Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.03.1920, Blaðsíða 30
94 til vinnu daginn eftir og afferma s'kip, sem nýkomið var. Engin nauðsyn rak á eftir, að flýta svo verkinu, en hann langaði samt til að afgreiða skipið sem fyrst. Einn af þjón- um hans, sem var ákveðinn trúmaður, svaraði honum og sagði: “Eg er ekki vanur því, að vinna óþörf verk á sunnu- dögum, og get því ekki komið á morgun.” þetta kom flatt upp á Girard; hann var óvanur því, að skipunum sínum væri ekki hlýtt, og hann ætlaði ekki að þola það. Hann sagði manninum unga, að ef hann vildi ekki hlýðnast fyrirskipunum sínum, þá mætti hann fara úr vist- inni. Og það varð úr. f þrjár vikur ráfaði maðurinn um stræti borgarinnar og leitaði að atvinnu; en enga atvinnu fékk hann, og horf- urnar voru ekki álitlegar. En þá fékk hann einn dag bréf frá bankastjóra, sem bauð honum gjaldkerastöðu við bankann isinn. Á því hafði hann sízt átt von, og tók hann boðinu feginshendi. Seinna komst hann að því, að það var Stephen Girard, sem hafði útvegað honum stöðuna. Bankastjórinn hafði spurt Girard að því, hvort hann þekti nokkurn, sem hann gæti mælt með að trúað væri fyrir því starfi, og eftir nokkra umhugsun nefndi hann þennan unga mann. Bankastjórinn furðaði sig á þVí, að hann skyldi mæla með manni, sem hann hafði sjálfur rekið úr vistinni, og hafði orð á því. “Eg rak hann,” svaraði Girard, “af því hann neitaði mér um að vinna á sunnudegi; en manni, sem vill heldur missa atvinnu sína, en breyta á móti sannfæringu sinni, er þér óhætt að trúa fyrir peningum.” -------o-------- Sunnudagsskóla-lexíur. II. LEXÍA. — 11. APRÍL Debóra og Barak bjarga ísrael—Dóm. 4, 4—16. (Les Sálm 46). Minnistexti: Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjá/p í nauðum — Sálm. 46, 1. 1. Hvenær gjörðist atburður þessi? Á tíð dómaranna, löngu áður en ísrael varð að konungsríki. 2. Hvernig var á- statt fyrir israel? pjóðin hafði gleymt Guði og tekið að dýrka falsguði. pá hegndi Drottinn þjóðinni með því að láta Jabín, Kanaans-konung, leggja ísrael undir sig og kúga hann í 20 ár. 3. Hvað hét hershöfðingi Jabíns konungs? Hann hét Sísera.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.