Sameiningin - 01.03.1920, Page 24
88
mikla eftirtekt. í ríkisþinginu norska varð út af því all-
snörp rimma. — Mælt er, að þeir í kirkjunni norsku, sem
skipa sér eins og mitt á milli, hugsi sér að stofna samband
með sér, til eflingar samheldni innan kirkjunnar. Prestur-
irm Erling Grönlund er með þeim fremstu í þeirn hópi.
í Ruthton, Minnesota, er ensk-lúterskur söfnuður, sem
erm þá er kirkjulaus . En kaþólski presturinn þar, hefir
leyft þessum lúterska söfnuði að nota sína kirkju fyrir
guðsþjónustur. Mun það vera þvínær einsdæmi, að kaþ-
ólskur prestur geri slikt.
Bakkusarvinir eru enn starfandi fyrir húsbónda sinn
i Bandaríkjunum. Fyrst og fremst er verið að gera ítar-
lega tilraun til þess, að fá bannlögin ónýtt fyrir dómstól-
unum. Charles Evans Hughes, forsetaefni repúblíka við
síðustu kosningar, kvað hafa verið boðnir 150,000 dollars
ti! að sækja málið, en hann hafnaði boðinu, og kvaðst ekki
mundu flytja slíkt mál fyrir dómstólunum, hvað sem í boði
væri. pá var reynt við Taft, fyrverandi forseta, og hon-
um boðið sjálfdæmi um borgun, en hann svaraði á þessa
leið: “Herrar mínir, þér getið ekki staflað upp nógu gulli
á þetta meginland, til að fá mig til að flytja mál ykkar fyr-
ir rétti og fyrir almenningi, því eg vil gera yður kunnugt,
að samvizka mín er ekki til sölu.” — Blaðið Christian
Centui*y segir frá þessu. Ekki er þess getið, hvað Elihu
Koot, sem nú er sagður að vera við málið riðinn, fái í aðra
hönd.
Dr. James M. Buckley, sem í 32 ár var ritstjóri blaðs-
ins Christian Advocate, er nýlátinn í Morristown í New
Jersey ríki, 83 ára gamall. Lét hann af ritstjórastarfi ár-
ið 1912, vegna ellibilunar. Var hann einn af áhrifamestu
blaðamönnum sinnar tiðar, og var hann oft nefndur “bisk-
upa smiðurinn” (“The Bishop maker”), vegna þess, hve á-
hrif hans voru mikil á þingum kirkju sinnar (Methodist-
Fpiscopal), er um kosningu biskupa eða önnur mál var að
ræða. ---------------
Leikmaður einn í Baptista-kirkjunni sendi blaðinu
Watchman Examiner, sem tilheyrir þeirri kirkjudeild, 5,000
dollara gjöf, í því augnamiði, að ekki þyrfti að hækka verð
blaðsins. Vonaðist hann eftir, að fleiri efnamenn mundu
fylgja í hans fótspor.