Sameiningin - 01.03.1920, Page 17
81
með guðdómsvarma vekja sínum
hinn veika trúarneista minn,
og helga þannig hug og sál,
að hegðun lofi þig og mál.
En meistarinni gjörir ekki að eins boð eftir okkur, þeg-
ar við eigum eitthvað bágt, heldur líka þegar gæfan brosir
við okkur. pegar akurinn þinn hefir borið þér mikinn á-
vöxt og ibúskapurinni er hjá þér í blóma, svo að þú getur
veitt þér og þínum mikil lífsþægindi; eða þegar verzlunin
þín eða atvinnan gefur þér góðan arð og framtíðarhorfum-
ar eru bjartar; þegar heimilislánið umvefur þig og þú ert
sæll í hópi kærustu vina þinna; þegar Guð er að blessa þig
og gleðja á allar lundir, — þá kemur Gæfan og hvíslar að
þér: “Guð sendi mig til þess að skila til þín: “Meistarinn er
hér og vill finna þig.” Hann bíður eftir þér broshýr og
blíður, því hann gleðst altaf af gleði lærisveina sinna og
vina. Hvaða erindi á hann við þig í sólskini gæfunnar?
Hvað vill hann þér? Hann segir við þig: Faðir minn hef-
ir verið þér góður og gefið þér mikið; en gleymdu því nú
ekki, að þú ert ráðsmaður. Láttu ekki gæfuna gjöra þig
stærilátan, heldur hugsaðu um, hvernig þú getir notað það
afl, sem þér er lagt í hendur, til þess að efla ríki mitt meðal
mannanna. Láttu gæfuna þína líka verða öðrum til góðs og
hjálpar, því ekkert veitir þér eins mikla blessun og sanna
gleði og það, sem þú lætur aðra njóta með þér. — pannig
talar meistarinn, vinur þinn, til þín, þú gæfumaður; því
hann vill að gæfan þín þrjóti aldrei, heldur margfaldist og
verði eilíf fyrir það, að þú látir hjarta þitt vera stöðugt hjá
Guði á góðu dögunum.
Bróðir og systir! pú ert korninn í Guðs hús í dag. Og
eg er að flytja þér þessi skilaboð: “Meistarinn er hér og
vill finna þig.” — Hefir hann náð þér á eintal í dag? Hefir
þú fært honum þakkir eða beðið hann að bæta úr einhverri
þörf þinni ? pví undir því er gagnið, sem þú hefir af guðs-
þjónustunni komið, að sál þín leiti Guðs í einlægri til-
beiðslu. pað er ekki mest undir því komið, hvað þú heyrir
hér, heldur hinu, hverjar hugarhræringar það, sem þú heyr-
ir, vekur hjá þér. Meistainn er hér og vill finna þig!
Hann er altaf hjá okkur í kirkjunni, til þess að blessa hvern
þann, sem orðið og tilbeiðslan vekur og glæðir hjá löngun
eftir honum og traust á honum. Hann er hér, og ber að