Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1920, Side 14

Sameiningin - 01.03.1920, Side 14
78 þú fer með æskuárin þín; — þau líða svo fljótt, og þau koma aldrei aftur! Hafðu hann altaf með þér og sýndu honum einlægni, h'lýðni og traust. pá famast þér vel. Fermingarbarn, til fylgdar þig hann krefur, fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur, sakleysið verndar, sorg í gleði breytir, sigurinn veitir. Bróðir eða systir! pú ert að fara að heiman, til náms eða starfs fjarri foreldrahúsunum. — Farangurinn er til- búinn og þú ert búinn að kveðja foreldra þína og heimilis- fólkið. pú ert kominn út, —en þú lítur um öxl og kannske glitra tár í augum þínum, því það fylgir því altaf einhver sársauki, að fara að heiman til dangdvalar. Hvað tefur þig? Er það einhver, sem þú hefir gleymt að kveðja? Eða hefir þú gleymt einhverju, sem þú ætlaðir að taka með þér? Nei, það er ekki það. pað er aindi heimilisins, sem hvíslar að þér: “Meistarinn er hér og vill finna þig.” Hann er að biðja þig um að lofa sér að vera þér samferða. Áhrifin frá góðu æskuheimili vilja stundum gleymast fyrir áhrifum nýs umheims og nýrra starfa. En meistarinn veit, að það er þér fyrir beztu, að hann verði með þér í förinni. Hann vill fá að hjálpa þér við námið eða starfið. Hann vill fá að varðveita guðsbamið í sál þinni fyrir illum áhrifum og gefa þér þrek til að standa áltaf og allsstaðar við þínar beztu hugsjónir, svo að þú verðir, hvar sem þú fer, heimili þínu til sóma og sjálfum þér og öðrum að gagni. pú maður, hvar sem hér þú fer, Guðs helgur andi fyigi þér; og hvar sem liggur leiðin þín, þig leiði Drottinn heim til sín. Maður og kona ! Með bæn til Guðs eruð þið vígð í hjónaband. — Kærustu vinirnir ykkar eru hjá ykkur og óska ykkur fagnandi hamingju og blessunar. pið eruð að gömlum kirkjulegum sið við það hátíðlega tækifæri mint á áminningar og fyrirheit Guðs orðs; og með því er sagt við ykkur: “Meistarinn er hér og vill finna þig.” Hann vill þá, þegar þið eruð að byrja samferðina, tala við ykkur um heimilið, sem þið ætlið saman að byggja, og biðja ykkur um að lofa sér að eiga þar heima með ykkur. Látið það vera ykkar beitustu bæn og ykkar helgasta ásetning, að láta

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.