Sameiningin - 01.05.1920, Síða 6
132
ar vonir um safnaðarfólkið, að-það gæti ðúið saman ó-
eigingjörnu og fullkomnu lífi. Óefað er fyrirkomulag
það, er postularnir settu hinum fyrsta söfnuði, hugsjóna-
lega skoðað, hið fullkomnasta mannfélags-skipulag, sem
orðið getur. Communisminn (sameignar-fyrirkomulagið)
er óneitanlega það fyrirkomulag, sem lielg'ir menn eða
englar myndu aðhyllast. Eu því miður eru mennirnir ekki
fullkomnir né heilagir, og þeir reyndust skipulagi þessu
ekki vaxnir. Ekki leið á löngu áður en til vandræða
horfði í söfnuði postulanna í Jerúsalem út af þessu skipu-
lagi. Þegar vaxa tók fjöldi lærisveinanna, kom upp kurr
í söfnuðinum. Það var þjóðernisfargan, sem þar kom
fyrst á stað óánægju og misklíð. Hellenistar risu gegn
Hebreum og þóttust hafðir út undan, er til skiftanna
kom. Leiddi það til þess, að postularnir létu kjósa safn-
aðarnefnd sjö manna, til þess að annast fjármálin, og fór
því fram um liríð.
1 annan stað leið ekki á löngu áður en einstakir menn
í söfnuðinum gerðu sig seka um fjárdrátt. Maður er
nefndur ALianías og var fasteigna-sali þar í borginni.
Ásamt konu sinni, Saffíru, hafði hann gengið í söfnuðinn
og fríviljugur gengist undir lög og reglur bræðafélagsins.
Þau hjónin seldu svo eigai nokkra og drógu undan nokkuð
af verðÍLLu, en komu með nokkuð af því og lögðu fyrir
fætur postulanna og létu svo heita, sem þar væri komið
söluverðið alt. Svikin komust upp. Pétur varð afar-
reiður og ávítaði hjónin með hörðum orðum fyrir það, að
hafa látið Satan fylla hjörtu slil og koma þeim til að
Ijúga að heilögum anda. Afdrif Ananíasa.r og Saffíru eru
öllum kunn. Prettvísin varð banalbiti þeirra. Þau dóu í
syndum sínum.
Ef til vill hefir það verið vegna fenginnar reynslu í
Jerúsalem, að postulaimir áræddu ekki að koma skipulagi
þessu að í öðrum söfnuðum sínum. Hvergi annars stað-
ar er ])ess getið, að sameignar-fyrirkomulagið hafi verið
reynt í þeim mörgu söfnuðum, sem postularnir stofnuðu,
og langan aldur átti það víst ekki heldur í söfnuðinum í
Jerúsalem.
Og- ekki lítur svo út, að enn þá séu kristnir menn
þessu fvrirkomulagi vaxnir. Og aldrei verður til bless-