Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1920, Side 23

Sameiningin - 01.03.1920, Side 23
87 KIRKJULEGAR FRÉTTIR. Þessa deild annast séra C. K. Ölafsson. f Transvaal í Suður-Afríku er bannað með lög’um að selja Svertingjum áfengi. Vonandi njóta hvítu mennirnir sömu hlunninda þar áður en langt um líður. Harald Thorson, norskur auðmaður, er nýlátinn í St. Paul. Arfleiddi hann St. Olaf College í Northfield, Minn., að tveimur miljónum doliars. Eins og kunnugt er, hefir í mörg ár staðið stríð bar- átta innan kirkjunnar í Noregi út af nýju guðfræðinni, og eru horfurnar alt annað en friðvænlegar, enn sem komið err. Frá 16. til 18. janúar þ. á. héldu þeir, sem eldri stefn- unni fylgja, fjölment kirkjuþing (Landskirkjemöte) í Krist- janíu. Erindrekar voru um 1,000, úr öllum hlutum lands- ins. Stefnuskrá þingsins er tekin fram í eftirfylgjandi liðum: 1. Að safna kirkjufólkinu til varnar hinni gömlu trú og játningu, og til baráttu gegn ósönnum stefnum. 2. Að hefja þarafleiðandi, með einibeittu starfi, jákvæðan kristindóm í kirkju, skóla og í blöðunum. 3. Að draga saman og efla, frjáls félög og starf til að auka einingu meðal hinna trúuðu. 4. Að finna fullnægjandi fyrirkomulag á kristindóms- kenslu í skólunum. 5. Að krefjast þess, að annar prestur sé settur, þar sem þess er krafist, til að fullnægja þörfum þeirra, sem trúa samkvæmt biblíunni. Yfir því var mikið kvartað á fundunum, að með stuðn- ingi ríkisins væri reynt að þvinga nýju guðfræðinni inn á þjóðina. Prof. Sverdrup við safnaða-prestaskólann, skoraði alvarlega á kirkjufólkið að láta ekki bugast af þessum á- hrifum, heldur stríða trúlega sannleikans vegna. En hann áminti um, að stríða einungis með andlegum vopnum, og að forðast stranga dóma og bituryrði. Prof. Tarangar við há- skólann í Kristjaníu, mælti með aðskilnaði ríkis og kirkju. svo kirkjan mætti ráða sínum málum sjálf. — Alvara mikil var í öl’lum umræðunum, og hefir þing þetta vakið afar-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.