists; það er lielzt látið liggja í þagnar-
gildi. Og liinir sofandi og hálfvolgu golþorskar kristn-
innar gleypa við þessari beitu. Þessar kenningar eru svo