Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 18
82 hjartadyrum hjá þér og biður þig um að þiggja vináttu sína, náS og blessun, — biður þig um að lofa sér að fylgja þér héðan tit þinna daglegu starfa og halda í hönd þína í gleði og isorg og öllum lífsins kjörum. Guð gefi þér það gagn af þessari kirkjuferð, að þið hafið fundið hver annan, meistarinn og þú, — að þú hafir fundið til þess, hve ant honum er um þig og hvað hann er þér góður, og að þið verðið samferða héðan og skiljið aldrei. Á morgni æfinnar kom hann til þín og gjörði kærleiks- sáttmála við þig í heilagri skím. En allir dagar eiga sér kvetd, — og einmig þinn jarðneski æfidagur. Einhvem tíma kemur sú stund, að þú átt að fara héðan og kveðja þetta líf. — Mátturinn er að þrjóta, augun að daprast, þú heyrir kannske ekki lengur kærteiksiorð vinanna, sem hjá þér eru. Kyrð dauðams er í kring um þig. En úr kyrðinni miklu kemur rödd, sem enginn heyrir nema þú: “Meistarinn er hér og vill finna þig.” Hann er kominn, sá eimi allra vima þinna, sem þá getur nokkra hjálp þér veitt; — hann er kom- inn tit þess að hrífa þig úr greipum dauðans og fylgja þér heim til föðurhúsanna himnesku, —• leiða öndu þína út úr myrkri dauðans inn á bið sólbjarta land lífsims.. Ó, hvað það er gott þá, að eiga þanm vin og hafa lært að elska hann og treysta honum ihér, — að geta, þegar æfideginum hall- ar, sagt í fullu trúnaðartrausti: Mitt við andlát augum fyrir mínum, upp, minn Drottinn, haltu krossi þínum. Gegm um myrkrið lífsins ljós að sjá, leyf mér, góði, Jesú! Vert mér hjá. Já, þá er gott að hafa hann hjá sér. Augun ibresta; hjartað hættir að slá; jarðneska tjatd- búðin er hrunin. En meistarinn er kominn með lærisvein- inn sirnn heim í föðurfaðm Guðs. Til skrifara safnaðanna. Skrifarar safnaðanna eru vimsamlga á það mintir, að ættast er til að skýrslur frá öl'lum söfnuðunum séu til mín komnar fyrir 1. Apríl. Ef einhverjir söfnuðir hafa ekki þegar afgreitt skýrslur sínar, eru þeir beðnir að gjöra það tafarlaust. Hafi einhver skrifari ekki fengið eyðublað umdir skýrsluna, gjöri hann mér aðvart um það sem fyrst. Baldur, Man., 10. Marz 1920. Friðrik Hallgrímsson, skrif. k.fél.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.