Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 12
76
Faðir og móðir! pú kemur með barnið þitt litla til
skírnar. — pér þykir svo óumræðilega vænt um það, því
það er hold af þínu hoidi. pað hvílir við brjóst þitt, og því
líður þar svo vel; kærleikurinn gjörir hendurnar, sem á því
halda, svo mjúkar og yarfærnar; þegar það vaknar af blundi
og horfir á þig með litlu skæru augunum sínum, þá brosir
þú ósjálfrátt við því, eins og þig langi til að láta það vita,
hve heitt þú elskar það.
Með tákni krossins er það vígt til að vera eign hins
krossfesta frelsara Jesú Krists. — Faðir og móðir! Með
skírn barnsins þíns eru þér flutt þessi skilaboð: “Meistarinn
er hér og vill finna þig.” Hann langar til að tala við þig um
barnið þitt litla, sem hann elskar engu síður en þú. Hann
biður þig að muna eftir því, að skírnin er ekki tómur og
þýðingarlaus helgifeiður, heldur /heilagt máðarmeðal, sem
hann hefir stofnað og gefið kirkju sinni; og að hann gjörir
í skírninni ekki að eins sáttmála guðlegs hjálpræðis og kær-
leika við barnið þitt, heldur vill hann líka gjöra þann sátt-
mála við þig, að þú alir bamið upp sem guðsbarn og leggir
rækt við ódauðlega sál þess, engu síður en þú annast líkams-
þarfir þess. Ó, faðir og móðir! pú getur varla gjört þér
grein fyrir því, hve mikla þýðingu það hefir fyrir barnið
þitt, að þú gefir vel gaum að þeirri beiðni meistarans ; og
með engu móti getur þú betur sýnt því kærleika þinn, en
með því. Tala þú þá við hann um barnið þitt og bið hann
um að hjálpa þér til að greiða götu þess til sannrar lífs-
gæfu um tíma og eilífð.
Jesús blíður bað: Bannið eigi það.
Börnin tek eg ung á arma mína.
Skyggið eigi á ungu blómin smá;
lofið á þau ljósi Guðs að skína.
Litli drengur og litla stúlka! pú kemur í sunnudag-
skólann. — pú hefir lært lexíuna þína heima, eins vel og
þér er mögulegt, því það gjöra góð börn. pau vilja læra um
það, hvað Guð er vitur og máttugur og góður, og fallegu
sögurnar um Jesú, sem var einu sinni lítið barn í Betlehem,
og var foreldrum sínum hlýðinn í Nazaret, sem læknaði þá
veiku og huggaði þá sorgbitnu og hjálpaði þeim, sem áttu
bágt, og er svo góður við alla.
pegar kennarinn þinn fer svo að kenna þér, þá er eins
og hann segi við þig: “Meistarinn er hér og vill finna þig.”
pví það, sem kennarinn vill segja þér, er það, að Jesús er