Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 29

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 29
93 Bandalagið til þess $50 og jafnframt $100 til annara safn- aðarþarfa. Síðan kirkja safnaðarins brann á síðastliðnu hausti, hafa guðsþjónustur verið haldnar í þessu sam- komuhúsi. En húsið var ómálað að innan; tóku þá pilt- arnir í Bandalaginu sig til og buðust til að vinna að því ó- keypis að mála það, eftir venj ulegan vinnutíma sinn, og var það sómaboð auðvitað þegið með þökkum og Bandalagið lagði til litinn. Enn fremur keypti Bandaiagið Piano handa söfnuðmum og hefir nú lofað $500 í kirkjubyggingarsjóð safnaðarins fyrir lok þessa árs. Fyrir ýmsum góðum skemtisamkomum hefir Banda- lagið staðið, sem það hefir haft allmiklar tekjur af. Einu sinni gekst það fyrir skemtiferð í bifreiðum, er um 60 manns tóku þátt í; var farið út fyrir bæinn að heimsækja gamlan meðlim Bandalagsins, en þeir er bifreiðarnar áttu, lánuðu þær endurgjaldslaust. Síðastliðinn þakklætisdag efndi Bandalagið til kveldverðar, sem var onjög vel sóttur. Og 11. nóvember efndi það til hljómleika. Trúboða kirkjufélagsins í Japan hefir Bandalagið sent mikið af tímaritum, til notkunar á lestarstofu þeirri, er hann hefir sett á stofn. Auk þess hafa félagsstúlkur tölu- vert unnið fyrir rauða kros's félagið. Úr Bandalaginu fóru margir ungir menn í stríðið, og jafnótt og þeir komu heim aftur, hélt Bandalagið samkom- ur til að fagna þeim; á síðustu samkomunni voru 19 her- menn, og flestir þeirra meðlimir Bandalagsins. Árið 1918 hélt Bandalagið 16 fundi og voru að meðai- tali 25 á hverjum fundi; en 1919 hélt það 17 fundi, og að meðaltalá 35 á fundi. Af þessu stutta yfirliti má sjá, að unga fólkið í Selkirk söfnuði hefir ekki verið aðgjörðalaust. Hafi Bandalagið heiður og þakkir fyrir áhuga sinn og dugnað. Er þessa getið sérstalklega unga fólkinu í öðrum söfnuðum til fyrir- myndar. Gott væri, ef fleiri Banda’lög vildu senda skýrslu um starf sitt, öðrum til leiðbeiningar og hvatningar. Sannf æringar f esta. Stephen Girard, útgerðarmaður og auðmaður í Phila- delphia (dó 1831), var enginn trúmaður. En samt kunni hann að meta það, þegar aðrir stóðu í verki við þá trú, sem þeir játuðu. Einn laugardag skipaði hann þjónum sínum að koma

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.