Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 11
75 Meistarinn vill finna þig. Prédikun eftir séra Friðrik Hallgrímsson. “Og er hún hafði þetta mælt, fór hún burt og kallaði á systur sína Maríu og sagði einslega: Meistarinn er hér og vill finna þig”.—Jóh. 11, 28, Jesús er kominn til Betaníu. Systurnar höfðu sent eftir honum, þegar bróðir þeirra veiktist; en nú, þegar Jesús kom, var hann dáinn og búið að grafa hann. þegar það fréttist, að Jesús væri að koma til þoripsins, fór Marta út til þess að taka á móti honum, og hann talaði til hennar huggunarorðin inndælu um sigur lífsins yfir dauðanum, sem hafa síðan veitt svo mörgu sorgbitnu og saknandi hjarta fró og frið. Andvörpin sefast við hughreystingar- orðin hans; hin tignarlega og blíða rósemi meistarans og vinarins innan um alla sorgina og grátstafina hefir áhrif á hana, sem hún getur ekki gjört sér Ijósa grein fyrir; en hún finnur að henni líður miklu betur síðan hann kom og talaði við hana, — það er farið að skína eitthvert ljós gegn um sorgarmyrkrið síðan hann kom. — Og Marta hugsar til Maríu systur sinnar, sem situr grátandi heima og á svo bágt; hún veit, að það myndi gjöra henni svo gott að hitta hann og láta hann ta'la við sig líka; og hún flýtir sér til hennar, beygir sig niður að henni með systurlegri hluttekn- ingu og blíðu og segir við hana: “Meistarinn er hér og vill finna þig.” “Meistarinn er hér og vill finna þig.” pað var orðsend- ing, sem systir flutti -systur. Og sömu skilaboðin er eg að fiytja þér, bróðir og systir, sem ert kominn hingað í Guðs hús í dag. pví enn kemur hann til Betaníu og hingað til okkar, allsstaðar þar sem fagnaðarerindi hans er boðað, þar sem menn og konur mæðast undir byrðum lífsins, þar sem menn hafa þörf á frelsara. — Hann vill finna alla. Hvernig sem á stendur fyrir þér, vill hann finna þig og fá þig til að gefa sér gaum, því hann á erindi við þig, vegna þess að hann.er frelsari þinn og vdnur þinn. Guð gefi mér þá náð til þess, að flytja þér skilaboð meistarans þannig í dag, að þú finnir til þess, að hann á erindi við þig og komir á móti honum í einlægni og trausti, eins og Maria, svo að han-n geti fengið að hugga þig og hjálpa þér, gleðja þig og blessa.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.